Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 15
15
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun
og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna
sem tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum
alltaf meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
www.matis.is
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu
umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og
þjónustu
... bæta lýðheilsu
og hún komi frá Vestmannaeyj-
um,“ segir Halldór. Hann segir
að á þessum markaði gildi það
eins og á mörgum öðrum
mörkuðum með sjávarafurðir
að lykilatriðið séu gæði og jöfn
og trygg afhending vörunnar
árið um kring. Þess vegna skipti
öllu máli gott aðgengi fyrirtæk-
isins að fersku hráefni.
Aðeins lítið brot af fram-
leiðslunni fer til neyslu hér á
landi. „Við seljum aðeins af síld
og „Masago“ til heildsala sem
hefur síðan dreift vörunum inn
á veitingastaði, t.d. sushiveit-
ingastaði.“
Marhólmar hafa að sögn
Halldórs í stórum dráttum
byggst upp eins og upp var
lagt með en hann segir það
ekkert launungarmál að horft
sé til þess að stækka fyrirtækið
hægt og bítandi. „Sígandi lukka
er best í þessu eins og mörgu
öðru,“ segir Halldór Þórarins-
son.
Á nýafstaðinni sjávarútvegssýningu í Quingdao í
Kína var Ísland með þjóðarbás en Íslendingar hafa
tekið þátt í þessari sýningu frá upphafi, þ.e. í 20
ár. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í Asíu
og tóku 1300 fyrirtæki frá 46 löndum þátt í henni.
Sýninguna sóttu í ár um 25.000 gestir og lagði
mikill fjöldi fólks leið í íslenska básinn alla þrjá
sýningardagana.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráð-
herra, var sérstakur heiðursgestur á sýningunni
en auk Íslandsstofu stóðu Iceland Pelagic, HB
Grandi, Tríton, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
og Icelandic að baki Íslandsbásnum.
Á vef Íslandsstofu segir að millistéttin í Kína
hafi meira fjárráð en áður og hafi komið fram í
neyslukönnunum að Kínverjar eyða nú stærri
upphæðum í matvæli og þá sérstaklega í sjávaraf-
urðir. Þetta skapi aukin tækifæri fyrir útflutning á
íslensku sjávarfangi til Kína.
Sjávarútvegssýningin í Kína í 20. sinn
Fjöldi gesta á sýningunni í Quingdao lagði leið sína í íslenska básinn.