Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Ég er með söngvara í langflestum
tilvikum og reyni þá alltaf að fá ein-
hverja sem eru þekktir og góðir og
leyfa fólkinu að hlusta á þetta
yndislega fólk ókeypis,“ segir Antó-
nía Hevesi píanóleikari en hún
stendur að hádegistónleikaröð í
Hafnarborg, Strandgötu 34 í Hafn-
arfjarðarbæ. Er þetta í fimmtánda
sinn sem tónleikaröðin fer fram í
Hafnarfirði og Antónía hefur staðið
að skipulagningu hennar frá upp-
hafi. Hún spilar einnig undantekn-
ingalaust undir með þeim lista-
mönnum sem koma fram.
Tónleikarnir eru fyrsta þriðjudag í
mánuði og hefjast kl. 12. Þeir
standa yfir í um hálfa klukkustund
og eru opnir öllum á meðan húsrúm
leyfir. Húsið verður opnað kl. 11.30.
Fyrstu tónleikarnir að þessu
sinni fara fram í hádeginu í dag kl.
12 en þar ríður Elsa Waage, messó-
sópran, á vaðið og stígur á stokk
ásamt Antóníu sem spilar undir á
píanó. Yfirskrift tónleikanna er La
Diva-la donna eða Dívan - Konan.
Byrjendur og Hafnfirðingar
„Ég hef það að markmiði að hafa
einhvern á hverju ári sem er að
stíga sín fyrstu skref í atvinnu-
mennsku – mér finnst mjög gaman
að sjá seinna að fyrstu opinberu
tónleikarnir þeirra hafi verið í
Hafnarborg,“ segir Antónía en hún
velur klassíska söngvara til að koma
fram á hverju ári. „Það er mjög
sjaldan sem ég fæ hljóðfæraleikara
– mér finnst líka klassískir söngv-
arar fá sem minnsta möguleika og
svo þróaðist þetta þannig að Hafn-
firðingar elska óperur. Ég hef ein-
staka sinnum reynt við ljóð en það
féll ekki eins vel í kramið,“ segir
Antónía en hana grunar að sög-
urnar að baki aríunum eigi helst
upp á pallborðið hjá tónleikagest-
unum.
Það er fjölbreyttur hópur söngv-
ara sem kemur fram í ár en Bjarni
Þór Kristjánsson bassi er næstur og
stígur á svið hinn 4. október. Svo
kemur Jóhann Smári Sævarsson
baritón fram í nóvember og Alda
Ingibergsdóttir, sópran og Hafn-
firðingur, stígur á stokk í desember.
„Ég lít á það sem hálfgerða
skyldu og hef gaman að því að koma
Hafnfirðingum að – þau eru stolt
bæjarbúa á þessu sviði og gaman að
vinna með þeim,“ segir hún en
markmiðið sé að reyna að auka veg
þeirra. Eftir áramót er svo von á
Kristjáni Jóhannessyni baritón,
Hrólfi Sæmundssyni baritón og
Guðbjörgu Tryggvadóttur sópran.
Meira en húsrúm leyfir
Aðsóknin á tónleikana hefur verið
afar góð í gegnum árin. „Ég hef
sjaldan fengið undir hundrað manns
á tónleikana og oftar en einu sinni á
ári kemur það fyrir að aðsóknin er
svo mikil að við þurfum að læsa
húsinu,“ segir Antónía. Aðspurð af-
hverju hún telji áhugann vera svo
afgerandi segir hún íslenska tónlist-
armenn fyrst og fremst vera fram-
úrskarandi.
„Það er í fyrsta lagi söngvararnir
og í öðru lagi er það Hafnarborg,
staðurinn er svo yndislegur og góð-
ur andi að fólk finnur að það sé vel-
komið – og ég vona að ég spilli ekki
fyrir heldur,“ segir hún létt í bragði.
„Við Elsa vinnum nú að því að
safna saman efni en við erum að
undirbúa sýningu í Hörpu í vor –
þetta eru fyrstu skrefin hjá okkur,“
segir Antónía en þær hefja tón-
leikana í dag á þremur aríum, einni
óperettuaríu og tveimur óperu-
aríum.
Á efnisskránni eru verk á borð
við Vilja-Lied úr Kátu ekkjunni eft-
ir F. Lehár, Habanera úr óperunni
Carmen eftir Bizet og La vie en
rose eftir frönsku söngkonuna Edit
Piaf.
