Morgunblaðið - 06.09.2016, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
✝ EinarGuðbjartsson
fæddist í Reykjavík
2. ágúst 1945. Hann
lést á Líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 27. ágúst
2016.
Móðir hans var
Kristín Einarsdótt-
ir húsmóðir, f.
1927. Hálfsystir
Einars var Ása Þor-
kelsdóttir, f. 1960, hún er látin.
Árið 1969 kvæntist Einar Báru
Guðmundsdóttur, f. 17. apríl
1946. Foreldrar Báru eru Jón-
ína Jónsdóttir, f. 1914, og Guð-
mundur Jóhannsson, f. 1916.
Einar og Bára eiga þrjú börn,
þau eru: 1.) Jón Ásgeir, f. 1967,
maki Lena Otterstedt, f. 1969,
og eiga þau þrjú börn, Eddu,
Þórdísi Dögg og Ásgeir Orra og
eitt barnabarn, Aron Ragnar. 2)
Elín Bára, f. 1969, börn hennar
eru Einar Þórir og Sigurjón
Már. 3) Haraldur, f. 1977.
Einar bjó mestanpart ævinn-
ar í Reykjavík.
Hann ólst upp í
Efstasundi 6 þar
sem stórfjölskylda
móður hans bjó. Á
barna- og ungl-
ingsárum kynntist
Einar sveitastörf-
um og eyddi hann
sumrum sínum á
Skarðsströnd við
Breiðafjörð. Fljót-
lega stefndi hugur
hans til sjávar og hóf hann sjó-
mannsstörf ungur að árum og
var á sjó á árunum 1959-1980,
lengst af á togurum, síðar meir
á fraktskipum. Er í land kom
hóf hann störf í Heildsölu Hilm-
ars Helgasonar, því næst við
verkstjórn hjá Byggðaverki og
svo sem stuðningsfulltrúi hjá
Landspítalanum og að lokum
hjá umferðardeild Reykjavík-
urborgar.
Útför Einars fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 6. sept-
ember 2016, og hefst athöfnin
kl. 13.
Einar, faðir okkar, var eft-
irminnilegur maður á margan
hátt. Í honum bjuggu miklar
andstæður. Pabbi var líflegur
og skemmtilegur. Hann var
laglegur, með ljúfa framkomu
og var mikill húmoristi. Þar á
móti gat hann verið skemmti-
lega þrjóskur og þver, þegar
svo bar við gátum við fjölskyld-
meðlimirnir ekki annað en
brosað yfir því háttalagi. Hann
hafði óskaplega gaman af því
að segja sögur og voru þær
ósjaldan af uppákomum sem
tengdust sjómennsku. Pabbi
var fyrst og fremst sjómaður
og á sjónum undi hann sér
best.
Að sjómennsku lokinni vann
hann hin ýmsu störf í landi en
hugur hans leitaði ávallt til
sjávar.
Sjómennsku sína hóf hann 14
ára gamall sem messagutti á
Heklunni. Hann þótti harðdug-
legur, ósérhlífinn og kjarkaður.
Oftar en ekki varð hann fyrstur
manna til að bjóða sig fram og
takast á við þau verkefni sem
fyrir lágu, ekki síst við erfiðar
aðstæður og jafnvel lífshættu-
legar.
Stundum þegar hann lýsti
þeim aðstæðum, sem hann
tókst á við, fannst okkur hegð-
un hans hrein fífldirfska en í
raun var það ekki tilfellið.
Hugprýði var einfaldlega
einkennandi fyrir persónuleika
hans. Sögurnar af sjónum voru
ótrúlegar, jafnvel lygilegar.
Það lifnaði yfir pabba þegar
hann sagði þessar sögur og
þeim fylgdu mikil leikræn til-
þrif.
Brosið breitt og gleðin skein
úr augum hans. Okkur er mjög
minnisstætt þegar við fórum
með pabba og mömmu á sam-
komu úti á landi þar sem sam-
ankominn var mikill fjöldi
fólks.
