Morgunblaðið - 11.07.2016, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016
ÞorvarðurFannarÓlafsson,
sölumaður hjá
Myllunni og skák-
maður, er 44 ára í
dag, en þennan
dag, einmitt fyrir
44 árum, hófst ein-
vígi aldarinnar í
Laugardalshöll
milli Fischers og
Spasskís.
Þorvarður er
virkur þátttakandi
á skákmótum en
teflir minna á
sumrin. „Ég tefli
samt alltaf eitthvað
á netinu, en það er
mun minna af mót-
um á sumrin. Það
væri þá helst ef
maður færi eitt-
hvert út að tefla,
síðast tefldi ég er-
lendis 2012.“ Þorvarður hefur þrisvar teflt í landsliðsflokki á Skák-
þingi Íslands, síðast 2010, og er með í kringum 2.200 skákstig. „Helsta
afrekið hjá mér, hingað til, var sigur á Skákþingi Reykjavíkur árið
2009 og ég hef hæst náð 2.266 stigum.“
Auk skákarinnar er Þorvarður mikill fótboltaáhugamaður. „Ég var
mjög ánægður með Evrópumótið og himinlifandi yfir árangri Íslands.
Árangur strákanna var framar björtustu vonum. Ég fylgist töluvert
með íslenska boltanum. Grindavík er mitt lið enda er ég uppalinn þar.
Ég bjó lengi í Hafnarfirði og er nokkuð hliðhollur FH-ingum. Svo er
ég harður Liverpool-maður í enska boltanum.“
Þorvarður hefur unnið hjá Myllunni í 19 ár, lengst af í dreifingunni
en byrjaði í söludeildinni 1. maí. „Ég hef mikinn áhuga og metnað fyr-
ir nýja starfinu en tek kannski eitthvert sumarfrí í haust,“ segir hann
spurður um hvort hann taki frí á næstunni.
Þorvarður er í sambúð með Imeebelle Sif Mortola, sem er frá
Filippseyjum, en hún vinnur í kökudeild í Myllunnar. Foreldrar Þor-
varðar eru Ólafur Rúnar Þorvarðarson kennari og Kristín Jónsdóttir.
„Ég hélt matarboð fyrir fjölskylduna á laugardaginn en ætla að
taka því rólega eftir vinnu í dag,“ segir Þorvarður að endingu,
spurður hvað hann ætli að gera í tilefni dagsins.
Skákmaðurinn Þorvarður Ólafsson.
Ánægður með ný-
liðið Evrópumót
Þorvarður Fannar Ólafsson er 44 ára
G
ylfi fæddist í Reykjavík
11.7. 1966 og ólst þar
upp í Vesturbænum.
Hann var í Vesturbæj-
arskóla, Hagaskóla,
lauk stúdentsprófi frá MR 1986, við-
skiptafræðiprófi frá HÍ 1990, stund-
aði nám í hagfræði við Yale Univers-
ity, lauk þaðan MA-prófi 1991,
M.Phil-prófi 1994 og doktorsprófi,
Ph.D. í hagfræði, 1997.
Gylfi starfaði á sumrin hjá Vega-
gerð ríkisins á menntaskólaárunum
1982-85, var blaðamaður við Morgun-
blaðið sumrin 1986-90, stundakenn-
ari við MS 1988-90, aðstoðarkennari
við Yale University 1992-95, sérfræð-
ingur við Hagfræðistofnun HÍ 1996-
98, stundakennari og aðjunkt við við-
skipta- og hagfræðideild HÍ 1996-98
og hefur verið dósent við deildina, nú
viðskiptafræðideild, frá 1998.
Gylfi var viðskiptaráðherra utan
þings 2009 og efnahags- og viðskipta-
ráðherra 2009-2010. Hann var for-
maður viðskiptaskorar HÍ 2000-2004,
forseti viðskipta- og hagfræðideildar
HÍ 2004-2006, formaður stjórnar
sjóða á vegum HÍ 2001-2009 og aftur
frá 2011, var varaformaður stjórnar
Kaupáss hf. 2000-2003, sat í stjórn
Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræðideild HÍ – 50 ára
Stór fjölskylda Gylfi og Hrafnhildur á göngu með börnunum, með Akrafjallið, Skarðsheiðina og Esjuna í baksýn.
Fimm barna faðir með
mikla ljósmyndadellu
Morgunblaðið/Heiddi
Blaðamannafundur Gylfi á ráðherraárum, ásamt Jóhönnu og Steingrími.
Emma Tómasdóttir og Þórhildur Helga Pálsdóttir söfnuðu 4.500 kr. með því að
selja dótið sitt í Miðbæ á Háaleitisbraut og vildu styðja börnin í Sýrlandi í gegn-
um Rauða krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isRau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Einstakar perlur eftir íslenska myndlistarmenn
Vefuppboð nr. 228
Opið virka daga kl. 10–18
Sumarperlur
Uppboðinu lýkur 13. júlí
Tolli
Louisa Matthíasdóttir Kristín Gunnlaugsdóttir
Jóhannes S. Kjarval
Kristján Davíðsson
Gunnlaugur Blöndal