Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2015, Side 19

Ægir - 01.08.2015, Side 19
19 Finnmerkur í Noregi án þess að hafa farið í rekstur á Norðfirði,“ segir Smári. Engu að síður var þarna að hefjast uppgangstími norskra hvalveiðifyrirtækja á Ís- landi sem náði hápunkti um og upp úr aldamótunum og lauk árið 1915 þegar lög um bann við stórhvalaveiðum tóku gildi. „Með 10 ára einkaleyfi Svend Foyn á sinni tækni gat hann skammtað öðrum aðgang að veiðum í Noregi og gætt þess að ekki yrði of þröngt á hvalamiðunum við Finnmörku. Honum leist hins vegar ekkert á blikuna þegar leið að því að einkaleyfi hans rynni út og það skýrir komu hans til Íslands, en hingað hafði hann komið áður til að skoða veiðar Bandaríkja- mannanna. Hann og aðrir hval- veiðimenn í Noregi voru því að horfa til nýrra miða þar sem í ofveiði stefndi heima fyrir.“ Vestfirði og Austfirðir vettvangur hvalstöðvanna Norðmenn náðu fljótt góðum tökum á veiðum við Ísland og önnur norsk stöð bættist við ár- ið 1889 og síðan fjölgaði stöðv- unum hratt. Smári segir að þær hafi verið 9 talsins þegar mest var og 32 hvalveiðibátar. Hval- veiðar Norðmanna voru í upp- hafi tímabils þeirra frá hval- stöðvum á Vestfjörðum og voru þær staðsettar í Önundarfirði, Dýrafirði, Tálknafirði, Hesteyrar- firði Veiðileysufirði og Seyðis- firði, auk Álftafjarðar sem áður var nefndur. Fljótlega tóku bátar þeirra að sækja á mið úti fyrir Norðurlandi og síðar aust- ur fyrir land. Þegar fjarlægðin frá hvalstöðvunum var orðin svo mikil var brugðið á það ráð að koma upp sérstökum söfn- unarstöðum og nota síðan öfl- ug gufuskip til að draga stórar trossur af hval vestur á firði. Þetta gátu verið allt upp í 20 hvalir í einni trossu. Þetta skýrir þá þróun sem varð rétt eftir aldamótin að sum norsku fyrir- tækjanna tóku stöðvar sínar niður fyrir vestan og fundu þeim nýja staði á Austfjörðum, nær veiðisvæðunum. Norsku stöðvarnar voru á Asknesi við Mjóafjörð, í Hamarsvík við Mjóafjörð, á Svínaskálastekk við Eskifjörð og Sveinsstaðaeyri við Hellisfjörð. Loks byggði þýskt félag stöð á Fögrueyri við Fá- skrúðsfjörð en stærstur hluti starfsmanna var norskur. „Ég held að fólk nú til dags geri sér almennt ekki grein fyrir stærðargráðu þessarar atvinnu- starfsemi. Ef við tökum sem dæmi stöðina á Asknesi við Mjóafjörð, þá stærstu hér fyrir austan, þá unnu um 200 manns við hana og þegar flest var gerðu þeir út 9 báta frá stöðinni með 10 manna áhöfn á hverj- um bát. Þessu til viðbótar til- heyrðu stöðinni bæði flutninga- og dráttarskip. Með öðrum orð- um; á fjórða hundrað manns til- heyrðu aðeins þessari einu stöð,“ segir Smári. Fáar íslenskar vinnuhendur á lausu Vinnuaflið í hvalstöðvunum kom að stærstum hluta frá Nor- egi og segir Smári nokkuð aug- ljósar skýringar á því. „Stærstu félögin tvö, þ.e. Ellefsen sem var fyrst í Önundarfirði og síðan á Asknesi í Mjóafirði og Victor- félagið sem var fyrst í Dýrafirði og síðan í Hamarsvík í Mjóafirði, voru reyndar lengstum með nokkra tugi Íslendinga í vinnu Gesti hefur borið að garði í hvalstöðinni á Asknesi í Mjóafirði og að sjálfsögðu stilla þeir sér upp til myndatöku á flensiplani stöðvarinnar. Hvalstöðin á Langeyri við Álftafjörð. Hún var upphaflega reist árið 1883 og með tilkomu hennar hófst hið svokallaða norska hvalveiðitímabil á Ís- landi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.