Þá fengum við í raun í stað-
festingu á þessum sögum. Þeg-
ar við, fjölskyldan, mættum á
tjaldsvæðið tók á móti okkur
vinur pabba og kynnti okkur
fyrir ókunnugum samkomu-
gestum á svæðinu. Þegar þessi
maður kynnir pabba segir hann
við hópinn: „Þetta er Einar
Guðbjartsson og allar þær sög-
ur sem hann segir, sama
hversu lygilegar þær eru, þá
eru þær sannar. Ég get vottað
það.“
Það var rík ævintýraþrá í
pabba og það var einmitt hún
sem virtist gera sjómennskuna
svo heillandi. Það var sama
hvar hann var staddur í heim-
inum, hvort það var í Murm-
ansk eða í smábæ í Noregi,
skondnu og ótrúlegu uppákom-
urnar létu ekki á sér standa. Á
löngum starfsferli kynntist
hann mörgum góðum mönnum.
Hann talaði alltaf um sam-
starfsfélaga sína af virðingu,
ekki síst þá skipstjóra sem
hann hefði verið með.
Pabba var mjög annt um
fjölskyldu sína og ætt. Hann
naut þess að vera með fjöl-
skyldu sinni og honum þótt af-
ar vænt um barnabörnin sín.
Hann vildi allt fyrir þau gera
og var mjög umhugað um að
þau stæðu sig vel í námi og
vinnu.
Hann var hlýr og hvatti þau
ætíð til dáða. Hann hugsaði líka
alltaf hlýlega til skyldmenna
sinna og hafði miklar mætur á
þeim.
Hann kunni skil á öllum ætt-
artengslum langt aftur í tímann
og oft leitaði hugur hans vestur
á Skarðsströnd þar sem hann
eyddi mörgum sumrum sem
barn á sveitabænum Nýp hjá
skyldmennum.
Meðan á veikindum hans
stóð hafði hann oft á orði hvað
hann langaði til þess að kíkja
vestur en þaðan átti hann að-
eins góðar minningar. Af frá-
sögnum hans mátti ráða að
paradís væri á Skarðsströnd og
það var hún hjá honum. Eftir
að pabbi greindist með krabba-
mein og baráttunni var í raun
lokið sýndi hann sama kjark og
æðruleysi og hann var þekktur
fyrir á sjónum.
Hann barðist til síðasta blóð-
dropa.
Elsku pabbi, það var sönn
ánægja að vera þér samferða,
þín verður sárt saknað. Minn-
ing þín lifir, góða ferð.
Jón Ásgeir, Elín Bára
og Haraldur.
Nú farinn ertu mér frá
og hvað geri ég þá?
Þig hafa ég vil
og segja mér til.
Nú verð ég að kveðja,
og fæ ekkert um það að velja.
Þú kvaddir mig með hlátri,
Það er ekki skrítið að ég gráti.
Í hjarta mér þú verður
og þaðan aldrei hverfur.
Ég minningu þína geymi
en aldrei gleymi.
Elsku hjartans afi minn,
nú friðinn ég finn,
þá kveð ég þig um sinn
og kyssi þína kinn.
(Ágústa Kristín Jónsdóttir)
Edda, Einar Þórir,
Þórdís Dögg, Ásgeir Orri
og Sigurjón Már.
Einar
Guðbjartsson
✝ Björgvin Stein-dórsson fæddist
á Akureyri 25. des-
ember 1954. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Akureyri 28. ágúst
2016. Foreldrar
hans eru Sigrún
Ragnarsdóttir, f. 18.
nóvember 1935, og
Steindór Jónsson, f.
23. mars 1916, d.
3.ágúst 2003. Systkini Björgvins
eru: Ómar, f. 12. janúar 1954, d.
21. febrúar 2006, Þórir, f. 19.
apríl 1957, og Heiðrún, f. 21.
febrúar 1961.
Þann 21. júlí 1979 kvæntist
Björgvin Önnu Rebekku Her-
mannsdóttur, f. 16. ágúst 1954.
Foreldrar hennar eru Hermann
kot í Hörgárdal þegar hann var
tveggja ára gamall, þau fluttu
svo aftur til Akureyrar eftir tæp
tíu ár. Hann útskrifaðist sem
skrúðgarðyrkjufræðingur frá
Garðyrkjuskóla ríkisins 1982,
lauk sveinsprófi 1985 og fékk
meistarabréf 1988. Björgvin
kláraði diplómanám í garð-
yrkjutækni frá Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Hvanneyri 2005.
