Ægir - 01.03.2016, Page 30
30
Niðurstöður stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem gerðar
voru nú í febrúar og mars undirstrika sterka stöðu þorskstofnsins.
Stofnvísitala þorsks mældist annað árið í röð sú hæsta frá upphafi
og útbreiðsla þorsks var mikil. Rannsóknir benda einnig til að
árangur ýsu frá 2014 sé sterkur. Mælingarnar, sem alla jafna ganga
undir nafninu marsrallið, voru nú framkvæmdar í 32. sinn en auk
skipa Hafrannsóknastofnunar tóku togararnir Bjartur NK og Ljósa-
fell SU þátt í þeim. Markmið með mælingum á þessum árstíma eru
þau helst að fylgjast með breytingum á stærð, útbreiðslu og líf-
fræðilegu ástandi botnlægra fiskistofna og hitastigi sjávar á land-
grunninu. Togað var á tæplega 600 stöðvum allt í kringum landið.
Niðurstöður marsrallsins eru gefnar endanlega út í júní, samhliða
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um aflamark næsta fiskveiðiárs.
Meira af stærri þorski
Útbreiðsla þorsks var meiri en í
mörgum fyrri stofnmælingum í
mars og góður afli fékkst á
stöðvum allt í kringum landið.
Mest fékkst af þorski utarlega á
landgrunninu, frá Víkurál norð-
ur og austur um að Hvalbaks-
halla. Stofnvísitala þorsks
mældist svipuð og fyrir ári síð-
an. Vísitölur síðustu tveggja ára
eru þær hæstu frá upphafi
rannsóknanna árið 1985, meira
en tvöfalt hærri en árin 2002-
2008.
Hækkun vísitölunnar má
einkum rekja til aukins magns
af stórum þorski. Í ár var vísitala
allra lengdarflokka stærri en 45
cm yfir meðaltali alls rann-
sóknatímabilsins, en minna
mældist af 25-40 cm þorski
sem rekja má til lítils árgangs
frá 2013. Árgangur 2014 mæld-
ist stór líkt og í síðustu stofn-
mælingu og fyrsta mat á 2015
árgangi bendir til að hann sé
einnig stór.
Meðalþyngd 5 ára þorsks og
yngri mældist undir meðallagi,
en um eða yfir meðallagi hjá
eldri fiski.
Magn fæðu í þorski var með
því mesta sem sést hefur í tvo
áratugi. Þar munar mestu um
loðnu sem var langmikilvæg-
asta bráð þorsksins eins og
ávallt á þessum árstíma.
Mikið var af loðnu í mögum
þorsks út af Breiðafirði, Vest-
fjörðum, Húnaflóa við Norð-
austurland og suðurströndina.
Af annarri fæðu má helst nefna
kolmunna, síld, síli og ýmsar
tegundir fiska og krabbadýra.
Annar stór ýsuárgangur í
sjónmáli
Stofnvísitala ýsu hækkaði veru-
lega á árunum 2002-2006 í kjöl-
far góðrar nýliðunar og aukinn-
ar útbreiðslu norður fyrir land.
Góður þorskafli fékkst á togstöðvum í rallinu, allt í kringum landið.
Þorskustofninn sterkur
og vísbendingar um við-
spyrnu ýsustofnsins
F
isk
istofn
a
ra
n
n
sók
n
ir