Morgunblaðið - 11.07.2016, Side 20

Morgunblaðið - 11.07.2016, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016 ✝ María DröfnJónsdóttir fæddist í Reykjavík þann 21. ágúst 1965. Hún lést eftir lang- varandi veikindi á Hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu á Nesvöllum í Reykja- nesbæ 3. júlí 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin María Kröyer, f. 10. nóvember 1938, d. 14. desember 1996, og Jón Páll Vilmar Guð- mundsson, f. 9. september 1935, d. 5. maí 2015. María kynntist ung sambýlis- manni sínum til margra ára, Gunnari S. Auðunssyni, og sam- an eignuðust þau börnin Guðmund Auðun, f. 2. október 1990, og Guðbjörgu Maríu, f. 8. júní 1993, hennar maki er Ingi Þór Reyn- isson. Gunnar og María slitu sam- vistum árið 2012. Systkini Maríu eru Valgerður Braun, f. 1960, gift Cal Braun, Guðmundur Ingi, f. 1962, giftur Bjarneyju Ó. Gunnarsdóttur, Íris, f. 1964, gift Gísla Harðarsyni, og Þór Viðar, f. 1973. Útför hennar fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag, 11. júlí 2016, klukkan 15. Elsku mamma okkar. Síðustu vikur hafa verið mjög erfiðar fyrir okkur öll en veikind- in þín voru farin að segja til sín, líkaminn orðinn þreyttur og löng barátta þín á enda. Við skiljum vel að þú hafir ekki getað meir enda hefur þú barist við hindr- anir lífsins í svo langan tíma. Við dáumst að því hversu sterk þú varst og við huggum okkur við það að nú ert þú farin á betri stað og sameinuð foreldrum þínum. Þú varst svo sterk og falleg persóna og þú þurftir að yfirstíga svo margar hindranir í lífinu en gerðir það með æðruleysi og miklum krafti. Við eigum svo margar góðar minningar sem við munum aldrei gleyma heldur munu þær vera í hjarta okkar alla tíð. Þú hafðir svo gaman af því að elda og þér fannst gaman að prófa að gera nýja rétti. Stundum voru eldaðir tveir réttir á kvöldin svo allir væru glaðir. Það lýsir þínum persónuleika svo vel að þú settir alltaf alla aðra í forgang og þú vildir að allir yrðu ánægðir. Síðustu ár eyddir þú svolitlum tíma í að mála myndir og erum við svo heppin að eiga þær. Fyrir nokkrum árum var haldin hand- verkasýning á Nesvöllum þar sem nokkrar af myndum þínum voru sýndar. Stoltið skein svo af þér og þú varst svo glöð. Við vor- um líka ótrúlega stolt af þér og munum alltaf vera það. Þetta var ótrúlega góður dagur sem situr í minni okkar. Við hittum marga sem hrósuðu myndunum þínum og þær munu skreyta okkar veggi um ókomna tíð. Þú varst okkar stuðnings- maður númer eitt, þú mættir á alla leiki og öll mót, keyrðir okkur á allar æfingar og sást til þess að allt væri á hreinu. Dag- urinn þinn var gjörsamlega sniðinn að okkar dagskrá og gerðirðu allt í þínu valdi til að gera okkur hamingjusöm. Við verðum þér ævinlega þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og allt sem þú kenndir okkur og við erum svo stolt að hafa átt þig sem mömmu okkar og þakklát fyrir þennan tíma sem við áttum saman. Það skipti engu máli hvað við tókum okkur fyrir hendur, þú studdir okkur alltaf jafn mikið. Við munum sakna þín alla daga, elsku mamma, og okkur verkjar að vita til þess að þú færð ekki að fylgja okkur lengur í gegnum lífið en við lofum þér því að lifa lífinu til fulls og halda minningu þinni á lofti. Við hlökk- um