Hann vann ýmis störf, m.a. sem
kennari, verkstjóri og íþrótta-
þjálfari og rak eigin skrúðgarð-
yrkjuþjónustu 1985-1997. Hann
byrjaði að vinna í Lystigarði Ak-
ureyrar 1987, fyrst sem verk-
stjóri og síðar sem forstöðu-
maður garðsins. Hann var ötull í
íþrótta- og félagsstarfi á Akur-
eyri og var tók þátt í ritun fjölda
bóka um garðyrkju og ljós-
myndun. Hann fékk viðurkenn-
ingu frá KA fyrir frumkvöðla-
starf í blaki og Heiðursverðlaun
garðyrkjunnar 2016.
Útför Björgvins fer fram frá
Akureyrarkirkju, í dag, 6.
september 2016, klukkan 13.30.
Sigtryggsson, f. 15.
janúar 1931, og Re-
bekka Helga Guð-
mann, f. 22. desem-
ber 1928, d. 8. júní
2015. Þau Björgvin
og Anna bjuggu öll
sín hjúskaparár á
Akureyri. Börn
þeirra eru: 1) Birkir
Hermann, f. 22. apr-
íl 1982, sambýlis-
kona Ágústa Sveins-
dóttir, f. 27. febrúar 1985. Dætur
þeirra eru Freyja Dögg, f. 20.
janúar 2006, Kristjana Birta, f. 1.
september 2011, og Aníta Bríet,
f. 3. september 2013. 2) María
Björk, f. 2. september 1986, sam-
býlismaður Sverrir Karl Ellerts-
son, f. 8. október 1986. Björgvin
flutti með foreldrum sínum í Hól-
„Hvað er klukkan, Björgvin?“
„Það er vor“.
Björgvin hafði sérstakt tíma-
skyn. Hann var rósemin uppmál-
uð, yfirvegaður, fastur fyrir,
traustur og nákvæmur á sinn sér-
staka hátt. Góður ferðafélagi og
bóngóður vinur. En það haustaði
að of snemma í lífi hans. Síðustu
misseri hafa verið erfið en öllu
mótlæti var tekið af einstöku
æðruleysi og þolinmæði.
Björgvin var einn stofnfélaga
Áhugaljósmyndaraklúbbs Akur-
eyrar, ÁLKA, og einn af horn-
steinum klúbbsins um langt árabil,
ósérhlífinn og traustur. Hann var
ritstjóri fréttabréfsins alla tíð, vel
ritfær, margfróður og óspar á að
miðla og kenna. Hann á drjúgan
skerf mynda og texta í bókinni
Akureyri – bærinn okkar sem
klúbburinn gaf út árið 2000 en þar
fylgdi hann árstíðunum í myndum
af mannlífi, umhverfi og ekki síst
gróðri. Flóran var sérsvið Björg-
vins og liggur eftir hann mikið safn
frábærra ljósmynda á því sviði auk
alls annars enda hafði hann gott
auga fyrir formum og myndbygg-
ingu.
Ég flyt fjölskyldu Björgvins
innilegar samúðarkveðjur félaga
hans í ÁLKA og okkar hjóna í
þeirri vissu að aftur komi vor.
Árni Ólafsson.
Mig setti hljóða er ég fékk frétt-
ir af andláti vinar míns Björgvins
Steindórssonar, forstöðumanns
Lystigarðs Akureyrar. Kynni okk-
ar hófust á vormánuðum 2010 er
ég réðst til starfa hjá honum í
Lystigarðinum sumarlangt. Ég
man fyrsta daginn sem ég mætti,
Björgvin tók hlýlega á móti stelp-
unni að sunnan, gekk með mér um
garðinn og kynnti mér paradísina í
Brekkunni. Ég fann strax fyrsta
daginn að mér ætti eftir að líka vel
við Björgvin, mér fannst hann
áhugaverður karakter og svo
spillti ekki fyrir hláturinn hans,
svona dillandi skemmtilegur. Sum-
arið leið og hver dagur bauð upp á
ný ævintýri. Um mitt sumar fór ég
til Björgvins með hugmynd sem
fæddist í kolli mínum eftir heim-
sókn á Amtbókasafnið, hugmyndin
var að skrifa sögu Lystigarðsins
og reyna að fá hana útgefna á 100
ára afmæli garðsins árið 2012.
