Morgunblaðið - 11.07.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.07.2016, Blaðsíða 19
götunni, gjarnan eitthvað ný- bakað úr eldhúsinu enda var Anna gestrisin með afbrigðum. Anna var glaðlynd, umburðar- lynd og skilningsrík og var ætíð ánægjulegt að rabba við hana. Talið barst gjarnan að pólitík og gat þá færst fjör í leikinn. Anna var sjálfstæðismaður í bestu merkingu þess orðs, var með sín- ar grundvallarskoðanir á hreinu en ófeimin við að koma með vel- viljaða gagnrýni og benda á hvað mætti betur fara. Í kosninga- starfi sjálfstæðismanna í gamla Vesturbænum lét hún ekki sitt eftir liggja heldur dreif hlutina áfram þegar henni fannst vera þörf á því. Hin síðari ár tók hún virkan þátt í safnaðarstarfi Dóm- kirkjunnar og lét þar einnig að sér kveða. Það duldist engum að í augum Önnu var fjölskyldan hinn mikli fjársjóður sem bar að hlúa að. Hún sá fyrir sér heilmikið barna- lán hjá vinahópnum. Þegar stork- urinn fór síðan loks að venja komur sínar til félaganna, var heimsóknum okkar á Vesturgöt- una farið að fækka en Anna fylgdist hins vegar með úr fjar- lægð og samgladdist. Þegar að því kom að Anna sæi nýtt barn í vinahópnum, skoðaði hún það í krók og kring og velvild hennar og væntumþykja leyndi sér ekki. Fyrir góð kynni vil ég þakka á kveðjustund um leið og ég sendi fjölskyldu Önnu innilegar samúð- arkveðjur. Minningu hennar mun ég halda í heiðri á meðan mér endast dagar. Kjartan Magnússon. Hún var húsmóðir í Safnaðar- heimili Dómkirkjunnar þegar ég var þar viðloðandi á námsárum mínum í guðfræði, ævinlega ljúf og skemmtileg viðræðu, boðin og búin að aðstoða mann, ef á þurfti að halda. Ekki stóð á því. Báðar áttum við okkar tengsl við Seyð- isfjörð, þar sem mæður okkar Jó- hannesar voru fæddar og aldar upp, og voru góðar vinkonur að auki, – móðir Jóhannesar dóttir sýslumannsins og bæjarfógetans, en móðir mín dóttir kaupfélags- stjórans. Þegar ég fór að kynnast Önnu betur, þá kom í ljós síðar, að hún var besta vinkona Mar- grétar frænku minnar, auk þess sem við höfðum báðar verið í námi í MR. Við náðum því nokk- uð vel saman. Anna gat verið glettin og spaugsöm, ef hún vildi það við hafa, gantast líka stundum við mann, en það var aldrei ástæða til annars en að taka því vel, enda alltaf í góðu. Annað hefði verið ólíkt henni. Ég hafði alltaf gaman af að hitta hana og tala við, líka í síma, sem kom oftar en ekki fyr- ir. Okkur skorti heldur aldrei umræðuefnin. Hún hafði líka sín- ar ákveðnu skoðanir á mönnum og málefnum og lét þær í ljós umyrðalaust, ef henni bauð svo við að horfa. Það var hægt að læra mikið af henni. Ég hitti hana ekki mjög oft eftir að ég útskrifaðist sem guð- fræðingur, enda fór ferðum mín- um heldur fækkandi í kirkjuna eftir það, þótt það væri alltaf in- dælt að hitta Önnu, þegar leið mín lá þangað, eða ég hitti hana á förnum vegi á leið í safnaðar- heimilið, ef ég fór þar framhjá, og traustvekjandi að vita af henni þar, þá þegar ég átti erindi þang- að. Eftir að hún hætti störfum sínum í kirkjunni, þá fækkaði til muna þeim skiptum, sem við hitt- umst, en við höfðum spurnir af hvor af annarri í gegnum frænku mína. Þegar ég nú kveð hana eftir lífsdaginn er mér efst í huga ein- lægt þakklæti fyrir góða og gef- andi viðkynningu á árunum í Dómkirkjunni, um leið og ég bið henni allrar blessunar Guðs, þar sem hún er nú. Jóhannesi og öðr- um aðstandendum votta ég inni- lega samúð. Blessuð sé minning Önnu Lovísu Johannessen. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016 Elskulegur eiginnmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN GUÐLAUGSSON flugvirki, Vesturbergi 34, lést á líknardeildinni Kópavogi 5. júlí. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. júlí kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. . Kristín Pálsdóttir, Guðlaugur Guðjónsson, Elísabet M. Garðarsdóttir, Jón Örn Guðjónsson, Sigríður H. Wolfram, Björgvin P. Friðriksson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN MAGNÚSSON hæstaréttarlögmaður, Mörk, Suðurlandsbraut 66, lést á heimili sínu sunnudaginn 3. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 12. júlí kl. 15. . Laufey Sólmundsdóttir, Magnús Björn Jónsson, Kristín V. Sveinsdóttir, Ellert Már Jónsson, Hildur Ríkarðsdóttir, Ágúst Már Jónsson, Guðný Rósa Þorvarðardóttir, Sólmundur Már Jónsson, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Björn Már Jónsson, Melkorka Gunnarsdóttir, Guðrún Rós Jónsdóttir, Jochen Kattol, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURHANS ÞORBJÖRNSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðvikudaginn 6. júlí. Jarðsungið verður frá Seltjarnarnarneskirkju fimmtudaginn 14. júlí kl. 13. . Örn Sigurhansson Susannah Jane Hume Aðalsteinn Sigurhansson Helga E. Kristjánsdóttir Hákon Sigurhansson Brynhildur Þ. Gunnarsdóttir Málfríður Sigurhansdóttir Sverrir Benjamínsson Þórir Sigurhansson Ester Rut Unnsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, systir, móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, ÁSTRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Mörk, Suðurlandsbraut 60, lést í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 5. júlí á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer fram föstudaginn 22. júlí kl. 13 frá Fossvogskirkju. . Helgi Ó. Björnsson, Esther A. Jóhannsdóttir, Björn Helgason, Ásta Harðardóttir, Sigrún H. Helgadóttir, Alfred G. Matthíasson, Anna Helgadóttir, Gunnar Kristófersson, Jóhann Helgason. ✝ Anton HafþórPálsson fædd- ist í Reykjavík 9. október 1947. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 30. júní 2016. Foreldrar hans voru Ása L. Árna- dóttir frá Hrísey og Páll Guðmundsson frá Sandfelli í Öræfum. Anton á fjögur systkini, þau eru: Árni Baldur, Guðmundur Emil, Guðni Sigurður og Ásdís. Anton kvæntist 10. desember 1966 Brimhildi Jónsdóttur, f. 24. júlí 1948 í Hafnarfirði, foreldrar hennar: Þórunn Gottliebsdóttir Fjeldsted Hjartarson, börn þeirra: Rúna María, Júlía Rós og Alexía Lind; b) Anton Hafþór, unnusta Selma Rut Forberg, dóttir þeirra Emma Líf; c) Páll Brimar, unnusta Helga Rakel Björnsdóttir, sonur Páls með Fanneyju Grétarsdóttur; d) Ást- þór Grétar, dóttir Dagbjartar, stjúpdóttir Páls; e) Nicole Dís. 3) Ríkharður Örn, dóttir hans með Tinu Reimbold: a) Ariel Vikt- oria, sonur hans með Barböru Barra: b) Leonardo Gabríel. Anton var mikill dugnaðar- forkur og þúsundþjalasmiður sem vann ýmis störf. Hann vann lengi hjá Íslenskum að- alverktökum, lengst af við bíla- viðgerðir, bæði með sinn eigin rekstur og líka hjá öðrum. Sveinspróf í bifvélavirkjun tók Anton árið 1998. Útför Antons fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 11. júlí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. og Jón Þórðarson, sem er látinn. Synir Antons og Brim- hildar eru: 1) Jón Þór, f. 2. nóvember 1966, maki Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir. Börn þeirra a) Hilmar Þór, unn- usta Katrín Frið- geirsdóttir, sonur þeirra Henning Þór; b) Brimhildur Gígja, unnusti Aron Davíð Svan- laugsson; c) Telma Eik. 2) Páll, f. 12. janúar 1969, maki Dag- björt Vilhjálmsdóttir, börn Páls með fyrrverandi eiginkonu, Vé- dísi Hlín Guðmundsdóttur: a) Guðmunda Áróra, maki Bjarki Elsku pabbi, þú sem fórst alltof fljótt frá okkur. Ekki hvarflaði að mér að þetta væru síðustu stundir okkar saman þegar ég fór með þig upp á sjúkrahús í síðustu viku áður en ég fór út til Noregs. Margar góðar stundir áttum við saman sem ég geymi í mínu hjarta, Evróputúrar, veiðiferðir, hring- ferðir o.fl. Þið mamma voruð dugleg að ferðast með okkur strákana, hvort sem það var