Morgunblaðið - 11.07.2016, Blaðsíða 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016
» Kvartett munn-hörpuleikarans
Þorleifs Gauks Davíðs-
sonar hélt tónleika á
Jómfrúartorginu sl.
laugardag. Kvart-
ettinn skipa auk Þor-
leifs Gauks þeir Eyþór
Gunnarsson á píanó,
Colescott Rubin á
kontrabassa og Einar
Scheving á trommur.
Flutningur þeirra á
hinum ýmsu djassslög-
urum féll í góðan jarð-
veg viðstaddra sem
nutu tónanna undir
berum himni.
Djassað á Jómfrúartorginu undir berum himni
Tónleikar Kvartett Þorleifs Gauks Davíðssonar skemmti á Jómfrúartorginu í góða veðrinu á laugardag og mátti vart á milli sjá hvort tónlistarmennirnir eða gestirnir nutu veislunnar betur.
Leikur Colescott Rubin lék við hvern sinn fingur á kontrabassann. Gestir Viðstaddir voru á öllum aldri og að sjálfsögðu var hundur í hópnum.
Morgunblaðið/Eggert
Kammerhópurinn Tríó Fókus
heldur tónleika í Grindavík-
urkirkju í kvöld kl. 20. Hópinn
skipa Ingveldur Ýr Jónsdóttir
mezzosópran söngkona, Margrét
Th. Hjaltested víóluleikari og
Guðríður St. Sigurðardóttir pí-
anóleikari. Á efnisskránni eru
verk eftir Loeffler, Brahms,
Bernstein, Caccini og þekkt ís-
lensk sönglög. Tónleikarnir eru
klukkustundarlangir. Tónleikarn-
ir verða endurteknir í Bláu kirkj-
unni á Seyðisfirði nk. miðvikudag
kl. 20:30. Almennt miðaverð er
2.000 krónur.
Tríó Fókus með
tvenna tónleika
Ljósmynd/Kristín Hauksdóttir
Tríó Ingveldur, Guðríður og Margrét.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum