Ægir - 01.02.2016, Side 28
28
„Sá vélbúnaður sem Valka þróaði og setti upp í nýrri vinnslu ÚA á
Akureyri á síðustu mánuðum er á margan hátt ný kynslóð af hvít-
fiskvinnslubúnaði frá okkur. Þarna erum við að stíga skrefinu
lengra í tækni, vinnslumöguleikum og sjálfvirkni,“ segir Ágúst Sig-
urðarson, markaðstjóri hátæknifyrirtækisins Völku ehf. í Kópavogi.
Fyrirtækið hefur á undanförnum árum kynnt tæknibúnað til
vinnslu á hvítfiski og má segja að vatnsskurðarvél sé þar lykill að
meiri afköstum á hráefni, betri nýtingu og meiri gæðum. Skurðar-
vélin frá Völku sem komin er í notkun í ÚA segir Ágúst vera þá full-
komnustu sem fyrirtækið hefur framleitt en auk hennar hannaði
Valka og setti upp afurðaflokkun og fleiri tæknilausnir í nýju húsi
ÚA. Ágúst segir umtalsverða gerjun í hvítfiskvinnslu á Íslandi um
þessar mundir og hið sama megi raunar segja um löndin hér í Vest-
ur-Evrópu.
„Í vatnsskurðarvélinni í ÚA
erum við að auka enn við afköst
og nákvæmni, vélin býður upp
á talsvert meiri möguleika í
bitaskurði, allt eftir því hvað
kaupendur vilja fá. Við getum
þannig skorið flakið að vild,
bæði lóðrétt og með halla.
Myndgreiningarbúnaður vélar-
innar er líka enn fullkomnari og
til að mynda erum við með
bæði leit að beinum fyrir og eft-
ir bitaskurð. Vélin sker beingarð
sjálfvirkt úr flaki og fjarlægir
hann, auk þess hún sker svo-
kallað gátubein, öðru nafni
þunnildisbein úr flökunum. Það
sparar vinnuþátt í forsnyrtingu,
eykur vinnsluhraða og bætir
nýtingu. Vélin í ÚA sameinar því
margar af nýjustu tæknilausn-
um sem Valka hefur þróað að
undanförnu,“ segir Ágúst.
Bitum stýrt sjálfvirkt í
mismunandi pökkun
Eins og áður segir snúast tækni-
nýjungar Völku í vinnslu ÚA
ekki aðeins um vatnsskurðar-
vélina sjálfa heldur einnig af-
urðaflokkunar- og pökkunar-
kerfi sem taka við bitunum eftir
skurðinn.
„Frá vatnsskurðarvélinni og
myndgreiningarbúnaði hennar
höfum við upplýsingar um
hvern einasta bita sem skorinn
er, stærð hans og þyngd. Þessar
upplýsingar nýtum við til að
stýra bitunum inn á afurðaleið-
ir. Sumir bitar fara inn á laus-
frysti, aðrir í ferska pökkun, enn
aðrir í umbúðapökkun og svo
framvegis. Allt gerist þetta með
sjálfvirkum hætti og þetta er
kerfi sem hvergi er annars stað-
ar að finna í fiskvinnslum. Í
þessum hluta vinnslunnar, líkt
Ný kynslóð vatnskurðarvéla frá Völku
„Hvítfiskvinnslan að færast
fram um áratugi í tækni“
segir Ágúst Sigurðarson, markaðsstjóri
Ágúst Sigurðarson, markaðsstjóri
Völku.
Dæmi um flókið skurðarmynstur sem er mögulegt að skera í vél Völk.