„Það eru allskonar konur sem
elska öðruvísi en hinar. Sumar
hugsa bara um sjálfar sig á meðan
sumar fórna sér og enn aðrar leita
að eilífri ást allan tímann — þetta
er flóra, hvernig konur elska og
okkur fannst mjög spennandi að
fara víða í ástarmálum kvenna, á
stuttum tónleikum.“
Klassískar óperur í hádegishléinu
Hádegistónleikaröð í Hafnarborg
hefst í dag kl. 12 á Strandgötu 34
Morgunblaðið/Þórður
Hádegistónleikar Elsa Waage og Antónía Hevesi bjóða upp á tónleikana La Diva-la donna eða Dívan-Konan í dag.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Við viljum vekja fólk til umhugs-
unar um það hvað er í nærsamfélag-
inu sem þú getur nýtt þér og átt
notalega stund með börnunum þín-
um og nýtt
laugardagana í
stresslausa stund
í menningarlegu
umhverfi,“ segir
Ólöf Breiðfjörð,
kynningarstjóri
Menningarhús-
anna í Kópavogi,
en hauststarfi
Menningarhús-
anna var ýtt úr
vör um liðna helgi en boðið verður
upp á fjölskyldustundir á laugar-
dögum í allan vetur ýmist í Gerð-
arsafni, Bókasafni Kópavogs, Hér-
aðsskjalasafni Kópavogs,
Náttúrufræðistofu Kópavogs eða
Salnum. Dagskráin verður fjöl-
breytt og sniðin að mismunandi ald-
urshópum að sögn Ólafar en allir
viðburðir verða gestum algerlega að
kostnaðarlausu.
„Þetta er það sem vakir fyrir
bæjarstjórninni með því að leggja
meiri peninga í að efla þetta starf.“
Fyrir fjölbreytta aldurshópa
„Þetta gekk vonum framar og
mjög áhugasamir gestir sem komu
á öllum aldri,“ segir Ólöf en bærinn
ákvað að boða til hausthátíðar síð-
astliðinn laugardag til að gefa
Kópavogsbúum og öðrum smjörþef-
inn af því sem væri í vændum í vet-
ur.
Nú strax í lok september verður
boðið upp á dagskrá í Salnum sem
hefur yfirskriftina Vísnagull. „Þetta
verður stílað inn á börn á aldrinum
eins til þriggja ára en tveir
tónlistarmenn leiða söng og hljóð-
færaleik og gestirnir eru hvattir til
þátttöku – krakkarnir fá hristur og
trommur í hendurnar og við reyn-
um að skapa notalega stemningu,“
segir Ólöf og hvetur alla foreldra,
forráðamenn og ömmur og afa til að
fjölmenna með krakkana á staðinn.
Þá verður einnig boðið upp á upp-
lestur á bókasafninu en þegar fer að
líða nær jólum verður áherslan á
nýjar bækur. „Ævar vísindamaður
ætlar til dæmis að vera með upp-
lestur úr eigin bók,“ bætir hún við.
Stelpum á aldrinum 13-16 ára
verður boðið upp á rappnámskeið
undir yfirskriftinni „Girl Power“ en
það er Tinna Sverrisdóttir, ein
Reykjavíkudætra, sem sér um nám-
skeiðið. „Hún verður bæði með
textaskrif, sviðsframkomu og sjálf-
styrkingu,“ segir Ólöf en verið sé að
reyna að ná til sem flestra aldurs-
hópa.
Tenging listar og vísinda
Í Tónlistarsafni Íslands verður
Bjarki Sveinbjörnsson, for-
stöðumaður safnsins, með erindi í
byrjun október sem inniheldur tón-
dæmi og hljóðupptökur í tímans rás.
„Þetta er frekar fræðilegt og því
ætlað 10 ára krökkum og eldri en
hann hefur áður verið með svona
erindi fyrir stálpaða krakka og
kemur með alveg rosalega skemmti-
leg dæmi af upptökum í gegnum tíð-
ina,“ segir Ólöf en hann reyni að
sýna krökkunum hvernig upptökur
hafa þróast og hve einföld tæknin
var í upphafi. „Þetta verður mjög
líflegt hjá honum.“
Fjölbreyttar listasmiðjur verða á
boðstólum í Gerðarsafni í vetur fyr-
ir mismunandi aldurshópa. Þá verð-
ur ein tilraunasmiðja í nóvember
þar sem tengt verður á milli Nátt-
úrufræðistofu og Gerðarsafns. „Það
verður listasýning í Gerðarsafni
sem heitir Cycle sem tengd verður
við þessa flottu sýningu sem er vís-
indamiðuð. Það verður tilrauna-
smiðja og farið út í Náttúru-
fræðistofu til að opna augu krakka
fyrir því hvað það er mikil tenging á
milli listsköpunar og vísinda.“
Stresslaus menningarstund
Haustdagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi farin á fullt
Ókeypis fjölskyldustund á hverjum laugardegi í vetur
Ljósmynd/Þórdís Erla
Fjölskyldustund Kópavogsbær stendur fyrir viðamikilli haustdagskrá í
menningarhúsum bæjarins í vetur en henni var ýtt úr vör á laugardag.
Ólöf Breiðfjörð
Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla
New Holland, Fiat, Ford, Case, Steyr, Zetor og Fendt
Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla
og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir.
Eigum einnig mikið úrval varahluta í gömlu dráttarvélarnar
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður
Sími 560 4300 | www.saltkaup.is | saltkaup@saltkaup.is
Jólin nálgast,
ekki falla á tíma
Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is
Auglýstu fyrirtækið á ódýran hátt ...
Áprentaðir burðarpokar
fyrir fyrirtæki
Hafðu samband við sölumann
fyrir frekari upplýsingar