Ægir - 01.08.2015, Síða 12
12
„Við höfum unnið eftir þeim
áætlunum sem við lögðum
upp með, gert þær breytingar
sem við ætluðum okkur þegar
við tókum við og það hefur allt
gengið vel upp,“ segir Rúnar
Björgvinsson framkvæmda-
stjóri Íslensks sjávarfangs. Fé-
lagið keypti fyrr á árinu fast-
eignir Útgerðarfélagsins Vísis
á Þingeyri, sem og tæki og
búnað til fiskvinnslu. Stefnt
var að því við gerð kaupsamn-
inga að fjölga störfum við fisk-
vinnslu á staðnum og vinna og
frysta þar að lágmarki 2.000
tonn af fiski á ári. Markmið
samninga var einnig að við-
halda og efla atvinnulíf á Þing-
eyri og fékk Íslenskt sjávar-
fang 400 tonna byggðakvóta
Byggðastofnunar sem ætlaður
var til uppbyggingar atvinnu-
lífs þar. Íslenskt sjávarfang er
ein af öflugri fiskvinnslum
landsins með ríflega 140
manns í vinnu.
Gríðarleg verðlækkun á makríl
Rúnar segir að í sumar hafi
makrílvinnslan verið alls ráð-
andi hjá fyrirtækinu á Þingeyri.
Verðlækkun á makríl, um 30%
miðað við það verð sem fékkst í
fyrrasumar hefur sett strik í
reikninginn. Hún kom m.a. til
vegna viðskiptabanns sem
Rússland setti á Ísland og fleiri
lönd og felur í sér bann við
flutningi matvæla frá þessum
löndum til Rússlands. Miklir erf-
iðleikar í efnahagslífi Nígeríu
með tilheyrandi gjaldeyrisskorti
skipta þar einnig máli.
„Það munar auðvitað veru-
lega um það þegar tveir af
stærstu mörkuðum okkar
lokast. Við þurfum að finna
markað fyrir okkar afurðir, það
tekur tíma að finna nýjan mark-
að fyrir svo mikið magn sem við
Íslendingar erum að framleiða,
það er ekki hlaupið að því.
Markaðurinn í Rússlandi lokað-
ist nokkuð skyndilega þannig
að það gafst ekki tóm til að
finna annan í hans stað á sam-
bærilegum verðum,“ segir Rún-
ar.
Í bolfiskvinnslu
Síðustu mánuði, eða frá því í lok
sumars hefur bolfiskur verið
unninn á Þingeyri; þorskur, ýsa
og ufsi og gengið vel að sögn
Rúnars. Félagið hefur tryggan
afla, veiði hefur verið góð það
sem af er vetri og ekki fallið úr
Áætlanir Íslensks sjávarfangs á Þingeyri hafa gengið eftir
Starfsfólki hefur fjölgað
og atvinna er stöðug
„Hér er vinna hvern einasta dag og við höfum fjölgað starfsfólki talsvert frá því sem var, nú starfa hjá okkur 32
á Þingeyri, líkt og við stefndum að þegar við tókum við rekstrinum,“ segir Rúnar. Á myndinni má sjá úr-
vinnslu aukaafurða, þ.e. þeirra afurða sem eftir verða þegar hnakkastykkið hefur verið skorið úr flakinu.
Eigendur Íslensks sjávarfangs, frá vinstri: Hannes Þór Jónsson, Ólafur
Þröstur Ólafsson, Rúnar Björgvinsson og Johanna Maria Marzec.
V
estfirðir
V
estfirðir