Morgunblaðið - 06.09.2016, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2016
Tónlistarmaður-
inn Sting fjallar
um myrkar hlið-
ar frægðar-
innar, hlýnun
jarðar og fráfall
þeirra Davids
Bowie og Prince
á nýrri plötu
sem væntanleg
er 11. nóvem-
ber. Platan ber titilinn 57th and
9th sem vísar til gatnamóta í New
York sem hann fer ávallt um á
leið sinni í hljóðverið. Frá þessu
er greint á vef The Guardian, en
þar kemur fram að þrjú ár eru
liðin frá því Sting sendi síðast frá
sér nýtt efni.
Syngur um Bowie
Sting
Að mörgu leyti er hægt aðtaka undir með frum-hreyfli sýningarinnar,Baltasar Kormáki:
Braggabækur Einars Kárasonar eru
freistandi hráefni í söngleik. Af-
markaður heimur með afgerandi
svip sem tíminn hefur litað róman-
tískum blæ, krydduðum grimmd,
trega og illum örlögum. Stórar og lit-
ríkar persónur. Rokk og ról. Auðvit-
að spillir ekkert fyrir hve vel þekkt
sagan er í öllum sínum birtingar-
myndum. Sem metsölubók, nútíma-
klassík mætti segja, sem kennsluefni
í skólum, leikrit og kvikmynd. Söng-
leikir hafa löngum verið byggðir á
slíkum grunni, enda þurfa þeir eðli
máls samkvæmt að vera ágrips-
kenndir.
Það eru líka vankantar. Sagan er
breið og kallar á styrka hönd við
handritaskrif til að búa til í hana
dramatíska spennu sem rúmast á
einni kvöldstund, þar sem ferðalög
persónanna og áhrif hver á aðra
mynda sannfærandi heild.
Þess sjást merki að handritshöf-
undar og verkstjórar Djöflaeyjunnar
hafi viljað stefna í þessa átt. Ræður
þar mestu sú ákvörðun að búa til
nokkurskonar ástarþríhyrning þar
sem bræðurnir Baddi og Danni
sækjast báðir eftir ástum Gerðar,
sem jafnframt er gerð að bragga-
barni og bernskuleikfélaga þeirra,
dóttur Hreggviðs kúluvarpara.
Ekki hefur samt verið gengið svo
langt að gera þetta drama að þunga-
miðju sýningarinnar, sem er að
mestu byggð upp í kringum afmörk-
uð, svipmikil atriði úr bókunum. Am-
erísku jólin í Gamla húsinu (sem hér
er reyndar bara braggi meðal
bragga), samdráttur Dollýjar og
Dóra smiðs, heimkoma og partístand
Badda, koma sjónvarpsins, frami og
dauði Danna. Þetta er svipuð leið og
aðrir handritshöfundar hafa farið, og
ef til vill hefði verið gaman að fara
sjálfstæðari leið við úrvinnslu bókar-
innar, prófa að ýta öðrum hlutum í
forgrunninn.
Ekki það að margt sé ekki
skemmtilegt. Stórt og mikið partí-
og fyllerísatriði var líflegt og kraft-
mikið, og þar naut sín sérlega vel fal-
leg, snjöll og fjölnýtanleg leikmynd
Vytautas Narbutas. Skemmtilegar
voru innkomur Gógóar frá Ameríku
og gaman að sjá Eddu Björgu Eyj-
ólfsdóttur rifja upp gamanleik-
konutaktana eftir sitt dramatíska
síðasta leikár. Ekkert kætti þó
áhorfendur á frumsýningu til jafns
við ástarævintýri Dóra og Dollýjar,
enda var þar miskunnarlaust skop-
ast með söngleikhúshefðina og tveir
frábærir gamanleikarar, Guðjón
Davíð Karlsson og Katrín Halldóra
Sigurðardóttir, nutu þess greinilega
til hins ýtrasta. Almennt þótti mér
sýningin fljúga hærra í skopi en al-
vöru, sem þó var líka leikið á. Eðli-
lega. Hér deyja börn, bræður berj-
ast.
En dramað nær því miður ekki
nægilega háu flugi. Það skrifast
fyrst og fremst á handritið og leik-
stjórnarúrvinnslu þess. Söngleikja-
formið með öllum sínum tæknikröf-
um og takmörkunum er ekki
heppilegur vettvangur fyrir lausatök
hópvinnunnar. Leikin atriði þurfa að
vera tálguð og þjóna skýrum tilgangi
við að framfleyta sögunni, teikna
persónur, kortleggja samskipti,
greina frá þróun. Hratt og örugg-
lega.
Þetta lánast ekki nógu vel hér og
kemur verst niður á risi og falli
Badda. Þórir Sæmundsson lýsir hon-
um í sjálfu sér vel í samhengi sýning-
arinnar. Gaman hvað hann var hljóð-
látur og heimóttarlegur í upphafi,
sannfærandi róni í blálokin og hin
eindregna skopfærsla eftir heim-
komuna var gleðivaki sem slík. En
fyrir vikið var erfitt að trúa á að
þessi ýkti rokkari hefði það náðar-
vald sem honum er ætlað. Verra þó
hvað mótleikarar hans gerðu lítið til
að styðja þá mynd. Enginn virtist
óttast hann, enginn bera virðingu
fyrir honum. Enginn elska hann
nema amman. Sama má segja um
hina ágætlega skýru en kannski ögn
fyrirsjáanlegu túlkun Guðrúnar
Snæfríðar Gísladóttur á Karólínu:
hún fær engan þann mótleik frá öðr-
um sem gerir stöðu hennar sem
göldróttur heimilisharðstjóri, og
skjól fyrir Badda til að rækta lesti
sína, trúverðuga. Hér hefði Atli Rafn
Sigurðarson þurft að leggja skýrari
línur úr leikstjórastólnum.
