Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2016, Page 31

Ægir - 01.02.2016, Page 31
31 nýjustu roðflettivél okkar var sýndur mikill áhugi á sýning- unni. Við bindum því miklar vonir við þennan markað,“ segir Elliði. Nýja Curio C2031 er tveggja brauta roðflettivél, af- kastamikil vél sem vel hentar í meðalstórar og stærri fisk- vinnslur þar sem unnið er úr umtalsverðu magni af fiski. „Vélin er byggð á tölvustýr- ingu og í henni er ný gerð af roðflettivalsi sem hannaður er til að ráða einnig vel við við- kvæmt hráefni og los í fiskhold- inu,“ segir Elliði en fyrstu vél- arnar af þessari gerð eru að fara til kaupenda á Íslandi þessa dagana. Vinnsla að færast til baka frá Kína Merkjanlegur vöxtur og hreyf- ing er á íslenska fiskvinnsluvéla- markaðnum þessi misserin. Auk hefðbundinnar og reglulegrar endurnýjunar á búnaði hafa landvinnslur einnig þróað hröð- um skrefum vinnslutækni sína í takti við auknar áherslur á út- flutning á ferskum afurðum, líkt og Elliði nefndi áður. Elliði segir að íslenski markaðurinn standi að baki um 15% af starfsemi Curio en vöxtur er nú einnig á markaði fyrir vélbúnað fyrirtæk- isins í öðrum löndum Evrópu. „Það er verið að loka mörg- um fiskvinnslum í Kína sem byggt hafa á vinnslu hráefnis héðan úr Evrópu, t.d. frá Noregi. Skýringarnar eru fleiri en ein, t.d. launaþróun í Kína, orku- kostnaður, vatnsnotkun í vinnslunum og fleira. En ekki síður að stórmarkaðir eru marg- ir farnir að rauðmerkja vörur úr þessum vinnslum vegna þess hversu mikill flutningur með til- heyrandi umhverfisáhrifum er að baki vörunni. Þetta er vara sem hefur kannski verið flutt 40 þúsund kílómetra áður en hún kemur á neytendamarkað og er merkt sem slík,“ segir Elliði. Með öðrum orðum er fiskvinnsla því að flytjast til baka frá Kína til Evrópulanda og þess sést t.d. stað í uppbyggingu land- vinnslufyrirtækja í Noregi, Pól- landi, baltnesku löndunum og víðar. Elliði segir þessu fylgja tækifæri fyrir Curio ehf. „Við finnum mjög verulega fyrir þessari þróun og skynjum umtalsverð tækifæri framundan því samfara henni í öllum þess- um löndum. Því til viðbótar verður einnig vöxtur í Ameríku samfara því að veiðistofnar eru að styrkjast á ný, t.d. í Kanada. Allt skiptir þetta okkar fyrirtæki umtalsverðu máli og skapar tækifæri í starfsemi fyrirtækisins hér á landi,“ segir Elliði. Unnið við flökunarvél frá Curio.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.