Björgvin tók vel í hugmyndina og
úr varð einstaklega gott samstarf
okkar sem varði þessi tvö ár og við
vorum nokkuð stolt á Rökkurró
Lystigarðsins á Akureyrarvöku
2012 þegar bókin okkar kom út. Í
bókina skrifaði ég um forstöðu-
menn garðsins á hverjum tíma en
Björgvin tók við starfi forstöðu-
manns árið 1994 og gríp ég niður í
kaflann um störf hans: „Tímabil
Björgvins Steindórssonar sem for-
stöðumanns er tímabil stórra
verka og endurnýjunar. Hann ber
mikla virðingu fyrir sögu garðsins
en hefur jafnframt skilning og þor
til að framkvæma þá hluti sem
þarf, til að garðurinn þróist áfram
og haldi sínu hlutverki sem lysti-
garður eða eins og segir í 2. grein
laga Lystigarðsfélagsins forðum
daga „ …að koma upp garði í Ak-
ureyrarbæ, bænum til prýðis og al-
menningi til skemmtunar …“.“
Já, það má með sanni segja að
Björgvin Steindórsson skilaði góðu
ævistarfi í Lystigarði Akureyrar
sem við hin njótum góðs af. Ég
kveð vin minn með virðingu og
þakka af alhug góð kynni og sam-
starf.
Kæra Anna, ég sendi þér og fjöl-
skyldu þinni mína dýpstu samúð
og vona að góðar og fallegar minn-
ingar hjálpi ykkur í gegnum erfiða
tíma.
Blásólin, Meconopsis betonicif-
olia, mun minna mig á vin minn,
Björgvin Steindórsson, um alla tíð.
Ásta Camilla Gylfadóttir.
Björgvin
Steindórsson
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ellert Ingason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og bróðir,
STEINÞÓR BALDURSSON,
framkvæmdastjóri,
Hlíðarhjalla 26, Kópavogi,
lést á líknardeild LSH 28. ágúst 2016.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi miðvikudaginn
7. september. Athöfnin hefst klukkan 13.
.
Claire Bilton,
Bríet Steinþórsdóttir, Felix Steinþórsson,
Lotta Steinþórsdóttir,
Arndís Ármann Steinþórsdóttir,
Baldur Þór Baldvinsson,
Unnur Baldursdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JOHN EARL KORT HILL,
fv. rannsóknarlögreglumaður,
lést föstudaginn 2. september á Land-
spítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram í
Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 16. september klukkan 13.
.
Jónsvein Joensen, Mary Joensen,
Guðný Hafdís Hill,
Sigrún Erla Hill, Ævar Örn Jónsson,
Laufey Svala Hill, Hans Ingi Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýliskona mín, stjúpdóttir,
móðir okkar tengdamóðir, amma og
langamma,
EDDA ÞORSTEINSDÓTTIR
verslunarstjóri,
Vogatungu 109,
Kópavogur,
andaðist hinn 31. ágúst í faðmi fjölskyldu sinnar á
Landspítalanum, Hringbraut. Útför hennar fer fram í
Bústaðakirkju mánudaginn 12. september klukkan 13.
.
Jón Dan Jóhannsson,
Þorsteinn Jónatansson,
Heiðdís Steinsdóttir, Almar Eiríksson,
Fanndís Steinsdóttir, Guðmundur Ingi Ingason,
Þórdís Steinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Systkinin,
JÓN BJÖRN VILHJÁLMSSON
Grælandsleið 44,
Reykjavík,
og
HILDUR BAUER VILHJÁLMSDÓTTIR
Belleville, Illinois,
USA,
verða jarðsungin og kvödd frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
8. september kl. 13.00.
Bent er á minningarsjóð Kirkjuvogskirkju kt. 690169-0299, banki
542-14-404565.
Margrét Elimarsdóttir
Vilhjálmur Nikulásson
og ástvinir hinna látnu.