Morgunblaðið - 06.09.2016, Side 25
Hvíl í friði, elsku vinkona.
Þó hverfi okkur líf í léttu spori,
er ljós og fögur mynd um horfna tíð.
Þín minning er sem ljóð frá ljúfu vori
um lítið, fallegt blóm í grænni hlíð.
Sóley Gyða, Hólmfríður
Lillý, Jóhanna og Guja.
Eins og stjarna sem hrapar um nótt
þú lýstir leið en svo fórstu allt of fljótt
En ég á minningar sem engin getur
tekið frá mér nú.
því það engin alveg eins og þú.
Elsku hjartans vinkona mín,
hvað ég á eftir að sakna þín. Að
þurfa að kveðja þig svona snöggt
er svo ósanngjarnt. Er svo þakk-
lát fyrir yndislega kvöldstund
sem við áttum saman á spítalan-
um áður en ég fór í ferðina mína,
þar sem við gátum spjallað sam-
an og ég dúllað aðeins við þig. Að
hafa ekki getað verið nær þér síð-
ustu dagana er ólýsanlega sárt
en ég veit að þitt góða fólk var
þér við hlið.
Krissan mín, hvar á ég að
byrja, það er svo margt sem við
höfum gert saman í okkar 45 ára
vináttu. Ég man það svo vel þeg-
ar þú komst í bekkinn minn, þú
varst svo mikil skvísa og svo
örugg í nýju umhverfi. Við náð-
um strax vel saman og Sibba og
Hulda frænka bættust fljótt í
okkar hóp. Það var margt brallað
á þessum árum og oftar en ekki
varst þú í fararbroddi, alltaf
skrefinu á undan, enda þremur
mánuðum eldri en ég.
Þú varst mikil bíladellukona
og elskaðir að keyra um á flottum
bílum, það voru ófá skiptin sem
við fórum saman, vinkonurnar, á
rúntinn niður á Hallærisplan á bíl
mömmu þinnar, eða vorum sam-
an í herberginu þínu á Kópavogs-
brautinni og spiluðum Kleppara
sem þú settir hraðamet í því þú
varst svo snögg. Við sungum líka
uppáhaldslögin okkar „Blakk“ og
„Við gengum tvö“ og ekki þótti
okkur verra ef Jói bróðir þinn
mætti með gítarinn. Við vorum
líka duglegar að fara saman í
Hollý og Klúbbinn á þessum ár-
um og skemmtum okkur vel, lífið
var ljúft og framtíðin björt.
Svo urðu kaflaskil hjá þér þeg-
ar þú eignaðist Össa þinn, þvílík
gæfa fyrir þig þó að oft hafi verið
erfitt að vera einstæð með hann.
Hann svo fallegur og góður sonur
sem þú máttir vera stolt af.
Elsku Krissa mín, það er svo
margt sem ég geymi í huga mér
og vil þakka þér, eins og þegar þú
ákvaðst að koma alltaf til mín á
þriðjudögum í kaffi sem þú gerð-
ir í mörg ár, krakkarnir mínir
hlógu oft að okkur en nú sakna
þau að sjá okkur ekki við eldhús-
borðið í hláturkasti yfir einhverri
vitleysunni sem við gerðum.
Fjölskylda mín og systur
geyma mörg gullkornin um þig í
gegnum árin.
Þú, bleika blúndan mín, elsk-
aðir að vera fín og vel til höfð með
bleika glossið þitt sem ég keypti
reglulega fyrir þig í Ameríku.
Aldrei hef ég séð þig ham-
ingjusamari en þegar þú giftist
Kobba þínum, þið voruð svo fal-
leg saman en fenguð alltof stutt-
an tíma.
Hann svo natinn og góður við
þig og þú áttir það skilið. Ég vil,
elsku vinkona, þakka þér þína
vináttu og veit að þú ert laus við
alla þjáningu sem var orðin
óbærileg þegar ég heyrði í þér
rétt fyrir andlátið.
Elsku Össi minn og Kobbi, þið
hafið misst yndislega móður og
eiginkonu. Ég vil líka senda kær-
ar kveðjur til foreldra Krissu
minnar og fjölskyldunnar allrar.
Kærleikskveðjur frá Tóta,
Höllu, Bjarka og Trausta með
þakklæti fyrir trausta vináttu í
gegnum árin.
Halla tengdamóðir mín sendir
kærar kveðjur og þakkar þér vin-
áttuna
Sakna þín endalaust, elsku
Krissu krútt
Elska þig … Þín vinkona
Bára Alexandersdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Samtök eldri sjálfstæðismanna hefja vetrar-
starfið með hádegisfundi í Valhöll á morgun,
miðvikudaginn 7. september, kl. 12 á
hádegi.
Gestur fundarins verður
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra og
formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Húsið verður opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi,
850 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Aðalfundur
Krýsuvíkursamtakanna
verður haldinn í Guðríðarkirkju, mánudaginn
19. september 2016 kl. 17.00.
Dagskrá :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
Stjórnin
Ofannefnd lagabreyting liggur frammi á skrif-
stofu félagsins.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hellisbraut 20, Snæfellsbær, fnr. 211-4312, þingl. eig. Húseigendaf.
Hellisbraut 20 ehf., gerðarbeiðandi Snæfellsbær, mánudaginn 12.
september nk. kl. 11:00.
Vallholt 18, Snæfellsbær, fnr. 210-3964, þingl. eig. Elín Kristrún
Halldórsdóttir og Elías Jóhann Róbertsson, gerðarbeiðendur Íbúða-
lánasjóður og Landsbankinn hf., mánudaginn 12. sept. nk. kl. 11:30.
