Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 27
dæmi 1968-71, stúdentasambands VÍ
1982-86 og Stúdentafélags Íslands
1969-70, stjórnarformaður samstarfs-
nefndar atvinnurekenda í sjávar-
útvegi 1989-93, Fransk-íslenska
verslunarráðsins 1990-93, formaður
Bresk-íslenska verslunarráðsins
1999-2001 og VSÍ 1992-95.
Magnús hefur skrifað greinar í
blöð og tímarit um þjóðfélags- og
sjávarútvegsmál, var ritstjóri Stúd-
entablaðsins 1968 og tímaritsins
Eimreiðarinnar 1971-76.
Magnús var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1992 og var
konsúll Belgíu á Íslandi 2004-2011.
„Ég kynntist konunni minni í skát-
unum og við erum búin að sigla í
gegnum lífið í meira en 50 ár en erum
búin að vera gift í 48 ár. Ég hef feng-
ist við ýmislegt um ævina og hef verið
einstaklega lánsamur með fjölskyldu,
samstarfsfólk og vini, sem eru marg-
ir, búnir að vera í sambandi frá skóla-
árunum. Síðustu rúmlega 20 árin hef
ég starfað og búið að mestu erlendis
við ráðgjöf í tengslum við sölu og
leigu á flugvélum, hreyflum og vara-
hlutum.
Ég á jörðina Urriðaá á Mýrum og
fer vonandi að dvelja þar meira en ég
hef gert hingað til.“
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Gunn-
hildur Gunnarsdóttir, f. 2.2. 1946,
snyrtifræðingur. Foreldrar hennar:
Hólmfríður Einarsdóttir húsfreyja
og Gunnar Sigurgeirsson verkamað-
ur. Fósturforeldrar Hólmfríðar:
Aðalheiður Einarsdóttir aðstoðar-
sjúkraþjálfari og Ottó Oddsson
verkamaður.
Börn Magnúsar og Gunnhildar eru
Aðalheiður, f. 19.6. 1969, hönnuður í
Reykjavík, gift Sigurbirni Þorkels-
syni verkfræðingi, og Gunnar Krist-
inn, f. 3.11. 1973, framkvæmdastjóri í
Kópavogi, kvæntur Kötlu Kristjáns-
dóttur tæknifræðingi. Barnabörnin
eru átta talsins, Þorkell Sigurbjörns-
son, Magnús Gunnar Sigurbjörnsson,
Viktor Sigurbjörnsson, Kristján
Gunnarsson, Gunnhildur Sigur-
björnsdóttir, Gunnhildur Hekla
Gunnarsdóttir, Lilja Guðrún Gunn-
arsdóttir og Mist Sigurbjörnsdóttir.
Systur Magnúsar eru Valdís Lína
Viktoría Gunnarsdóttir, f. 12.2. 1948,
hjúkrunarfræðingur, og Kristín, f.
8.5. 1953, skrifstofumaður.
Foreldrar Magnúsar: Kristín
Valdimarsdóttir, f. 21.5. 1925, d. 3.6.
2012, húsfreyja í Reykjavík, og Gunn-
ar Magnússon, f. 25.9. 1921, d. 14.1.
2015, skipstjóri í Reykjavík.
Hjónin Magnús og Gunnhildur að
kvöldlagi í Hong Kong.
Úr frændgarði Magnúsar Gunnarssonar
Magnús
Gunnarsson
Hafliði Jónsson
b. á Haugi í Flóa, síðar grafari í Rvík,
systursonur Guðmundar Einars-
sonar í Miðdal, afa Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal, föður Erró
og langafa Vigdísar Finnbogadóttur
fyrrv. forseta Íslands
Vilborg Guðnadóttir
húsfr. á Haugi í Flóa og í Rvík
Kristín Hafliðadóttir
saumakona í Rvík
Magnús Jóhannsson
skipstj. og fórst með bv.
