Morgunblaðið - 06.09.2016, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Globeathon Ísland fer fram sunnu-
daginn 11. september, kl. 11:00 en
ræst verður við Nauthól og verður
hlaupið eða gengið um Fossvogsdal-
inn. Globeathon er alþjóðlegt átak
þar sem vakin er athygli á krabba-
meini í kvenlíffærum en þetta er í
fjórða sinn sem Globeathon er haldið
á heimsvísu. Styrktarfélagið Líf og
Krabbameinsfélag Íslands standa
saman að viðburðinum en hlaupið er
fyrir alla, konur, börn og karla, sam-
kvæmt tilkynningu.
Í ár mun ágóðinn renna til göngu-
deildar krabbameinssjúklinga, deild-
ar 11B á Landspítalanum en ætlunin
er að gera þá deild fallegri og heim-
ilislegri fyrir þá sjúklinga sem þang-
að þurfa að koma í lyfjameðferð.
Hægt verður að ganga fimm kíló-
metra en einnig er í boði að hlaupa á
tíma í fimm og tíu kílómetra hlaupi
með flögu. Þeir sem skrá sig fyrir
föstudaginn fá forsöluverð en þá
kostar 500 krónur fyrir 14 ára og
yngri en 2.500 fyrir 15 ára og eldri.
Einnig er hægt að koma í Kringluna
fyrir utan Herragarð á annarri hæð
milli kl. 13:00 og 16:00 á laugardeg-
inum 10. september og skrá sig á for-
söluverði. Á hlaupadaginn verður
hægt að skrá sig við Nauthól milli
9.30 til 10.45.
Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta
sæti karla og kvenna í fimm og tíu
kílómetra hlaupi og að auki verða
dregin út um 50 glæsileg útdráttar-
verðlaun. benedikt@mbl.is
Hlaupið Globeathon
Morgunblaðið/Ómar
Hlaupið Ágóðinn mun renna til göngudeildar krabbameinssjúklinga, deildar 11B.
Hlaup til styrktar göngudeildar
Tónleikar með ítalska raftónlistar-
manninum Shapednoise á Húrra á
morgun er beðið með töluverðri eft-
irvæntingu. Shapednoise er lista-
mannsnafn Nino Pedone sem býr að
staðaldri í Berlín. Eftir að hafa gefið
út kasettu árið 2013 hefur nafn hans
orðið þekktara og þekktara með ári
hverju. Hann hefur unnið samvinnu-
verkefni meðal annars með Justin K
Broadrick, Black Rain, og AnD og er
þessa dagana að sameina krafta sína
Demdike Starés Miles Whittaker und-
ir viðurnefninu Boccone Duro. Plötu-
fyrirtæki hans, Cosmo Rhythmatic,
einbeitir sér að Architectural Noise,
sem kannar möguleika hljóðorkunnar
og rannsakar tæknilegar og mál-
fræðilegar hliðar tónlistar. Fljótlega
sameinaðist þeim fjölbreytilegur
hópur listamanna sem hafði sér-
stakan áhuga á að skilgreina nýjar
öfgar. Ultraorthodox, eða Arnar Már
Ólafsson, mun hita upp en hann er
einn helsti framúrstefnu-raftónlist-
armaður Íslands um þessar mundir.
Tónleikarnir eru skipulagðir af músík-
og listahópnum FALK
Raftónlistarmaðurinn Shapednoise hér á landi
Húrrandi raf-
tónlistargleði
Ljósmynd/Aðsend
Shapednoise Byrjaði einfalt og gaf
út kasettu sem þykir mikil snilld.
Kaffihúsaátak UNICEF á Íslandi og
Te & Kaffi hófst fyrir helgi. Það var
Eliza Reid, forsetafrú, sem hóf
átakið. Næstu tvær vikur býðst
landsmönnum að taka virkan þátt í
baráttunni gegn mænusótt, sem
einnig er þekkt sem lömunarveiki.
Te & Kaffi gefur andvirði einnar
bólusetningar gegn mænusótt af
hverjum seldum drykk fram til 18.
september og viðskiptavinum er
boðið að gera það sama.
Mænusóttarveiran er mjög smit-
andi og getur valdið bæði lömun
og dauða. Engin lyf eru til sem
lækna mænusótt. Einungis er hægt
að koma í veg fyrir að fólki fái
veikina og það er gert með bólu-
setningu. Skammtur af bóluefninu
kostar einungis 25 krónur.
Þetta er í fjórða sinn sem Te &
Kaffi stendur fyrir kaffihúsaátaki
með UNICEF á Íslandi og í þriðja
sinn sem safnað er vegna mænu-
sóttar. Framtakinu hefur verið tek-
ið frábærlega hér á landi og sam-
tals safnast andvirði 218.744
bólusetninga gegn mænusótt.