til þess að segja börnunum okkar frá þér því þú varst með svo fallegt hjarta og gafst svo mikið af þér. Við vitum að þú munt fylgja okkur hvert skref. Við elskum þig svo mikið, mamma, hvíldu í friði. Þín börn Guðmundur Auðun og Guðbjörg María. Okkar yndislega systir hefur nú kvatt okkur alltof ung, en veikindi hennar náðu loksins yf- irhöndinni þegar hún lést þann 3. júlí. Nú er komið að kveðjustund og með nokkrum orðum langar okkur að minnast okkar yndis- legu systur, hennar Mæju. Á þessari stundu rifjum við systkinin upp margar yndislegar minningar frá barnæsku þar á meðal í Kinnunum og á Kletta- hrauni þar sem við brölluðum ýmislegt saman, æskuminningar sem ljóma. Við vorum mjög sam- heldin enda ekki langt á milli okkar eldri systkina í árum og svo pössuðum við öll vel upp á þann yngsta. Við áttum þar ótelj- andi góðar stundir og góða áhyggjulausa æsku. Mæja átti góðan vinkonuhóp og tilheyrði hún allavega tveim saumaklúbb- um sem hún hafði yndi af að mæta í. Við áttum öll svo frábær- ar stundir saman. Þegar við fjölskyldan fluttum til Calgary í Kanada í lok árs 1981 þá kom það sér vel fyrst um sinn að vera svona samrýmd og náin. Mæja fór í High School ekki tal- andi mikla ensku en útskrifaðist síðan einu og hálfu ári síðar með verðlaun fyrir framúrskarandi ár- angur. Að námi loknu ákvað Mæja að fara heim til Íslands og vinna í nokkra mánuði áður en hún færi í framhaldsnám. En hún ílengdist eftir að hún og Gunni endurnýjuðu kynni sín. Þau hófu sambúð fljótlega eftir þetta og eignuðust sín tvö yndislegu börn, Guðmund Auðun og Guðbjörgu Maríu. Í apríl 1994 hrundi hennar heimur eins og hún þekkti hann þegar hún fékk heilablóðfall að- eins 29 ára gömul, sem var þvílíkt áfall fyrir okkur öll og þá sérstak- lega fyrir Gunna og börnin þeirra sem voru rétt tæplega eins árs og fjögurra ára. María hóf þvílíka baráttu til að komast til heilsu aftur og tókst henni það með ótrúlegum árangri með þvílíkri elju og þrjósku. Öll fjölskyldan hennar báðum megin lagðist á eitt að hjálpa og studdu þau eins og hægt var fyrsta árið á meðan hún var meira og minna í end- urhæfingu á Grensás og á Reykjalundi. Við eigum öll yndislegar minn- ingar um góða stúlku sem lifði fyrir börnin sín og gerði allt sem í hennar valdi stóð og studdi hún dyggilega við bakið á þeim. Þeg- ar það fór að halla verulega und- an fæti hjá henni þá tóku þau við að hugsa um móður sína og gerðu það vel. Síðastliðin ár voru erfið þar sem líkaminn gaf sig mjög hratt en dugnaðurinn í henni var ótrúlegur. Hún var alltaf bros- andi út að eyrum þegar við kom- um í heimsókn til hennar og það þurfti ekki mikið til að gleðja hana. Iðulega komum við með eitthvað gott að borða handa henni eða elduðum saman með henni og að sjálfsögðu var mar- engsterta oft í eftirrétt. Líf þitt var þrautarganga síð- astliðin ár, elsku systir, en þú tókst því með jafnaðargeði og kvartaðir aldrei. Þín verður sárt saknað. Minning þín er ljós í lífi okkar. Hvíl í friði. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum.(H.J.H.) Íris, Vala, Ingi, Þór og fjölskyldur okkar. Elsku María mín. Einhvern veginn grunaði mig á föstudagskvöldið að þetta væri í síðasta skipti sem ég sæi þig á lífi. Þakka fyrir að ég kyssti þig á ennið og mikið var erfitt á leið- inni út frá þér. Þetta er svo óréttlátt og sorg- legt að þú sért farin en í leiðinni er ég þakklát. Lífið var þér erf- itt síðustu ár og þú fékkst hvíld- ina. Ég þakka fyrir góðu og skemmtilegu stundirnar okkar saman í gegnum tíðina. Bæði úr Hafnarfirði sem skólasystur og svo tókum við upp þráðinn þegar ég flutti í Keflavík . Það var alltaf notalegt að kíkja á þig í morgunkaffi á Kirkjuveg- inum. Þú lifðir fyrir börnin þín tvö og heimilið. Þín verður sárt saknað og sendi ég Guðbjörgu, Guðmundi og ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Hörpu þinnar ljúfa lag lengi finn í muna. Því ég minnist þín í dag, þökk fyrir kynninguna. (Á.K.) Anna Helga Gylfadóttir. Í dag kveð ég þig, yndislega vinkona, og ég veit að eftir erfið veikindi ertu núna komin á betri stað. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku María mín, takk fyrir allt. Þín vinkona Guðrún. María Dröfn Jónsdóttir ✝ Sveinn MagniDaníelsson fæddist á Akureyri 1. júní 1934. Hann andaðist á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 3. júlí 2016. Foreldrar Sveins Magna voru hjónin Sigríður Guð- mundsdóttir frá Dæli í Fnjóskadal, f. 1903, d. 1985, og Daníel Krist- insson frá Kerhóli í Sölvadal, f. 1902, d. 1987. Systur Sveins Magna eru Halla Daníelsdóttir, f. 1938 og Auður Daníelsdóttir, f. 1947. Sveinn Magni kvæntist 28. mars 1959, Fanneyju Dóru Krist- mannsdóttur, f. 1.2. 1932. For- eldrar Fanneyjar voru Kristmann Runólfsson frá Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd, f. 1886, d. 1954, og Þuríður Ingibjörg Klemens- dóttir frá Minni-Vogum á Vatns- leysuströnd, f. 1888, d. 1968. Börn Sveins Magna og Fanneyjar eru: 1) Ingibjörg, f. 1955. 2) Sigurður Daníel, f. 1959, d. 2002. Börn: a) Sveinn Fannar, f. 1993, b) Freyr Brynjólfur Sveinsson, f. 1975. Þau eiga þrjú börn; Bjarklindi Ástu, Bjarna Guðjón og Ingþór Bjarka. c) Gretar Óli, f. 1983. Sambýliskona Berglind Jónasar- dóttir, f. 1986. Þau eiga þrjú börn; Helenu Ýr, Kristófer Mána og óskírða stúlku. Uppeldissonur Sveins Magna og sonur Fanneyjar úr fyrra sambandi er Birgir Þór Sig- urbjörnsson, f. 1950. Eiginkona hans er Kristín Haraldsdóttir, f. 1952. Börn: a) Gunnar, f. 1974, d. 2000. Móðir Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, f. 1952. b) Árni Þór, f. 1978. Eiginkona Guðbjörg Jónmunda Pétursdóttir, f. 1975. Þau eiga tvö börn; Lilju Ósk og Kristínu Eyju. c) Berglind, f. 1984. Eiginmaður Páll Ingi Ingj- aldsson, f. 1984. Þau eiga tvö börn; Söndru Björk og Birgi Inga. d) Karen, f. 1992. Sveinn Magni ólst upp á Akur- eyri. Hann stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri og lauk síðan skipstjórnarprófi frá Sjómannaskólanum í Reykjavík. Hann fluttist til Reykjavíkur upp úr tvítugu þar sem hann kynntist Fanneyju sem varð hans lífs- förunautur. Sveinn Magni stund- aði sjómennsku mestalla ævina, fyrst á fiskiskipum og síðan á kaupskipum Eimskipafélagsins. Jarðarförin fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 11. júlí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Saputra, f. 1995. Móðir þeirra er Erika E. Indaryanti, f. 1970. 3) Vignir, f. 1964, kvæntur Önnu Hauksdóttur, f. 1965. Börn: a) Anna Lind, f. 1990. Sambýlismaður Björn Sævar Björnsson, f. 1990. Þau eiga Emilíu Lind. Anna á einnig Daníel Mána, faðir Sindri Sig- urðsson, f. 1990. b) Fanney Lilja, f. 1992. Sambýlismaður Bjarni Heiðar Halldórsson, f. 1986. Barn þeirra er Halldór Vignir. 4) Rósa, f. 1967. Eiginmaður Ágúst Heimir Ólafsson, f. 1967. Börn: a) Daníel, f. 1996 b) Þórður, f. 1998. Sonur Sveins Magna úr fyrra sambandi er Ingþór Arnar, f. 1956. Móðir hans er Birna Sig- urvinsdóttir, f. 1931, d. 2015. Sambýliskona Ingþórs er Ásta Þórsdóttir, f. 1956. Börn: a) Vign- ir Arnar, f. 1974. Sambýliskona Hulda Mekkín Hjálmarsdóttir, f. 1969. Þau eiga þrjú börn; Egil Má, Arnar Val og Katrínu Rós. b) Anna María, f. 1978, eiginmaður Ég kveð elskulegan tengdaföð- ur minn og vin, Svein Magna. Þar fer góður drengur, ástkær afi drengjanna minna. Við kynnt- umst í Hjallaselinu fyrir 30 árum þegar ég fór að venja komur mín- ar þangað að gera hosur mínar grænar fyrir dóttur hans. Ég man vel hversu hrifinn ég var af Rósu og líka hversu vel mér líkaði við foreldra hennar. Margar minningar koma upp í hugann þegar horft er til baka. Sérstaklega man ég eftir ferð sumarið 1988 með Svenna og dætrum hans, Ingibjörgu og Rósu. Við gistum á Rauðamýri hjá foreldrum mínum en Svenni naut þess að vera í sveitinni, hvort heldur var við veiðar eða berja- tínslu. Síðan var ferðinni heitið norður í land og tjaldað og grillað á hverju kvöldi. Kvöld eitt var áð við Mývatn í sólskini og mikilli hita- mollu. Ég og stelpurnar skriðum inn í tjaldið, gátum ekki verið úti fyrir bitmýi, en tengdapabbi kveikti upp í grillinu og stóð yfir því hulinn af mýi en haggaðist hvergi. Kom síðan inn með þessa líka dásamlega steik, hann lét sér fátt um finnast mýgerið sem var allt um kring meðan hann grillaði. Tengdapabbi var sannarlega góður kokkur. Hann naut þess að elda og frægastar eru fiskibollurnar hans, þvílíkt bragð! Árlegar veiðiferðir okkar vestur í Hvannadalsá í Djúpi eru mér afar minnisstæðar. Ferðir sem skildu eftir margar yndislegar minningar um samverustundir með þessum góða dreng. Eitt sinn vorum við að ljúka veiðum fyrir vestan og höfð- um veitt vel eins og oft. Við ákváðum að henda nokkrum flugu- köstum yfir fljótið í kveðjuskyni, ekki of mörgum þar sem við vorum á leiðinni í Stykkishólm þar sem Rósa beið okkar. Í þriðja kasti kom höggið, og þvílíkt högg! Laxinn kom uppúr, tók fluguna á yfirborði vatnsins og keyrði niður í hylinn af miklu afli. Þetta er alvöru fiskur, sagði Sveinn og það var sannarlega rétt. Við skiptumst á að takast á við fiskinn en viðureignin tók níu klukkustundir, loks sigraði þessi silfraði höfðingi og hvarf í hylinn með fluguna í munnvikinu til minn- ingar. Daginn eftir sást til risafisks í Árdalsfossi sem átti fáa sína líka. Oft höfum við tengdapabbi yljað okkur við að rifjað upp þessa mögnuðu klukkutíma, minningu sem ekki gleymist. Löngu eftir að hann var kominn með Alzheimer þá tókst hann allur á loft og brosti sínu breiðasta þegar ég rifjaði upp söguna af risanum í Hvannadaln- um. Sveinn var alltaf tilbúinn að hjálpa. Þegar drengirnir okkar Rósu, Daníel og Þórður, voru litlir þá kom hann iðulega í Básbryggj- una og vakti yfir þeim ef við brugð- um okkur af bæ. Þegar við hringd- um kom strax svarið „Já ég kem“. Drengjunum líkaði afar vel að afi kæmi að passa þá, það