Morgunblaðið - 11.07.2016, Side 10

Morgunblaðið - 11.07.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016 TÆKIFÆRIÐ ER NÚNA „ “ Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu. ÞETTA Á EKKI AÐ VERA AUÐVELT. EN ÞAÐ ER ÞESS VIRÐI LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR LEYNIVOPN.IS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hleðslur sem komu í ljós þegar fornleifafræðingar grófu könn- unarholur á Þingeyrum í Húna- þingi í síðustu viku benda til þess að rústir hins forna klausturs þar séu fundnar. Þetta gerðist jafn- hliða uppgreftri í rústum klaust- urkirkjunnar, sem fundust á síð- asta ári. Rannsóknir á staðnum eru nú að hefjast, en yfirskrift þeirra er Þingeyraverkefnið sem í síðustu viku var kynnt fyrir fólki í Húnaþingi. „Verkefni þetta, það er upp- gröfturinn og rannsóknir því sam- hliða, mun væntanlega taka ára- tugi. Þær vísbendingar um rústir sem sjást í könnunarholum eru mjög áhugaverðar,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og formaður stjórnar Þingeyra- verkefnisins. Þar sitja einnig Guð- rún Nordal, forstöðumaður Stofn- unar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra. Þau Ingimundur og Valgerður Valsdóttir, eiginkona hans, eru eigendur Þingeyrajarðarinnar og frumkvæði að starfinu nú er frá þeim komið. Löng rúst í holum Undirbúningur rannsóknanna á Þingeyrum hófst fyrir fáum árum þegar teknar voru loftmyndir og farið með jarðsjá um heimatúnið. Upplýsingar sem þannig fengust gáfu vísbendingar um rústir – og í holum sem teknar hafa verið sést meðal annars 23ja metra löng rúst byggingar. Styrkir sá fundur grun um að þarna hafi klausturkirkjan staðið. „Samkvæmt hefð má gera ráð fyrir að klaustrið sjálft standi við hlið kirkjunnar eins og þversnið í skurðum sem við grófum benda raunar til. Brotin eru smám sam- an að raðast saman og vísbend- ingar eru sterkar, en þó er langt í land. Ég hefði til dæmis viljað vera búin að finna gólflag bygg- inga til að greina þetta enn betur og geta fullyrt eitthvað,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir, forn- leifafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands Steinunn er í aðalhlutverki í Þingeyraverkefninu sem einn stjórnenda þess. Hún hefur mörg undanfarin ár einbeitt sér að rann- sóknum á íslenskum klaustrum og meðal annars vann hún að forn- leifauppagreftri á Skriðuklaustri í Fljótsdal í nokkur sumur. Nú er hún komin að Þingeyrum en jafn- hliða því er hún að skrifa bók um íslensk klaustur í kaþólskum sið. Þau voru alls fjórtán en starfsemi þeirra lagðist af við siðaskiptin ár- ið 1550. Eftir það féllu bygging- arnar niður og í sporin fennti. Menningarsetur og velferð Sérstaða Þingeyraverkefnis er þátttaka fólks í ólíkum fræðigrein- um í því. Þannig verður vistfræði staðarins könnuð, svo sem frjó- korn og jarðvegur, en slíkt getur varpað ljósi á vistfræðilegar að- stæður í Húnaþingi á tíma klaust- ursins sem rekið var frá 1133 til 1551, lengur en nokkuð annað á landinu. Egill Erlendsson, lektor í landfræði við Háskóla Íslands, stýrir vistfræðirannsóknunum. Bergur Þorgeirsson, forstöðumað- ur Snorrastofu, verður í forsvari fyrir rannsóknum á sagnamenn- ingu miðalda, en í Þingeyra- klaustri var Flateyjarbók rituð og ýmis fleiri íslensk handrit. Saga íslensku klaustranna er merkileg, segir Steinunn Krist- jánsdóttir. Klaustrin öll hafi verið stórar stofnanir hvar mikilvægum verkefnum var sinnt. Á Þing- eyrum, þar sem var jafnvel stærsta klaustur landsins, hafi verið um 15 munkar, en í