Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sumarið hefur verið mjög hlýtt
það sem af er. Þetta er niðurstaða
Trausta Jónssonar veðurfræðings
sem tekið hefur saman yfirlit yfir
mánuðina júní til ágúst. Til sumar-
mánaðanna telst einnig september
og hann hefur einnig farið vel af
stað. Þó lítur út fyrir að heldur
kólni í veðri þegar líða tekur að
næstu helgi.
Meðalhiti í Reykjavík í mán-
uðunum júní til ágúst á þessu ári
var 11,7 stig og hefur aðeins þrisv-
ar verið hærri frá upphafi sam-
felldra mælinga árið 1871 segir
Trausti. Það var 2010, 2003 og
2012. Af 10 hlýjustu sumrum í
Reykjavík eru átta frá þessari öld,
aðeins 1880 og 1939 skjótast inn á
þann topplista.
Hlýtt í Stykkishólmi
Á Hveravöllum er sumarið í
þriðja hlýjasta sæti, því fimmta
hlýjasta í uppsveitum Suðurlands,
áttunda hlýjasta í Stykkishólmi og
sama sæti á Teigarhorni í Beru-
firði. Þess má geta að þetta er 171.
sumar hitamælinga í Stykkishólmi.
Sumarið er í ellefta hlýjasta sæti
á Egilsstöðum en hefur staðið sig
einna síst að tiltölu á Akureyri þar
sem það er í 21. sæti, meðalhitinn
þar í sumar var þó 11,0 stig.
Sumarið nú kemur vel út í sam-
anburði við sumarið í fyrra, 2015.
Meðalhiti í Reykjavík mánuðina
júní til ágúst það ár var 10,4 stig.
Á Akureyri var meðalhiti mán-
aðanna þriggja 9,1 stig og höfðu
þessir mánuðir ekki verið kaldari á
Akureyri síðan 1993.
Sumarið 2016 hefur verið í þurr-
ara lagi um landið sunnan- og
vestanvert; í Reykjavík er úrkom-
an um 76 prósent af meðallagi og
72 prósent í Stykkishólmi. Úr-
komudagar eru einnig færri en í
meðalári. Norðanlands hefur úr-
koma víða verið í ríflegu meðallagi,
24 prósent umfram meðallag á
Akureyri.
Þó sumarið hafi verið fremur
þurrt syðra, sker það sig þó ekki
sérstaklega úr miðað við það sem
algengt hefur verið á síðari árum.
Frá 2009 til 2015 var úrkoma í
Reykjavík í júní til ágúst t.d. fimm
sinnum jafnlítil eða minni en nú,
en aðeins tvisvar meiri, segir
Trausti.
Í Reykjavík mældust 564 sól-
skinsstundir í sumar; það eru tæp-
lega 80 stundir umfram meðallag
sömu mánaða 1961 til 1990, en 14
færri en að meðaltali síðustu tíu
ára. Á Akureyri mældust sólskins-
stundir þessara þriggja mánaða
449 stundir og er það um 50 stund-
um færra en að jafnaði í sömu
mánuðum síðustu tíu ára. Sumarið
í fyrra var einnig sólríkt í Reykja-
vík en að sama skapi sólarlítið á
Akureyri.
Á landsvísu var sumarið það
hægviðrasamasta frá 2003 að telja,
segir Trausti.
Sumarið hefur verið í fremstu röð
Af 10 hlýjustu sumrum sem mælst
hafa í Reykjavík eru 8 frá þessari öld
Morgunblaðið/Ómar
Sólardagur á Austurvelli Sumarið hefur verið afar hagstætt til útivistar í höfuðborginni og fólk hefur nýtt sér það.