Ægir - 01.12.2016, Page 48
48
Átta nemendur útskrifast úr Marel fisktækni hjá Fisktækniskóla Íslands
Hagnýtt og spennandi nám fyrir
starfsmenn í sjávarútvegi
Margar fiskvinnslur eru í dag
með fullkomnar skurðar- og
vinnslulínur, tæki og hugbúnað
til framleiðslustýringar. Marel
og Fisktækniskóli Ísland bjóða
upp á hagnýtt eins árs nám,
Marel fisktækni og var námið
unnið í nánu samstarfi við fisk-
vinnslufyrirtæki. Því er skipt
upp í fagbóklegar greinar og
verknám sem fer fram bæði á
vinnustað og hjá Marel Ísland.
Ásdís V. Pálsdóttir, verkefna-
stjóri hjá Fisktækniskólanum
segir námið ganga út á að nem-
endur læri um sem flesta þætti
er snúa að tækjabúnaði frá Mar-
el. Farið sé í grunnundirstöðuat-
riði í tækjum og búnaði, mikil-
vægi eftirlits og umsjónar og
læra nemendur einnig hvaða
eftirlit þurfi með tækjabúnaði
og öllum þeim kerfum innan
Innova sem stýri tækjabúnaðin-
um. Nemendur fræðast jafn-
framt um þær kröfur sem fisk-
vinnslufyrirtæki gera til að ná
hámarks afköstum og nýtingu
út úr hverju tæki fyrir sig.
Beinn ávinningur fyrir
vinnslufyrirtækin
Ásdís segir á ávinningnum
megi lýsa á þann hátt að Marel
vinnslutæknirinn geti afgreitt
mörg viðfangsefni á staðnum
og þannig þurfi ekki að kalla
Marel-sérfræðing á vettvang.
Vinnsluhlé sem kunni að koma
upp vari því styttra og afköst
verði sem þessu nemur meiri.
Sem skili minni kostnaði fyrir
vinnsluna.
„Þekking Marel fisktækna
auðveldar einnig samskipti milli
starfsmanna í þjónustu Marels
og vinnslunnar og síðast en
ekki síst er gott fyrirbyggjandi
viðhald sem dregur úr stoppum
í vinnslunni og bætir afkomu
fyrirtækja,“ segir Ásdís en átta
nemendur útskrifuðust á dög-
unum hjá skólanum úr Marel
fisktækni.
Nemendur úr öllum áttum
„Nemendur koma úr öllum átt-
um í námið, t.d. beint úr fisk-
vinnslunámi frá okkur eða eru
starfandi í fiskvinnslum, þá ann-
aðhvort sem verkstjórar eða
vélstjórar. Fyrirtæki sjá sér hag í
að senda starfsmenn sína í nám
á sinn kostað. Við erum fullviss
um að fiskvinnslur hafi ávinning
af því að hafa slíka starfsmenn
innan sinna raða og að þeir
nemendur sem ljúka náminu
verði eftirsóttir starfsmenn hjá
fiskvinnslufyrirtækjum. Námið
hentar vel vinnandi fólki í grein-
inni,“ segir Ásdís en hjá Fisk-
tækniskólanum eru veittar frek-
ari upplýsingar um námið.
Nemendahópurinn sem úrskrifaðist á dögunum úr Marel fisktækni, ásamt starfsmönnum Fisktækniskóla Íslands og Marel hf.
F
réttir