Ægir - 01.02.2016, Síða 29
29
og á öðrum sviðum hennar,
skiptir nákvæmnin öllu máli því
nokkurra gramma þyngdar-
munur á bitum getur ráðið inn
á hvaða afurðaleið þeim er
stýrt. Með öðrum orðum erum
við að flokka með mun meiri
nákvæmni en hægt væri að
gera með sjónrænum hætti og
handstýringu,“ segir Ágúst.
Hvítfiskvinnslan að vinna upp
tækniforskot laxavinnslunnar
Sjálfvirkni er inntak allrar þró-
unar tæknilausna hjá Völku og í
ferskfiskpökkun ÚA má glögg-
lega sjá þetta. Eftir að fiskur fer í
skurðarvélina kemur manns-
höndin nánast ekki við hann
ferilinn á enda. Vélbúnaður
leggur fiskbitana í kassa, færi-
bönd skila þeim áfram í vigtun,
merkingu og stöflun á bretti.
Allt sjálfvirkt.
„Þróunin í ÚA hefur verið
okkar stærsta verkefni að und-
anförnu en að okkar mati höf-
um við með tæknilausnum skil-
að hvítfiskvinnslu vel fram á
veginn tæknilega. Með þessum
búnaði er hún komin upp að
hlið laxavinnslunnar hvað sjálf-
virkni varðar. Hvítfiskfinnslan
hefur verið 20-30 árum á eftir
laxinum tæknilega og er að
vinna það hratt upp,“ segir
Ágúst en það er ekki aðeins í
landvinnslum sem vatnsskurð-
artæknin er að ryðja sér rúms
því Valka er að afhenda tvær
slíkar í frystitogara sem eru í
smíðum, þ.e. frystitogara fyrir
norska útgerðarfyrirtækið
Ramoen og síðan frystiskip
Ramma hf. í Fjallabyggð. Það
fyrrnefnda er í smíðum á Spáni
en skip Ramma hf. í Tyrklandi.
Bæði verða þau tekin í notkun í
árslok.
„Fyrir okkur verður mjög
spennandi að fá reynslu af
vatnsskurðarvélum úti á sjó og
áskorun fyrir okkur að takast á
við þetta umhverfi. Bitaskurður
mun opna nýja möguleika í sjó-
vinnslunni, líkt og landvinnsl-
unni og við vitum af áhuga hjá
útgerðum frystiskipa á verkefn-
inu,“ segir hann.
Tækifæri í Evrópu og Ameríku
Hjá Völku skynja menn mikinn
áhuga á tæknilegri framþróun í
hvítfiskvinnslunni hér á landi
og segir Ágúst að hann ein-
skorðist ekki aðeins við stærri
vinnslurnar heldur einnig þær
minni. Enda breyti bitaskurður-
inn vinnsluumhverfinu, auki
afkastagetu, möguleika í af-
urðasölu og svo framvegis.
Valka kynnti á dögunum lausn-
ir sínar á sjávarútvegssýning-
unni í Boston og mun einnig
taka þátt í sjávarútvegssýning-
unni í Brussel í lok apríl.
„Við fundum áhuga í Boston
og bindum vonir við sýninguna
í Brussel. Það er gerjun í hvít-
fiskvinnslunni í Vestur-Evrópu,
hún er að færast á ný frá Kína
og eflast í Noregi, Eystrasalts-
löndunum, Póllandi, Danmörku
og víðar. Við teljum því mikil
tækifæri vera framundan,“ segir
Ágúst.
Beingarður fjarlægður sjálfvirkt.
Mynd úr „næstu kynslóð“ vatnsskurðarvélar Völku.