Sælingsdalur 137739, 3811, Dalabyggð, fnr. 211-7556, þingl. eig.
Guðmundur Elísson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn
12. september nk. kl. 14:20.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
5. september 2016
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
JörðinTunga, Strandabyggð, 25% hluti í lóð nr. 2., fnr. 212-7697,
þingl. eig. Arnór Hvanndal Arnórsson, gerðarbeiðandiTollstjóri,
fimmtudaginn 8. september 2016 kl. 12:00.
Fiskislóð 1, Strandabyggð, fnr. 223-8369, þingl. eig. Hólmvíkingur ehf.
gerðarbeiðendurTryggingamiðstöðin hf., Byggðastofnun og Stranda-
byggð, fimmtudaginn 8. september nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum,
26. ágúst 2016.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á fiskiskipinu Unnari ÍS-300, skipaskrárnúmer
1866, þingl. eig. Kúvíkur ehf., gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fer
fram á skrifstofu embættisins Hafnarbraut 25, Hólmavík,fimmtu-
daginn 8. september nk. kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
26. ágúst 2016
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Hér í Vesturbænum er haustdagskráin að taka á sig
mynd. Opna vinnustofan alla daga kl. 9, féagsvist alla mánudaga kl.
13, útskurður byrjaði 5. sept., tálgun í dag, 6. sept, bókaklúbbur 8.
sept., postulín og myndlist 13., 14., og 15. sept. Fyrsta BINGÓ 23.
sept. og leikfimi 1. okt.
Boðinn Handavinnustofa opin frá 9–15, brids/kanasta kl. 13. Haust-
kynning í Gullsmára kl. 14, allir hjartanlega velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43 Lesið og spjallað kl. 10.30, kaffi/dagblöð og
hádegismatur.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, bænastund kl. 9.30, vöfflukaffi kl.
23.30.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Súpa og brauð á vægu verði eftir stundina. Eldri-
borgarastarf frá kl. 13–16. Fyrsta samvera eftir sumarfrí. Hlökkum til
að sjá ykkur. Verið hjartanlega velkomin.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi kl. 9.30–16, kaffimeð-
læti selt frá kl. 14, qi-gong í Sjálandsskóla kl. 9.40, karlaleikfimi í Sjá-
landsskóla kl. 13 og botsía kl. 13.45, vatnsleikfimi kl. 15. Brids nám-
skeið á vegum FEBG í Jónshúsi kl. 13, bútasaumur í Jónshúsi kl. 13,
Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kanasta kl. 13, haustkynning
kl. 14. Allir velkomnir!
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl.
10.10–11.10, hádegismatur kl. 11.30, Bónusbíllinn kl. 12.15, félagsvist
kl. 13.15, kaffi kl. 14.15, leikhópurinn Snúður og Snælda með æfingar
kl. 16-18, áhugasömum velkomið að vera með.
Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8–16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30. Kl. 13 tálgun í opinni vinnustofu, helgistund kl.
14, séra Ólafur Jóhannsson, kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, myndlistarnámskeið kl. 9
hjá Margréti Zóphoníasd., thai chi kl. 9, leikfimi kl. 10. Bónusbíll kl.
12.40, brids kl. 13, Bókabíllinn kl. 14.15, síðdegiskaffi kl. 14.30.
Minnum á haustfagnaðinn 9. september kl. 13 þar sem kynnt verður
starfsemi og dagskrá Hæðargarðs. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð
aldri og búsetu, nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Í Kópavogsskóla línudans framhald 3. stig (2 x í
viku) kl. 16. Framhald 2. stig (2 x íviku) kl. 17. Æfingar fyrir GA kl. 18.
Botsía í Digranesi vestursal kl. 16. Uppl. í síma 564-1490 og á
www.glod.is
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15, kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30, lomber Skólabraut kl. 13.30, karlakaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 14. Ath. Í dag er allra síðasti skráningardagur á Mamma
Mia í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 25. september. Skráning í síma
8939800 eða á Skólabraut.
Stangarhylur 4 Qi-gong námskeið kl. 10.15, leiðbeinandi Inga Björk
Sveinsdóttir. Uppbygging og næring fyrir fyrir sál og líkama. Skák
hefst að nýju kl. 13, allir velkomnir. FUNDUR Á AUSTURVELLI
fimmtudaginn 8. september kl. 17–18, félagsmenn hvattir til að mæta.
Vesturgata 7 Fótaaðgerð kl. 9, glerskurður (Tifffanýs) kl. 13–16,
leiðbeinandi Vigdís Hansen. Kaffisala kl. 13-14. Enska framhald hefst
föstudaginn 16. sept. kl. 10-12, leiðbeinandi Peter Vosicky.Tréútskurð-
ur byrjar í október, leiðbeinandi Lúðvík Einars. Nánari upplýsingar og
skráning á námskeiðin í síma 535-2740. Allir velkomnir óháð aldri.
Vitatorg Bútasaumur og glerbræðsla kl. 9, upplestur framhaldssögu
kl. 12.30, handavinna kl. 13–15, félagsvist spiluð kl. 13.30. allir vel-
komnir.
Smáauglýsingar
Geymslur
Ferðavagnageymsla
Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499-3070.
Sólbakki.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðar-lausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Ýmislegt Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Til leigu
Til leigu nýlegt 285 - 1.000 fm
atvinnuhúsnæði í Reykjavík
285 fm bil með allt að 9 m lofthæð,
stórar innkeyrsludyr, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir í s. 661 7000
fasteignir
Þjónustu-
auglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð