Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 21
Norður-Afríkubúa, á hryðjuverka- starfsemina. Fram undan eru því vafalaust breytingar í starfsemi ESB. Bretar hafa hafnað ákvæðum stofnskrár- innar um nánari pólitíska einingu og kvöð um frjálsa för fólks. Þetta verður til samninga við þá. Í samn- ingaferlinu um aðild að Evrópu- sambandinu hafði verið unnið feykimikið verk til upplýsinga um Ísland og á þeim grundvelli fenginn stuðningur aðildarríkja. Þar varð- aði miklu skilningur um að fisk- veiðilögsagan sé að einu og öllu undir okkar stjórn og forræði. Það er undirstaða góðrar stjórnar í sjávarútvegsmálum en Ísland stendur öllum þjóðum framar um að tryggja sjálfbærni fiskistofna og hámörkun arðs. Loks er um að ræða það óleysta vandamál sem er íslenska krónan. Með aðildarviðræðunum var ætl- unin að innganga í ESB tryggði að krónunni yrði komið í skjól í mynt- samstarfinu ERM II með stuðningi Seðlabanka Evrópu. Þannig kæmi langþráður stöðugleiki og lægri vextir. En þessi möguleiki er ekki fyrir hendi eins og stendur. Er þá ekki til athugunar að tekið sé upp fast gengi engu að síður? Fær- eyingum virðist vegna vel í mynt- samstarfi við Dani sem hafa fast gengi við evruna. Fyrir daga evr- unnar höfðu Danir fast gengi við þýska markið, ef rétt er munað. En hvert stefnir? Við ráðum engu um rás heimsmála, en getum tekið þá kosti sem bestir eru fyrir okkur. Eru það ekki náin tengsl við ESB því spurningin um aðild er ekki úr sögunni? Höfundur er fyrrverandi sendiherra. UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016 Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Missið ekki af áhugaverðum þætti um um starfsemi Hlaðbæjar-Colas og viðtali við framkvæmdastjóra og verkstjóra. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar í kvöld kl. 22.00 Malbikun á Keflavíkurflugvelli – Hlaðbær-Colas í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 22.00 í kvöld. • Stærsta malbikunarfyrirtæki á Íslandi • Nýjasta tækni við malbikun og þróun á undanförnum árum • Malbikun flugbrauta á Keflavíkurflugvelli • Ástand á vegum landsins og hvaðmá betur fara Fyrr í sumar kom upp umræða um hvers vegna fólk snýst til kristni eftir að það flytur til Ís- lands eða annars lands þar sem það leitar hælis. Jafnvel var gefið í skyn að í flestum tilfellum væri um að ræða blekk- ingu til að eiga meiri möguleika á að fá landvistarleyfi. Kristið fólk er beitt ofsóknum víða um heim og helstu samtök sem hafa yfirlit yfir slíkt tala um 60-70 ríki. Ofsóknirnar geta verið misjafnar á margan hátt, bæði hver stendur að baki þeim og hvaða aðferðum er beitt. Greina má á milli beinna ofsókna yfir- valda og ofsókna samfélagsins. Í fyrra tilvikinu grípa yfirvöld til harkalegra aðgerða og þó svo upp- gefin ástæða sé brot á lögum og reglum, t.d. þegar komið er saman án leyfis, þá er ljóst að aðal- ástæðan er ótti stjórnvalda við að fram vaxi stjórnmálaafl, í þessu tilviki oft á trúarlegum forsendum, sem ógnar stöðugleika, friði og valdastöðu þeirra sem ráða ríkj- um. Norður-Kórea er ugglaust eitt augljósasta dæmið um þetta. Í seinna tilvikinu, þar sem erf- iðara er að henda reiður á ofsókn- um, er það ekki yfirlýst stefna yf- irvalda að gera ákveðnum hópum lífið leitt, að fangelsa eða lífláta, en engu að síður gerist það. Að baki ofsóknum standa hópar, jafn- vel einstaklingar samfélagsins sem telja sig þannig verja yfirvöld, trú sína eða fjölskyldu með þeim hætti. Erf- itt getur verið að meta hversu öruggt er fyrir einstakling, sem t.d. hefur snúist til kristni, að snúa heim í slíkt samfélag. Ég hef hitt og rætt við einstaklinga sem hafa fengið „dauða- dóm“ með yfirlýsingu fjölskyldu sinnar eða ákveðins ímams um að þeir séu réttdræpir vegna trúskipta sinna og vitn- isburðar um hinn krossfesta og upprisna Jesú Krist. Um er að ræða beina hvatningu til að taka viðkomandi af lífi. Gerist það er hætt við því í ýmsum löndum láti lögregla og dómstólar slík mál drukkna eða gleymast í öðrum verkefnum. Trúskipti frá íslam til kristni eru yfirleitt alvarlegt mál í sam- félögum þar sem íslam er ráðandi. Þar sem harkan er mest er það dauðasök. Annars staðar þýða trú- skipti oft einhvers konar útskúfun, afneitun á að viðkomandi sé hluti fjölskyldunnar lengur. Trúskipti eru álitin vera skömm enda hefur viðkomandi gengið óvinveittum á hönd. Eitt það versta sem gerst getur er að „missa andlitið“, að skömmin verði opinber. Ekki er alltaf jafnauðvelt fyrir okkur hér á Vesturlöndum að greina þessa hugsun þar sem sumir gangast upp í að skammast sín eða láta fólk fara hjá sér og hneykslast. Þar sem skömm trúskipta er talin mjög alvarleg geta foreldrar gengið lengra en að útskúfa börn- um sínum, þau eru myrt af ein- hverjum nánum úr fjölskyldunni til þess einmitt að vernda heiður fjölskyldunnar. Í samfélagi sem virðir einstaklinginn til sjálf- stæðrar ákvarðanatöku getur ver- ið erfitt að skilja þetta. Snúum okkur svo að flóttafólki og hælisleitendum. Sumt af því er á flótta vegna kristinnar trúar sinnar. Annað er á flótta vegna stríðs, allsleysis, vanmáttar og hluti þess að flýja er að flýja hina gömlu trú sem fólkið upplifir sem harða. Sumt leitar í guðleysi, ann- að í önnur trúarbrögð. Það nýtir frelsið í nýju umhverfi til að gera það sem það gat kannski aldrei, eða þorði aldrei að gera heima: Að kynna sér trúna á Jesú Krist. Mörg dæmi eru um flóttafólk og hælisleitendur um gjörvalla Evr- ópu sem hefur ákveðið að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins. Skrefið er stigið án þess að nokk- ur sjáanlegur hagur sé þar af. Yf- irleitt eru það fyrrverandi landar, kristið fólk sem varð að flýja vegna ofsókna, sem eru boðberar trúarinnar gagnvart þessum hópi. Vel má vera að einhverjir snúist til kristni af hagkvæmniástæðum, í von um að fá frekar hæli eða landvist. En þessir einstaklingar vita vel að það er áhætta að skipta um trú ef þeir þurfa að fara aftur heim. Sú áhætta er ekki alltaf augljós okkur og auk þess erfitt að skoða hjarta og huga viðkom- andi til að vita sannleikann. Hætt- an er víða fyrir hendi jafnvel þó svo ekki sé snúið heim. Sumir trú- skiptingar hafa orðið varir við njósnir og þurfa sífellt að hafa varann á sér. Aðrir sem talað hafa um trú sína opinberlega gera það gjarnan undir dulnefni af öryggis- ástæðum. Í þessu öllu er yfirvöldum sem fara með málefni útlendinga hér á landi vorkunn. Ábyrgðin er mikil með líf fólks og framtíð í lúkunum – eða skrifræðinu. Vanda þarf vinnubrögðin og reyna að sann- reyna það sem sagt er af fremsta megni án þess að það taki of lang- an tíma. Alltaf eru einhverjir að sækja um landvist á fölskum for- sendum og sorglegt að það þurfi að bitna á öllum hinum sem ekki gera það. Stundum þarf að láta fólk njóta vafans. Trúskipti eru víða alvarlegt mál. Trúarsannfær- ing kostar margan lífið, líklegast fleiri árið 2016 en nokkru sinni áð- ur í sögu mannkyns. Fjöldi fólks kristinnar trúar hefur verið drep- inn í Sýrlandi undanfarin misseri vegna trúar sinnar á Jesú Krist. Margt annað er á flótta. Full ástæða er til að huga að þeim hópi sérstaklega við val á svonefndum kvótaflóttamönnum til landsins. Við hljótum að vilja veita þeim skjól sem ekkert skjól eiga lengur vegna trúar sinnar, hvort sem trúarsannfæringin er nýtilkomin eða áratugagömul. Umsóknir og ofsóknir Eftir Ragnar Gunnarsson » Við hljótum að vilja veita þeim skjól sem ekkert skjól eiga lengur vegna trúar sinnar, hvort sem trúarsann- færingin er nýtilkomin eða áratugagömul. Ragnar Gunnarsson Höfundur er framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.