Jóni forseta, búsettur í Rvik
Gunnar Magnússon
skipstj. á Seltjarnarnesi Margrét Björnsdóttir
húsfr. á Borðeyri
Jóhann Jón Magnússon
húsm. á Borðeyri
Auðbjörg Árna-
dóttir húsfr. í
Rvík og á Ísafirði
Árni Ingimund-
arson klæðskeri,
húsasmiður og
bæjarfulltr. á
Akranesi
Valdimar Jörgensson
bifvélavirki
Guðrún Hafliðadóttir
húsfr. í Rvík
Vilborg G. Kristjáns-
dóttir fyrrv. ritari hjá
forseta Íslands
Kristján Jóhannsson
rekstrarhagfr. í Rvík
Jóhann Magnússon skipstjóri seinna
yfirhafnsögumaður í Reykjavík
Sverrir Magnússon
skipasmiður
Ólafur K. Magnússon
ljósmyndari á Morgunblaðinu
Hafliði Magnússon
kjötiðnaðarmaður
Jóhanna María
Guðmundsdóttir
húsfr. í Tjarnarkoti
Guðmundur Vigfússon
b. í Tjarnarkoti á Stokkseyri
Viktoria Guðmundsdóttir
saumakona í Rvík
Valdimar Árnason
vélstj. fórst með bv. Leifi
heppna, búsettur í Rvík
Kristín Valdimarsdóttir
húsfr. í Rvík
Oddbjörg Pálsdóttir
húsfr. í Auðstungu
Árni Þórðarson
b. í Auðstungu í Biskupst.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
Erla Stefánsdóttir fæddist 6.9.1935 og ólst upp í Reykjavík.Hún var einkadóttir og kjör-
dóttir foreldra sinna, Salome Pálma-
dóttur, hjúkrunarkonu frá Skálavík
og Stefáns Jónssonar, prentsmiðju-
stjóra frá Kambi í Reykhólasveit.
Árið 1960 giftist Erla Erni Guð-
mundssyni tannlækni en þau skildu
síðar. Börn Erlu og Arnar eru Sal-
óme Ásta, Sigþrúður Erla og Stefán
Örn.
Erla stundaði nám í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og Kennaraskóla
Íslands og lauk söngkennaraprófi.
Hún starfaði lengst af sem píanó-
kennari heima við, í Tónmenntaskól-
anum í Reykjavík og við Tónlistar-
skólann í Kópavogi.
Erla varð þekkt fyrir að sjá heim-
inn og náttúruna í alveg sérstöku
ljósi, allt frá barnæsku. Hún var virk-
ur þátttakandi í Guðspekifélaginu og
Sálarrannsóknarfélaginu og hóf að
segja frá skynjunum sínum þar, eftir
að fjölskyldan flutti heim frá Bergen
í Noregi 1976, eftir þriggja ára dvöl
þar. Frásagnir Erlu af sýnum hennar
af álfum og öðrum duldum náttúru-
verum urðu að námskeiðum árið 1982
sem síðan varð kveikjan að félags-
skapnum Lífssýn.
Á námskeiðunum var farið yfir
gerð og þroskabraut mannsins og
umhverfi hans í öllum sínum víddum.
Hundruð Íslendinga sóttu námskeið
hennar og fór hún einnig með hópa til
Norðurlandanna.
Árið 1993 kom út fyrsta álfakortið
af byggðum huliðsheima í Hafnar-
firði. Síðar komu út kort af álfa-
byggðum á Ísafirði og Akureyri, álfa-
kort af Elliðaárdalnum, í umsjá
Kolbrúnar Oddsdóttur landslags-
arkitekts eftir leiðbeiningum Erlu,
og í fyrra kom út kort af orkustöðv-
um Íslands. Kortin voru unnin til að
auka næmi fólks fyrir náttúrunni,
umhverfi, dýrum og duldum vættum.
Fyrir áratug kom út bók Erlu, Lífs-
sýn mín, þar sem hún segir frá skynj-
un sinni af árum fólks og annarri
dulrænni reynslu sinni.
Erla lést 5.10. 2015.
Merkir Íslendingar
Erla
Stefánsdóttir
95 ára
Böðvar Gíslason
90 ára
Jóhanna M. Þorgeirsdóttir
Ólína Tómasdóttir
85 ára
Guðlaug K. Runólfsdóttir
Jónas Hallgrímsson
Margrét P. Baldvinsdóttir
80 ára
Árni Þorsteinn Árnason
Grétar Kjartansson
Jón Böðvarsson
Sigurlín Sesselja Óskarsd.
