Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6
-2
4
9
4
Dagskrá
• Ávarp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, um stöðu verkefnisins
og nýtt „Mælaborð“ velferðarráðuneytisins um húsnæðismál.
• Breytingar á byggingareglugerð með tilliti til lítilla íbúða og smáhýsa.
Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar.
• Áhrif lóðaverðs og lóðaframboðs á íbúðamarkaðinn.
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
• Vistvænt, vandað og vel planað.
Sigríður Björk Jónsdóttir og Elín Vignisdóttir, Vistbyggðarráði.
• Hagkvæmni – stöðugleiki – upplýsingar.
Sigurður Jón Björnsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Íbúðalánasjóðs.
• „Vandað“ í „Vandað, hagkvæmt og hratt“.
Ólafur H. Wallevik, forstöðumaður Rannsóknastofu byggingariðnaðarins
við Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
• Kostnaðargreining. Hvar er mögulega hægt að lækka íbúðaverð?
Hannes Frímann Sigurðsson, verkefnastjóri Íslenska byggingavettvangsins.
• Íslenskur hugmyndavettvangur. Ólíkar nálganir og nýjar leiðir við hönnun smáíbúða.
Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt hjá Hornsteinum, Oddur Víðisson, arkitekt
hjá DAP ehf. og JónMagnússon, verkefnisstjóri hjá Þingvangi.
Íslenski byggingavettvangurinn og velferðarráðuneytið
boða til málþings um verkefnið
VANDAÐ – HAGKVÆMT – HRATT
Staðan og næstu skref
Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 8. september kl. 9–12
Skráning á www.si.is
Hjálmar Bogi Haf-
liðason, kennari,
varaþingmaður og
fyrrverandi bæjar-
fulltrúi í Norður-
þingi, býður sig
fram í 2.-4. sæti á
lista Framsóknar-
flokksins í Norðausturkjördæmi.
Í tilkynningu frá Hjálmari Boga
segir að honum séu menntamál
hugleikin og að hefja verknám til
vegs og virðingar.
Þá segist Hjálmar Bogi vilja að
Ísland verði í fararbroddi á sviði
tækni, hreinnar matvælafram-
leiðslu og verndunar lands.
Framboð í 2.-4. sæti
Stjórnmálaflokkarnir munu á næst-
unni velja frambjóðendur á lista
fyrir komandi alþingiskosningar.
Morgunblaðið mun birta fréttir af
þeim sem gefa kost á sér.
Prófkjör 2016
Kristín María
Thoroddsen, vara-
bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, flug-
freyja og ferða-
málafræðingur,
gefur kost á sér í
2.-4. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvest-
urkjördæmi sem haldið verður 10.
september næstkomandi.
Í tilkynningu frá Kristínu segir
að helstu baráttumál hennar séu
fjölskyldumál, bætt lífskjör eldri
borgara, húsnæðismál ungs fólks,
umhverfismál, neytendamál og
einkavæðing ríkisstofnana.
Framboð í 2.-4. sæti
Jóhanna Vigdís
Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri
hjá Háskólanum í
Reykjavík, gefur
kost á sér í 3. sæti í
flokksvali Sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík fyrir alþingiskosningar í
október.
Í tilkynningu segist Jóhanna vilja
tryggja að allir eigi jöfn tækifæri
og eigi jafnan aðgang að velferðar-
og menntakerfinu.
Hlúa eigi að grunnatvinnuvegum
þjóðarinnar og tryggja jarðveg fyr-
ir nýsköpun.
Framboð í 3. sæti
Líneik Anna Sæv-
arsdóttir alþingis-
maður býður sig
fram í 1.-3. sætið á
lista Framsóknar-
flokksins í Norð-
austurkjördæmi.
Líneik hefur
lengst af starfað við fræðslumál og
hefur setið á þingi frá 2013.
„Ég lít þannig á að stærstu og
brýnustu málin sé efnahagur ríkis-
ins, einstaklinga og fyrirtækja,“
segir Líneik í tilkynningu. „Jafn-
rétti og jafnræði íbúa landsins er
afar mikilvægt.“
Framboð í 1.-3. sæti
Viðar Snær Sig-
urðsson býður sig
fram í 3.-6. sæti á
lista Sjálfstæðis-
flokksins í Suð-
vesturkjördæmi.
Í tilkynningu
segist Viðar vilja
berjast fyrir mannsæmandi kjörum
eldri borgara, öryrkja og barnafjöl-
skyldna.
„Ég þekki þetta mjög vel þar sem
ég er öryrki,“ segir Viðar sem hvet-
ur til fjölbreytileika á framboðslist-
anum. „Förum eftir grunngildum
flokksins, stétt fyrir stétt og mann-
sæmandi kjör fyrir alla.“
Framboð í 3.-6. sæti
Í annað sinn á
árinu er auglýst
eftir rekstrarað-
ilum til að taka við
Litlu kaffistofunni
við Suðurlands-
veg.
Stefán Þormar
Guðmundsson
hafði rekið stað-
inn frá árinu 1992
þegar hann hætti
í byrjun apríl og systurnar Ásdís og
Hallveig Höskuldsdætur tóku við.
Þær gerðu fimm ára samning við Ol-
ís, sem á staðinn, en reka hann að
endingu aðeins í um sex mánuði, eða
þar til nýir rekstraðilar taka við, lík-
lega í byrjun október.
„Forsendurnar fyrir rekstrinum
ganga ekki samkvæmt áætlun og við
þurfum því að gefa þetta frá okkur.
Því miður,“ segir Ásdís sem stóð
vaktina í Litlu kaffistofunni í gær.
„Þetta er búinn að vera virkilega
skemmtilegur og góður tími og það er
ekkert út á aðsóknina að setja,“ segir
Ásdís og bætir við að kaffistofan sé
skemmtilegt vinnuumhverfi og þang-
að komi mikið af skemmtilegu fólki.
Olís hafa borist yfir tuttugu um-
sóknir núna frá fólki sem hefur áhuga
á að taka við rekstrinum en í janúar,
þegar reksturinn var síðast aug-
lýstur, voru umsóknirnar tæplega
100. Þannig að það er ljóst að 56 ára
rekstur Litlu kaffistofunnar heldur
líklega áfram en það var Ólína Sig-
valdadóttir sem setti upp veitinga-
staðinn árið 1960.
„Það er mikill áhugi fyrir því að
taka við rekstrinum. Litla kaffistofan
er og verður partur af íslenskri þjóð-
vegamenningu og við viljum að hún
haldi sínum rekstrareinkennum
áfram,“ segir Sigríður Hrefna Hrafn-
kelsdóttir, framkvæmdastjóri smá-
sölusviðs Olís. ingveldur@mbl.is
Mikill áhugi á Litlu kaffistofunni
Aftur auglýst eftir rekstraraðilum
Morgunblaðið/Kristinn
Litskrúðug Litla kaffistofan er
þekktur áfangastaður við þjóðveg 1.
Ásdís
Höskuldsdóttir