innanlands eða til útlanda. Margar ferðir voru farnar í Þórsmörk og Landmannalaug- ar og lentum við í ýmsum æv- intýrum þar. Það var ætíð gott að leita til þín og ósjaldan sem við unnum saman við að tjasla saman bílunum mínum. Það var eiginlega alveg sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, allt lék í höndunum á þér. Ég á eftir að sakna þin. Þinn sonur, Jón Þór. Anton Hafþór Pálsson ✝ Sigrún Svan-fríður Ósk- arsdóttir fæddist 3. febrúar 1950. Sig- rún lést á líkn- ardeild LSH í Kópavogi 2. júlí 2016. Foreldrar henn- ar voru Óskar Ja- cobsen, f. 29. jan- úar 1923, d. 20. október 1999, og Guðrún Áslaug Magnúsdóttir, f. 11. mars 1924, d. 10. sept- ember 2014. Systkini Sigrúnar voru Karl Sigurgeir Óskarsson, f. 23.5. 1942, d. 23.4. 2016, Þór- arinn Kolbeinn, f. 9.7. 1944, ur, Ástu Maríu Þrastardóttur, f. 1989, og Evu Rós, f. 1992. 2. Óskar Svanur, f. 11. apríl 1971, í sambúð með Guðnýju Maju Riba og eiga þau einn son Óla Petro, fyrir átti Óskar eina dóttur, Sigrúnu Hönnu. 3. Ólaf- ur Börkur, f. 12. ágúst 1972, d. 13. janúar 1990. Sigrún ólst upp fyrstu árin sín í Höfðaborg og gekk í Laugarnesskóla en flutti síðan í Dugguvog og þaðan í Útskála við Suðurlandsbraut. Sigrún gekk í Húsmæðraskólann þeg- ar hún var 17 ára gömul og starfaði við aðhlynningu á Sól- heimum í Grímsnesi eftir það nám og undi hún sér vel þar. Sigrún vann við öryggisgæslu og þrif síðustu 30 árin fyrir ýmis fyrirtæki og var vel liðin hvar sem hún starfaði. Útför Sigrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 11. júlí 2106, klukkan 15. Magnús Friðrik, f. 17.9. 1948, d. 16.2. 1990, Esther Rut, f. 22.4. 1951, Óskar Helgi, f. 20.6. 1953, Gunnar Þór, f. 23.5. 1955, d. 25. janúar 2015, Fríða, f. 6.2.1957, d. 19.5. 2015, Elsa Inga, f. 3.8. 1960, Hjörtur, f. 2.10. 1961, og Helga, f. 8.12. 1962. Sigrún giftist Berki Ólafs- syni 1970, þau skildu 1972. Sig- rún og Börkur áttu þrjú börn saman: 1. Guðrún Ólöf, f. 14. apríl 1970, Guðrún á tvær dæt- Nú er hún Sigrún systir mín komin til Drottins og stríðinu lokið. Hún er búin að berjast við heilakrabbamein síðustu tíu mánuði eins og hetja sem hún var og bugaðist ekki allt til enda. Sigrún er fjórða barn af 11 börn- um, elsta dóttirin. Síðan kom ég 14 mánuðum seinna en var gefin til móðurbróður svo ég kynntist Sigrúnu sem frænku og mér þótti alltaf vænt um hana. Ég bjó með foreldrum mínum í sama húsi og amma okkar í Efstasundi þannig að þegar stórfjölskyldan hittust hjá ömmu var það líka heima hjá mér. Þetta var stór hópur þar sem amma átti sjö börn og fjöldamörg barnabörn og barnabarnabörn, þannig að alltaf hittumst við Sigrún og vor- um miklar vinkonur. Þannig að við vorum frænkur og vinkonur og svo þegar við vorum 14-15 ára þá var okkur sagt að við værum líka systur sem við vorum mjög ánægðar með, urðum ennþá nán- ari eftir það. Sigrún hugsaði svo mikið og vel um öll systkinin sín því mamman þurfti að fara að vinna frá barnahópnum sínum og þá var elsta dóttirin í því hlut- verki að verða mamman númer tvö fyrir sex yngri börnin. Sig- rún stóð sig sem hetja og kvart- aði aldrei og átti hún hug og hjörtu allra sem kynntust henni, hún hafði sig aldrei í frammi við neinn og var alltaf svo góð og blíð alveg einstök kona. Sigrún var þannig að hún mátti ekkert aumt sjá og þegar Kalli bróðir fékk heilablóðfall og lá lengi á hjúkrunarheimili þá heimsótti Sigrún hann á hverjum laugar- degi og mátti aldrei missa úr viku. Eftir að hún veiktist sjálf og gat ekki keyrt þá var það laugardagsrúnturinn að fara til Kalla bróður. Hann lést í lok apríl á þessu ári. Sigrún þurfti að reyna margt í lífinu, giftist ung og eignaðist börnin sín þrjú á stuttum tíma og meðan hún gekk með þriðja barnið varð hún fráskilin móðir, það bugaði hana ekki, hún hélt bara ótrauð áfram. Sigrún sá