heildina hafi á staðnum verið að minnsta kosti 50 manns, svo sem þjón- ustulið, próventufólk og fleiri. Þá hafi klaustrin íslensku verið menn- ingarsetur og sjúkrahús og þar var sinnt velferðarþjónustu í breiðri merkingu. Svartidauði eyddi og efldi „Svo virðist sem klaustrin hafi farið mjög illa út úr svartadauða sem geisaði á árunum 1402 til 1404,“ segir Steinunn. „Heimildir greina frá því að þá hafi allir munkarnir á Þingeyrum utan einn látist – og jafnvel hafi þessi mikla sótt fellt 60% íslensku þjóð- arinnar. Með DNA-forngrein- ingum á líkamsleifum sem við finnum verður þó væntanlega hægt að sjá hvað gerðist og hver dánarorsökin var. Annars virðist drepsóttin hafa orðið til að efla klaustrin til lengri tíma, því að henni afstaðinni gáfu margir allt sitt til klaustranna í von um náð og betra líf.“ Steinunn nefnir að eftir svarta- dauða hafi Litla ísöldin sem svo er kölluð gengið í garð og staðið næstu árhundruð. Kuldaskeiðið, rétt eins og svartidauði, hafi leitt af sér breytingar á skepnuhaldi, búsetu og fleiru. Ýmsum spurn- ingum í því sambandi sé þó ósvar- að, en væntanlega geti rannsóknir á Þingeyrum og niðurstöður þeirra bætt úr því. Skírskotun út fyrir Ísland „Rannsóknirnar í sumar eru að- eins ein vika, en þetta lofar góðu,“ útskýrir Steinunn og segir verkið framundan mikið og fjölbreytt. Nú þurfi meðal annars að setja kraft í að afla styrkja til rannsóknanna og verði meðal annars leitað til Fornleifasjóðs og Rannís. Einnig verði sótt um stuðning til erlendra rannsóknasjóða, enda þykja rann- sóknir þessar hafa skírskotun langt út fyrir Ísland. Rústir Þingeyraklausturs taldar fundnar  Stóru rannsóknarverkefni ýtt úr vör  Fornleifar, vistfræði og bókmenntir  Merkar vísbendingar komnar í ljós  Margra ára starf framundan  50 manns voru í klaustrinu sem starfaði um aldir Fornleifafræðingar Frá vinstri tal- ið: Scott Riddell, Helga Jónsdóttir og Vala Gunnarsdóttir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Áhugi Margir mættu að Þingeyrum til að kynna sér fornleifarannsóknina og skoða könnunarholur í túninu. Forystan Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og formaður stjórnar Þingeyraverkefnins, Steinunn J. Kristjánsdóttir fornleifafræðingur og Ingi- mundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra og eigandi Þingeyra. Þingeyrar munu að fornu og nýju ein mesta jörð á landinu, segir í ritinu Landið þitt Ísland. Þar er staðháttum og gæðum lýst svo en fyrr á öldum var þetta höfð- ingjasetur lögmanna, sýslumanna og slíkra sem í forsvari stóðu. Í niði aldanna er það þó tvímæla- laust klaustrið sem skapað hefur Þingeyrum sess, en það var hið fyrsta á Íslandi. Frá stofnun klaustursins varð þarna „... eitt af mestum menntasetrum Íslands næstu aldir á eftir,“ segir í áð- urnefndu riti. Þingeyrakirkja er vinsæll við- komustaður ferðamanna, enda um margt sérstök. Hafist var handa um byggingu hennar árið 1846 og er hún að margra mati eftirtektar- verðasta steinkirkjan á landinu. Þykir merkilegt að allt grjót í kirkj- una var sótt um langan veg. Margt fagurra listgripa prýðir kirkjuna og fanga þeir augað. Má þar til dæmis nefna málaðar stjörnunar í lofti, sem eru alls þúsund talsins. Skammt frá guðshúsinu er falleg gestastofa þar sem er aðstaða til að taka á móti fólki. Eitt af mestum menntasetrum ÞINGEYRAR ER STAÐUR GAGNA OG GÆÐA Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kirkjan Hlaðin úr grjóti og þykir vera einstakt listaverk á alla lund.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.