Eggert Þorleifsson skilar Tomma
líka nokkurnveginn nákvæmlega
eins og reikna mátti með, og það
virkar ágætlega. Arnmundur Ernst
Backman er prýðilega hófstilltur í
hlutverki Danna, kannski samt dauf-
ur um of, og ég er ekki viss um að
breytingin yfir í sjálfsöruggan flug-
kappa eigi að vera svona ýkt og með-
vituð. Þriðja hjólið í ástardramanu,
Gerður Hreggviðsdóttir, fær alltof
lítið efni fyrir Snæfríði Ingvars-
dóttur til að vinna úr annað en að
vera þögul og fögur, og syngja. Sem
hún gerir fallega, eins og reyndar
allir sem fá slík númer.
Almennt þykir mér tónlistin og
möguleikar söngleiksins ekki nýtast
nægilega vel til að reka erindi sýn-
ingarinnar. Lög Badda eru í stíl tíð-
arandans, önnur ekki, sem er sér-
kennileg ákvörðun. Textarnir eru að
mestu mjög almenn lífsspeki, nánast
aldrei með beina eða skýra vísun í líf
eða aðstæður þess sem syngur, hvað
þá til að fleyta sögunni áfram.
Söngvarnir gætu auðveldlega staðið
sjálfstæðir og verið settir saman af
einhverju allt öðru tilefni. Best
heppnað þótti mér „Ameríka“, sem
Katrín Halldóra fór frábærlega með.
Ballsöngur Gerðar er líka fallegt lag
og textinn flottur, en er þessi lífs- og
drykkjuþreyta nokkuð tímabær á
þessum stað í lífi persónanna? Eitt
dæmi um hvað áhrifamáttur söng-
leikjaformsins er vannýttur, mér
liggur við að segja vantreyst. Lögin
og textarnir eru ágætlega heppnuð
sem slík, skemmta og gleðja áhorf-
endur, en vinna ekki vinnuna sína í
þágu verksins.
Fyrir utan ástarbrall þeirra
bræðra er alkóhólið hið dramatíska
eldsneyti. Þórgunnur, Dóri smiður
og Hreggviður mynda einskonar
rónakór sem sveimar í kringum fjöl-
skylduna, sem aftur býr til skjól fyr-
ir Badda til að ganga þessa sömu leið
til heljar. Það er skiljanlegt að gefa
þessu grundvallaratriði ekki algeran
forgang í framvindunni, þetta á jú að
vera skemmtilegt. En þó þau Birg-
itta Birgisdóttir og Gunnar Jónsson
vinni vel úr sínu verða þau hálf-
utanveltu í gangverki sýningarinnar.
Kannski sérstaklega Birgitta, þar
sem harmsaga Þórgunnar virðist
eiga að vera einhverskonar þunga-
miðja ef marka má hvernig dauða
Didda sonar hennar eru gerð skil í
upphafi. Annað dæmi um hvað ag-
aðri handritsvinna hefði getað bætt.
Svo heyri ég reyndar alveg fyrir mér
rónasönginn sem þau hefðu getað
kyrjað, lofsungið sitt frjálsa líf en af-
hjúpað um leið helsi sitt. Hann er
ekki hér.
Djöflaeyjan í Þjóðleikhúsinu kveð-
ur ekki upp einhlítan úrskurð um
ágæti hugmyndar Baltasars. Til þess
er úrvinnslan of ómarkviss. Það má
vel vera að í stóra sagnapollinum í
Thulekampi Einars Kárasonar
leynist enn efni í söngleik þar sem
máttur þess merkilega forms nýttist
til fullnustu til að gleðja og hrífa okk-
ur enn á ný. Þetta er ekki hann, þó
hér sé á köflum stuð.
Niður til heljar hérumbil
Þjóðleikhúsið
Djöflaeyjan bbbnn
Eftir Einar Kárason í leikgerð Atla Rafns
Sigurðarsonar, Melkorku Teklu Ólafs-
dóttur og leikhópsins. Leikstjórn: Atli
Rafn Sigurðarson. Dramatúrg: Melkorka
Tekla Ólafsdóttir. Söngtextar: Bragi
Valdimar Skúlason og fleiri. Tónlist:
Memfismafían. Tónlistarstjórn: Guð-
mundur Óskar Guðmundsson. Sviðs-
hreyfingar: Margrét Bjarnadóttir. Leik-
mynd: Vytautas Narbutas. Búningar:
Filippía I. Elísdóttir. Lýsing: Halldór Örn
Óskarsson. Hljóðmynd: Kristinn Gauti
Einarsson. Hljómsveit: Aron Steinn Ás-
bjarnarson, Guðmundur Óskar Guð-
mundsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson,
Þorvaldur Þór Þorvaldsson og Örn Eld-
járn. Leikarar: Arnmundur Ernst Back-
man, Baltasar Breki Samper, Birgitta
Birgisdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Eggert Þorleifsson, Guðjón Davíð Karls-
son, Guðrún Snæfríður Gísladóttir,
Gunnar Jónsson, Hallgrímur Ólafsson,
Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sigurður
Þór Óskarsson, Snæfríður Ingvarsdóttir
og Þórir Sæmundsson. Frumsýning á
Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardag-
inn 3. september 2016.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Djamm „Það er alltaf annar drykkur, einhver þarf að drekka ykkur. Meðan nóttin fellur á.“
WAR DOGS 8, 10:25
NÍU LÍF 6
HELL OR HIGH WATER 5:50, 8, 10:10
SAUSAGE PARTY 10:30
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 6
JASON BOURNE 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