Ægir - 01.12.2016, Side 9
9
Pantað í gegnum heimasíðuna
„Ég er alltaf með einhvern
mann með mér í bílnum. Við
þurfum að vera tveir til að
skiptast á við aksturinn og svo
að taka við greiðslu, ýmist pen-
ingum eða kortum. Svona hefur
þetta gengið. Fólk pantar svona
í 95% tilfellum í gegnum
heimasíðuna okkar, en það er
helst eldra fólkið sem vill
hringja til að panta og stundum
koma pantanir í bréfapósti,“
segir Guðbjörn.
Þegar pantanir eru færðar
inn fá kaupendur strax staðfest-
ingu í gegnum heimasíðuna og
síðan bréf í pósti skömmu fyrir
ferð og SMS í símanum sama
dag og aksturinn hefst. Fólk er
því vel upplýst um það hvenær
fiskbíllinn er á ferðinni.
„Veltan á ári hefur verið í
kringum 3 milljónir sænskar,
um 50 milljónir íslenskar. Af
fiski er ég að selja 7 til 8 tonn á
ári. Fólk er að kaupa í stærri
pakkningum eins og sjófrystan
fisk í 9 kílóa öskjum, en fyrir
þremur árum byrjaði ég með 5
kílóa pakkningar af línufiski fyr-
ir þá sem eru með litlar fjöl-
skyldur eða eru einhleypir.“
Mest keypt af Nesfiski
Fiskinn kaupir Guðbjörn að
mestu frá Nesfiski. „Þeir eru frá-
bærir bæði hvað varðar gæði
og á allan hátt mjög gott að
eiga við þá viðskipti. Bergþór
Baldvinsson, framkvæmdastjóri
fær allar góðar óskir frá mér. Ég
kaupi líka frá Grími kokki ýmsar
afurðir sem þeir eru ekki með í
Garðinum eins og fiskistauta,
ferska skötu, plokkfisk og fleira.
Þá kaupi ég frá mínum góða
vini Elvari Reykjalín í Ektafiski á
Hauganesi ýmis konar saltaðar
afurðir og reyktan fisk. Frábærar
vörur. Kaupendur hjá mér eru
almennt mjög ánægðir með af-
urðirnar frá þessum aðilum.
Svo hef ég líka verið að
kaupa lambakjöt frá Norð-
lenska á Akureyri og frá Slátur-
félaginu. Ég versla svo við allar
sælgætisgerðirnar og ölgerðina
og kaupi annars staðar ýmsar
aðrar vörur. Íslenskar klassískar
vörur eins og brauðrasp, van-
illudropa, pítusósu, piparost og
ýmislegt sem ekki fæst úti.“
Hvað er svo eftirsóttast hjá
Guðbirni? „Sjófrysti fiskurinn í 9
kílóa öskjunum var alltaf vin-
sælastur, en fimm kílóa öskjurn-
ar með línufiskinum hafa sótt
mikið á. Fólki líkar vel að fá fiski-
stykkin pökkuð hvert fyrir sig í
öskjunni. Þeir sem hafa verið í
sjófrysta fiskinum halda sig
mikið við hann áfram, þar á
meðal ég. En þessar tvær
pakkningar eru um 68% af allri
sölunni.
Salan er svolítið árstíða-
bundin. Í páskaferðinni eru
páskaeggin númer eitt. Fyrir jól-
in er það hangikjötið, malt og
appelsín, konfekt og kæsta
skatan fylgir aðeins með. Ég er
svo með mjög góða humarhala
af stærstu gerð frá Humarsöl-
unni. Ég byrjaði með þá fyrir
tveimur árum og er humarinn
mjög eftirsóttur, þó hann sé dýr
vara. Ég er líka með saltkjöt sem
ég salta sjálfur en ég er mat-
reiðslumeistari að mennt.“
Selur Svíum morgunkorn
og harðfisk
Góð viðskipti með góða vöru
spyrjast út og ánægður við-
skiptavinur er besta auglýsing-
in. „Ég fæ viðskiptavini mína að-
allega í gegnum aðra viðskipta-
vini, þetta gengur svona frá
manni til manns. Í dag eru um
30% af viðskiptavinunum Svíar
og Danir og það er aðallega
fiskurinn sem þeir kaupa. Sumir
Svíar hafa líka komist á bragðið
með harðfiskinn og kaupa hann
villt og galið hjá mér. Ég reyni
að vera með það sem er vinsæl-
ast og ekki er til hér úti. Allt er
íslenskt hjá mér nema Coco-
puffs og Lucky Charm og hun-
angs seríos, sem ekki fæst
hérna,“ segir Guðbjörn Elísson.
SÉRHÆFT NÁM
Hagnýtt eins árs nám hjá Fisktækniskóla Íslands
í samstarfi við Matvælaskóla Sýnis, Marel, Hólaskóla
og starfandi fyrirtæki í greininni.
Boðið er upp á þrjár námsbrautir:
• Fiskeldi
• Gæðastjórnun
• Marel-vinnslutækni
Náminu er skipt upp í tvær annir. Kennt er í dreifinámi
og staðarlotum sem hentar starfandi fólki í greininni.
Inntökuskilyrði
Hafa lokið námi í fisktækni eða sambærilegu námi.
Mat á reynslu og þekkingu úr sjávarútvegi getur einnig
gilt til að uppfylla inntökuskilyrði.
Nánari upplýsingar
Fisktækniskóli Íslands • Víkurbraut 56 • 240 Grindavík
Sími 412 5966 • info@fiskt.is • www.fiskt.is og á Facebook
Vorönn 2017