vel fyrir fjölskyldu sinni og bjó þeim yndislegt heimili þar sem öryggi og hlýja ríkti og þar áttu margir sér griðastað. Sigrún missir yngri soninn þegar hann er ung- lingur. Það var henni mjög þung byrði. Það voru líka fleiri sem féllu frá á þessum tíma, en hún lét ekki bugast, algjör hetja sem hún var. Það er mikill missir að kveðja Sigrúnu, hennar verður sárt saknað. Þín systir Esther Terrazas. Elsku kæra systir mín, mikið erum við búin að missa við and- lát þitt. Veikindi þín síðustu 10 mánaða færðu okkur aftur nær hvor annarri þegar þú barðist hetjulega við þennan hræðilega sjúkdóm, elsku Sigrún mín. Þú hefur alltaf verið mér svo kær og ég hef alltaf litið á þig sem aðra mömmu mína þótt ekki séu nema 12 ára á milli okkar. Þú passaðir bæði mig og önnur systkini okk- ar þangað til þú varst 17 ára þegar þú fórst í húsmæðraskól- ann. Sigrún mín, þú varst svo ósérhlífin og dugleg og lagðir þig alla fram í þeirri vinnu sem þú tókst þér fyrir hendur og elsk- aðir að vinna. Þú tókst þér ekki sumarfrí í 17 ár áður en þú veikt- ist fyrir utan nokkra daga þegar þú fórst í þína árlegu verslunar- ferð til Ameríku sem þér þótti ómissandi. Ég er svo þakklát fyrir að ég gat farið með þér í þína síðustu ferð í nóvember á síðasta ári. Þú varst einstök per- sóna, smásérstök á þinn frábæra hátt, svo hjartahlý, traust og fórnfús fyrir alla bæði systkini og ekki síst börnin þín og barna- börn sem þú lifðir fyrir. Þegar þú vannst á Sólheimum kynntist þú ástinni þinni, honum Berki, sem þú elskaðir alla þína ævi, þrátt fyrir að þið gætuð ekki bú- ið saman átti hann alltaf hjarta þitt og þið áttuð frábær þrjú börn en því miður misstuð þið yngsta drenginn ykkar, hann Óla. Mikil var sorgin sem þú barst í brjósti, elsku systir, en nú ertu komin til hans aftur og allra þinna systkina og foreldra. Ég man eftir mér fara í strætó 10 ára að passa fyrir þig niður á Þórsgötu nánast á hverjum degi, síðan þegar þú fluttir upp í Breiðholt flutti ég bara með þér og bjó hjá þér í nokkur ár til þess að aðstoða þig með krakk- ana. Börnin þín Guðrún, Óskar og Ólafur, eru eins og mín eigin börn og hafa alltaf verið síðan ég passaði þau og bjó hjá ykkur. Þegar ég hugsa um allan tímann sem við áttum saman þá kemur ekkert upp í hugann þar sem ég hef verið ósátt við þig, það var alltaf allt leyfilegt í kringum þig. Þú varst mér það kær að ég skírði elstu stelpuna mína í höf- uðið á þér og mömmu Sigrúnu Áslaugu enda tengdust þið nöfn- urnar jafn góðum böndum og við systurnar. Síðan eftir að krakk- arnir þínir stækkuðu unnum við líka saman og oft töluðum við um nóttina þegar ég var 13 ára og við þurftum að ganga heim frá Austurvelli í 19 gráða frosti þar sem við höfðum misst af síðasta strætó eftir mikil þrif í Lands- símahúsinu og engir voru gems- ar til þá, en mikið var okkur kalt. Við nýttum tímann vel eftir að þú veiktist og vorum við mikið saman, bæði spjölluðum og rifj- uðum upp góðar stundir og tók- um laugardagsrúntinn, ég er æv- inlega þakklát fyrir að hafa fengið þennan tíma með þér, elsku systir mín. Yndislegu börnin þín Guðrún og Óskar sem stóðu með þér í þessari baráttu síðustu mánuði hafa misst þá bestu móður og ömmu sem hægt er að hugsa sér. Elsku Sigrún, ég elska þig og mun alltaf minnast þín með söknuði og sem fyrirmyndar að æðruleysi og trausti. Þín systir, Helga Óskarsdóttir. Það er komið að kveðjustund of fljótt, elsku fallega og hjarta- hlýja amma mín. Eftir sitja að- eins dýrmætar minningar um þig og okkar stundir saman. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku amma, mikið mun ég sakna þín. Ég kveð þig með söknuði en jafnframt þakklæti fyrir allt það sem þú hefur gefið mér. Hvíl í friði. Þín ömmustelpa, Ásta María. Sigrún Svanfríður Óskarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.