Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2016, Page 30

Ægir - 01.02.2016, Page 30
30 „Verkefnið er alltaf að gera góðar vélar enn betri og þá erum við að horfa til margra þátta, bæði afkasta vélanna og getu þeirra, nýt- ingar hráefnis, jafnframt því sem miklu máli skiptir hvernig útlit vörunnar er þegar flökin koma úr flökunarvélunum. Þetta er þáttur sem enn meira er horft til með aukinni vinnslu á ferskvörumark- aði,“ segir Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri fiskvinnsluvélafram- leiðandans Curio í Hafnarfirði en fyrirtækið byggir að stærstum hluta starfsemi sína á sölu vélbúnaðar fyrir fiskvinnslu á erlendum mörkuðum. Curio framleiðir flökunarvélar, hausara, roðflettivélar og brýningarvélar og var á nýafstaðinni sjávarútvegssýningu í Bo- ston í Bandaríkjunum í fyrsta sinn með eigin bás. Þar var nýjasta gerð af roðflettivél frá Curio sýnd í fyrsta sinn. Góðar viðtökur vestra „Við fengum mjög góðar við- tökur í Boston en við höfum verið að auka sölu á Bandaríkja- markaði, bæði á austur- og vesturströndinni. Stærsta varan okkar á þessum markaði eru flökunarvélarnar en höfum einnig selt hausara og roðfletti- vélar vestur um haf og þessari Curio í Hafnarfirði Ný roðflettivél kynnt í Boston Unnið við flökunarvél frá Curio. Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.