Örn Ingólfsson
75 ára
Ása Aðalsteinsdóttir
Bolli Magnússon
Borghildur H. Florentsd.
Elínborg Jónsdóttir
Guðm. H. Guðmundsson
Sigurbjörn Stefánsson
Skafti Þórisson
Þórunn Jónsdóttir
70 ára
Árni Sigurðsson
Björgvin Jónasson
Gísla Vigfúsdóttir
Guðný M. Guðmundsdóttir
Guðrún Ásgeirsdóttir
Gunnar Þór Gunnarsson
Hjördís Jónsdóttir
Jóhann Salómon Gunnarss.
Magnús Gunnarsson
Rannveig Bjarnadóttir
Sesselja Guðjónsdóttir
Svana Aðalbjörnsdóttir
60 ára
Björn Lúðvík Magnússon
Guðjón Sveinn Valgeirsson
Guðríður Anna Eyjólfsdóttir
Gyða Kristinsdóttir
Hilda Gerd Birgisdóttir
Hjörtur Márus Sveinsson
Margrét Óskarsdóttir
Sigrún Hulda Steingrímsd.
50 ára
Birtna Björnsdóttir
Eiríkur Björn Björgvinsson
Elma Vagnsdóttir
Helga Bára Magnúsdóttir
Hulda Gísladóttir
Jorge H.F. Toledano
Jónas Jónmundsson
Kristín Bogadóttir
Kristófer Jacobson Reyes
Matthías Skúlason
Oddur Kr. Guðmundsson
Ólafur Guðlaugsson
Sif Þórsdóttir
Sigríður Brynja Hilmarsd.
Soffía Reynisdóttir
Valgeir Harðarson
40 ára
Eggert Sæmundsson
Elías Árni Jónsson
Gísli Steinar Ingólfsson
Guðjón Ármann Halldórss.
Kristín Andrea Þórðardóttir
Lilja Jakobsdóttir
Margrét Kolbrún Jónsdóttir
Ragnar Hilmarsson
Sigurjón Jónsson
Valgerður Birgisdóttir
Vilhjálmur Þór Arnarsson
30 ára
Andrés Garðar Andrésson
Aneta Spiewak
Ágústa Ýr Hafsteinsdóttir
Bryndís Erlingsdóttir
Guðmundur Karl Gautason
Ingibjörg E. Sigurðardóttir
Jón Ágúst Þorsteinsson
Sif Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Elías er frá Höfn í
Hornafirði en býr í Vest-
mannaeyjum. Hann er
fjármálastjóri hjá fisk-
þurrkuninni Löngu ehf.
Maki: Ingibjörg Jóns-
dóttir, f. 1969, aðstoð-
arskólastjóri í Eyjum.
Börn: Hannes Hólm, f.
1995, Jón Kristinn, f.
2001, og Elísa, f. 2004.
Foreldrar: Jón Halldór
Bjarnason, f. 1949, gull-
smiður, og Elísabet Elías-
dóttir, f. 1949, d. 2013.
Elías Árni
Jónsson
40 ára Gísli er Reykvík-
ingur, er með MSc.-gráðu
í félagsfræði frá London
School of Economics og
starfar við markaðs-
rannsóknir hjá Gallup.
Maki: Sesselja Sigurð-
ardóttir, f. 1980, lögfr. í
utanríkisráðuneytinu.
Sonur: Sindri Desay, f.
2003.
Foreldrar: Áslaug Gísla-
dóttir, f. 1956, og stjúp-
faðir er Guðmundur Æ.
Jóhannsson, f. 1951.
Gísli Steinar
Ingólfsson
40 ára Ragnar býr í
Reykjavík og er kerfis-
fræðingur hjá Annata.
Maki: Rósa Kristín Stef-
ánsdóttir, f. 1974, bókari
hjá Virtus.
Börn: Alex Viktor, f. 1994,
og Birta Steinunn, f.
1999.
Foreldrar: Hilmar Sig-
urðsson, f. 1947, við-
skiptafræðingur, og Hall-
gunnur Skaptason, f.
1948, vinnur í móttökunni
í turninum í Smáranum.
Ragnar
Hilmarsson
Eilíft ljósbrot,
sígild fegurð
Sérfræðingar í demöntum
Íslensk hönnun
og smíði
Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
jonogoskar.is