Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2016, Síða 20

Ægir - 01.02.2016, Síða 20
20 „Fiskeldi mun vaxa hér á landi næstu áratugi. Það er margt sem styður þá framtíðarsýn; þróun matvælaeftirspurnar í heiminum, umhverfisleg sjónarmið, atvinnusköpun og margt fleira,“ segir Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Landssambands fiskeld- isstöðva. Vöxtur atvinnugreinarinnar er mikill um þessar mundir og birtist meðal annars í umtalsverðri fjölgun starfa en á síðasta ári fjölgaði beinum störfum í greininni um 20%. Að meðtöldum af- leiddum þjónustustörfum eru ársverk í fiskeldi hér á landi nú um 560 og fyrirséð að bæði beinum og afleiddum störfum mun fjölga á komandi árum og áratugum. Hundruð ársverka og fer fjölgandi Við því er að búast að fram- leiðsla í fiskeldi aukist um 20- 30% á þessu ári, byggt á tölum um þann lífmassa sem er nú í sjókvíum- og landeldi. Fyrir- tækjum í greininni er að fjölga, þau eru að stækka og störf verða til við eldið sjálft, sem og slátrun og afurðavinnslu. „Það er hógvært mat að bein störf í eldisfyrirtækjunum verði komin yfir 400 í árslok miðað við á framleiðsluaukn- ingu sem er í farvatninu í grein- inni. Og aukinni framleiðslu fylgja aukin umsvif á öllum sviðum stoðþjónustunnar og þar vísa ég til t.d. fóðurfyrir- tækja, netagerða, eftirlitsstofn- ana, dýralæknaþjónustu, há- skólastofnana, verkfræðistofa og ráðgjafafyrirtækja af ýmsu tagi, sölu- og markaðsfyrir- tækja. Fiskeldi stendur því sannarlega fyrir eflingu íslensks atvinnulífs um þessar mundir,“ segir Guðbergur. „Hlutfallslega er mest fjölg- un starfa í afurðavinnslunni hjá fiskeldisfyrirtækjunum en eldið sjálft er ekki mannaflsfrekt. Það er mjög misjafnt milli fyrirtækja hvort þau eru sjálf með vinnslu eða fá vinnslufyrirtæki til að vinna afurðina og ganga frá henni til sölu hér heima eða til Störfum í fiskeldi fjölgaði um 20% á síðasta ári og ekkert bendir til annars en þeim fjölgi talsvert á yfirstandandi ári, samhliða aukinni framleiðslu. Áratuga vöxtur fiskeldis framundan Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldis- stöðva. F isk eld i

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.