Eftir að bóluefni gegn mænusótt
kom fram á sjónarsviðið og barst
hingað til lands tókst á skömmum
tíma að ráða niðurlögum sjúk-
dómsins á Íslandi.
Þökk sé bóluefninu náðist mikill
árangur næstu áratugina í barátt-
unni gegn mænusótt á heimsvísu.
Fátækari ríki sátu hins vegar eftir.
„Við hjá Te & Kaffi erum stolt af
samstarfinu við UNICEF á Íslandi
og þykir afskaplega vænt um það.
Við erum búin að vera stoltur
styrktaraðili frá árinu 2008 og
höfum á þeim tíma safnað um 30
milljónum og erum hvergi nærri
hætt. Samstarfið við UNICEF er
hryggjarstykkið í okkar stefnu um
samfélagslega ábyrgð og nýtur
hún mikils stuðnings starfsmanna
alls staðar í fyrirtækinu,“ segir
Guðmundur Halldórsson hjá Te &
Kaffi.
Eliza Reid, forsetafrú, með átakið Klárum málið í samstarfi við UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi
Kaffi til styrktar mænusótt í þriðja sinn
Morgunblaðið/Þórður
Spjallað Eliza Reid, forsetafrú, ásamt þeim Bergsteini Jónssyni fram-
kvæmdastjóra UNICEF á Íslandi og Guðmundi Halldórssyni hjá Te og Kaffi.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Hljómsveitin Kronika, semnánast má kalla ofur-band, mun spila í fyrstasinn fyrir áhorfendur
þegar hún hitar upp fyrir tvenna tón-
leika Skálmaldar í október sem verða
á Græna hattinum og Gauk á Stöng.
Hljómsveitarmeðlimir eru Snæbjörn
Ragnarsson úr Skálmöld, Birgir
Jónsson úr Dimmu lemur á húðir,
þúsundþjalasmiðurinn Guðmundur
Þorvaldsson spilar á gítar og Reykja-
víkurdóttirin Tinna Sverrisdóttir
stendur fyrir aftan míkrófóninn og
rappar og syngur.
Hljómsveitin er ekkert að hitt-
ast upp á grín heldur er búin að bóka
stúdíó og plata verður gefin út. „Þeg-
ar maður er kominn með bumbu og á
góðan aldur lærist að ef andrúms-
loftið og stemningin er rétt þá virka
hlutirnir. Þá á að treysta því sem er
að gerast fyrir framan þig og fara af
stað. Við sem erum í hljómsveitinni
vorum öll á þeim stað að finnast þetta
alveg ofboðslega gaman og vorum til
í að vinna hratt en örugglega og bók-
uðum stúdíó, alveg hæfilega tilbúin,“
segir Snæbjörn.
Tinna heillaði á tónleikum
Hann hafði gengið með hug-
mynd að svona hljómsveit í mag-
anum í nokkur ár. „Ég var einu sinni
að horfa á tónleika með Dimmu og
hugsaði að það væri andskoti gaman
að spila með Bigga. Hann og Jón
Geir, trommari Skálmaldar, eru að
ég tel tveir af bestu trommurum
landsins. Ég gekk með þessa hug-
mynd í maganum í nokkur ár og
langaði að búa til einhverskonar
rokk/rapp stemningu. Ég sá Tinnu
þegar hún var að syngja á sömu tón-
leikum og Agnes, kærasta mín, var
að syngja á. Þarna voru Reykjavík-
urdætur að verða að nafni og ég sá í
henni púsl sem hafði vantað. Svo lá
hugmyndin í dvala í einhvern tíma en
við rifum þetta af stað og hér erum
við. Að fara að taka upp plötu og spila
á tónleikum.
Ekki slegið af
Snæbjörn segir að tónlistin sé
þung og það sé hvergi slegið af, sér-
staklega ekki í hávaða. „Þetta er
rokk þó það komi allskonar áhrif inn í
þennan hrærigraut því allir eru að
setja sitt í þetta. Við Biggi erum
Ekkert slegið af
í hávaða og rokki
Kronika er ný hljómsveit, skipuð meðlimum úr Dimmu, Skálmöld, Reykjavíkur-
dætrum og Hrauni. Hljómsveitin er þegar á leið í stúdíó og mun spila á undan
Skálmöld í fyrsta sinn í október. Þar mun Snæbjörn Ragnarsson hita upp fyrir
sjálfan sig en hann er í báðum hljómsveitum.
Morgunblaðið/Ófeigur
Taktfast Birgir Jónsson slær taktinn fyrir hina nýju hljómsveit sem mun von bráðar skella sér í hljóðver og taka
upp. Morgunblaðið slóst í för á hljómsveitaræfingu og það sem var á rokkseðlinum það kvöld lofar góðu.