Ægir - 01.02.2016, Qupperneq 10
10
„Í öllum aðalatriðum hefur
verkefnið gengið eftir eins og
væntingar stóðu til. Eins og við
mátti búast í svona þróunar-
verkefni hafa fengist á þessu
fyrsta ári í útgerð skipsins með
þessum búnaði svör við ýmsum
spurningum og nýjar vaknað
sem ekki sáust fyrir. En það
meginatriði að gera skipið út
án þess að notaður sé ís til kæl-
ingar hefur gengið eftir,“ segir
Gylfi Guðjónsson, útgerðar-
stjóri FISK Seafood á Sauðár-
króki en eitt ár er nú liðið síðan
fyrirtækið breytti frystitogara
sínum, Málmey SK, í ískfiskskip.
Það sem frábrugðið er öðrum
slíkum í flotanum er að enginn
ís er notaður til kælingar um
borð heldur er vinnslukerfi
skipsins þannig upp byggt að
fiskurinn er kældur niður í mín-
us eina gráðu áður en hann fer
niður í lest og þar helst hann í
því hitastigi og raunar allt þar
til aflinn er unninn í landi.
Úr frystingu í ofurkælingu
Vinnslubúnaður skipsins er
hannaður og smíðaður af fyrir-
tækjunum Skaganum hf. á
Akranesi og 3X Tecnology á Ísa-
firði og er um að ræða þriggja
þrepa kælikerfi, svokallaða Ro-
tex blóðgunar- og kælitanka frá
3X Tecnology og ofurkælingar-
tækni sem Skaginn hefur þróað
fyrir flakavinnslu á síðustu ár-
um. Markmiðið með aukinni og
betri kælingu hráefnisins úti á
sjó er fyrst og fremst sú að auka
hráefnisgæðin og skapa þannig
meiri tækifæri í gæðafram-
leiðslu fyrir landvinnsluna.
Hjá FISK Seafood hf. á Sauð-
árkróki eru að stærstum hluta
framleidd léttsöltuð þorskflök
fyrir Spánarmarkað en auk þess
er í vinnslu fyrirtækisins unnið
úr ufsaafla Málmeyjar en aðrar
tegundir eru seldar á fiskmörk-
uðum. Afli Málmeyjar SK var á
síðasta ári 6.300 tonn, þ.e. frá
því skipið hóf veiðar í byrjun
febrúar eftir breytingar og fram
til áramóta. Af þessum afla voru
4.300 tonn þorskur.
Minna los í fiskinum
„Bæði hefur aðgerðarlínan um
borð virkað mjög vel, sem og
kælingin á fiskinum. Hráefnið
hefur verið mjög gott í vinnsl-
unni, fiskurinn verið stífur og
Góð reynsla af
ofurkælingunni
í Málmey SK
Gylfi Guðjónsson, útgerðarstjóri FISK Seafood.
Ú
tg
erð