var bara gaman. Það er komið að leiðarlokum. Ég sendi öllum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur og þakka fyrir allar minningar um samveru með Sveini og fjölskyldu. Ég minnist þín í vorsins bláa veldi er vonir okkar stefndu að sama marki, þær týndust ei í heimsins glaum og harki, og hugann glöddu á björtu sumarkveldi. Þín sál var öll hjá fögrum lit og línum, og ljóðsins töfraglæsta dularheimi. Þú leiðst í burt frá lágum jarðarseimi, í ljóssins dýrð, á hugar vængjum þínum. Ég sakna þín, ég syrgi farinn vin, í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfir heimsins dægur-glys. Á horfna tímans horfi ég endurskin, ég heyri ennþá glaða, þýða róminn, frá hreinni sál með hárra vona ris. (Steinn Steinarr.) Hvíl í friði, vinur. Ágúst Heimir Ólafsson. Elsku afi. Það er skrítin tilfinning að hugsa til þess að þú sért farinn, eft- ir löng veikindi er svo óraunveru- legt að þetta sé búið, og þú sért ekki lengur meðal okkar. Sam- bland af sorg og létti fyllir hjarta mitt. Fréttirnar af andláti þínu tóku meira á mig en ég bjóst við. Síðustu ár hafa verið erfið, og á meðan minnið hvarf frá þér leyfði maður sér heldur ekki að hugsa nógu mikið um minningarnar held- ur að halda áfram og sætta sig við kominn hlut, njóta tímans. Síðan ég fékk símtalið um að þú værir búinn að kveðja okkur hef ég eytt meiri tíma í að hugsa um minn- ingarnar og manninn áður en veik- indin herjuðu á. Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en núna hversu rosalega mikið ég sakna þín, og hvað ég hef saknað þín lengi. Minn- ingarnar hellast yfir og söknuður- inn og sársaukinn er mikill. En það er svo gott að leyfa sér loksins að minnast þessa yndislega manns, afa míns. Sem barn bjó ég ekki nálægt ömmum mínum og öfum. En ég man alltaf hversu skemmtilegt var að koma til Reykjavíkur og alltaf var mest spennandi að fara á Laugaveginn og að heimsækja ömmurnar og afana mína. Mér fannst alltaf jafn gaman að koma í Kópavoginn, enda gat maður alltaf treyst á rólegt og þægilegt and- rúmsloft, langt og gott spjall, skemmtilegar sögur og kennslu- stund á hljómborðið. Það var alltaf gott að hitta afa, því að ástin og gleðin yfir að hitta mann sást alltaf í augunum á honum og hlýjunni sem stafaði frá honum, og faðmlög- in alltaf svo innileg. Enda var hann einstaklega hlýr og ljúfur maður. Honum fannst fátt skemmti- legra en að vera með fulla sjón- varpsstofu af börnum, hoppandi úr gluggakistunni á rúmið, vaggandi í lazy boy stólunum og spjallandi um Sveinn Magni Daníelsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, VALBORG JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR frá Neskaupstað, lést á hjúkrunardeild FSN. Hún verður jarðsungin í Norðfjarðarkirkju miðvikudaginn 13. júlí klukkan 14. . Ólafur Hauksson, Svala Guðjónsdóttir, Sigurbergur Hauksson, Álfdís Ingvarsdóttir, Þór Hauksson, María Kjartansdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN HÖRÐUR INGÓLFSSON tannlæknir, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 7. júlí. Útförin fer fram föstudaginn 15. júlí kl. 13 frá Bústaðakirkju í Reykjavík. . Þórey S. Guðmundsdóttir, Ingólfur Kristjánsson, Jón Egill Kristjánsson, Sigurður Kristjánsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.