Morgunblaðið - 19.09.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
PRAG
22. sept í 4 nætur
Netverð á mann frá kr. 66.995 m.v. 2 í
herbergi.
Hotel Vienna
House Diplomat
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
66.995
Helgarferð til
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
FY
RI
R2 1
áflugsæti
m/gistingu
Bryddað var upp á mörgu skemmtilegu á laug-
ardag þegar haldið var upp á 60 ára afmæli
verslunarinnar Kjötborgar við Ásvallagötu í
Reykjavík. Listamenn komu fram og gestum og
gangandi var boðið upp á grillaðar pylsur og
fleira. Fjölmargir mættu á svæðið, enda eiga
bræðurnir sem versla í Kjötborg, Kristján og
Gunnar Jónassynir, marga trygga viðskiptavini
sem telja hverfisbúð í gamla stílnum ómissandi.
Hátíð í Vesturbænum í tilefni af 60 ára afmæli Kjötborgar
Morgunblaðið/Ófeigur
Grillað undir garðvegg við Ásvallagötuna
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Til stendur að leggja hornstein að
nýju rannsóknarhúsi á bænum Kár-
hóli í Reykjadal í Þingeyjarsveit í
næsta mánuði. Húsið er byggt á veg-
um sjáfseignarstofnunarinnar Auro-
ra Observatory, en að baki henni
standa atvinnuþróunarfélögin í
landshlutanum og fleiri aðilar. Hlut-
verk stofnunarinnar er eignarhald
og rekstur fasteigna vegna norður-
ljósarannsóknarstöðvar sem heim-
skautastofnun Kína – Polar Re-
search Institute of China – rekur
skv. samkomulagi við Rannís.
Rannsóknartæki í skel
Nú þegar eru steyptir veggir
kjallara og 1. hæðar hússins á Kár-
hóli komnir upp – og á næstu vikum
verður 2. hæðin reist, það er létt stál-
grindarbygging en innan skeljar
verða rannsóknartæki.
„Núna er keppikefli okkar að ljúka
við efstu hæðina og loka bygging-
unni í haust þannig að unnt sé að
koma upp tækjabúnaði stöðvarinnar.
Veturinn yrði þá notaður til vinnu
innanhúss svo starfsemi geti hafist
næsta vor,“ segir Reinhard Reynis-
son, framkvæmdastjóri Atvinnuþró-
unarfélags Þingeyinga. Rannsókn-
arhúsið er um 760 fermetrar að
flatarmáli og er skammt norðan og
ofan við bæjarhúsin á Kárhóli.
Heimskautastofnunin í Kína rekur
áþekkar rannsóknarstöðvar í Noregi
og á Suðurskautslandinu. Vísinda-
menn sem á hennar vegum starfa
hafa m.a. það markmið að efla skiln-
ing á samspili sólar og jarðar með
því til dæmis að kanna norðurljósin,
það er rafskautabylgjurnar sem
dansa milli norður- og suðurskauts-
ins. Þær íslensku stofnanir sem
koma að vísindastafinu eru m.a.
Rannís, Raunvísindastofun Háskóla
Íslands, Veðurstofa Íslands, Norð-
urslóðanet Íslands og Háskólinn á
Akureyri.
Kínverjar greiða allan kostnað
Að sögn Reinhards eru fram-
kvæmdir á Kárhóli að fullu fjár-
magnaðar en heimskautastofnunin
kínverska greiðir allan kostnað
vegna fjáfestinga og reksturs.
Frágangur á jarðhæð þar sem
verður gestastofa og aðstaða til
fundarhalda og slíks verður kostaður
með öðru móti og er undirbúningur
þeirrar fjármögnunar hafinn.
Norðurljósastöð senn tilbúin
Samspil sólar og jarðar Horft til himins í Þingeyjarsveit Heimskautastofn-
unin kínverska fjármagnar uppbyggingu vísindaseturs við Kárhól í Reykjadal
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjadalur Rannsóknarstöðin er með skipslagi og stefnið snýr til norðurs.
Meirihluti þeirra sem svöruðu í
skoðanakönnun Gallup vill að nýr
Landspítali rísi á Vífilsstöðum.
Samt segist meirihluti þátttakenda
hlynntur því að stjórnvöld láti gera
nýja greiningu á staðsetningu.
Netkönnun var gerð fyrir sam-
tökin Betri spítala. 861 svar barst af
1416 manna úrtaki fólks af öllu
landinu og var svarhlutfall 61%.
Af þeim sem afstöðu tóku vildu
51,8% þátttakenda að nýr Landspít-
ali risi á Vífilsstöðum, 38,5% vildu
að hann yrði byggður við Hring-
braut.
Einnig var spurt hvort fólk væri
hlynnt því eða andvígt að stjórnvöld
létu gera nýja greiningu á staðsetn-
ingu fyrir spítalann. 53,9% þátttak-
enda voru hlynnt og 27,7% andvíg.
Samtökin Betri spítali segja í til-
kynningu að æskilegast væri að
þjóðin tæki endanlega ákvörðun,
með vandaðri könnun eða þjóðarat-
kvæðagreiðslu. „Það er von okkar
að þetta mál fái athygli í aðdrag-
anda kosninga og að nýtt Alþingi
taki málið upp.“
Meirihlutinn vill að nýr
spítali rísi á Vífilsstöðum
Skoðanakönnun
fyrir samtökin
Betri spítala
Morgunblaðið/ÞÖK
Vífilsstaðir Meirihlutinn vill flytja Landspítalann til Vífilsstaða en jafn-
framt að ný greining verði gerð á staðarvali.
Kínverskur maður á fimmtugsaldri
lést þegar hann varð fyrir bíl á þjóð-
veginum á Sólheimasandi í Mýrdal
seint á laugardagskvöldið. Maðurinn
var í hópi fólks sem var á tveimur
bílum sem var lagt í vegkanti
skammt frá þeim stað þar sem ekið
er að flugvélarflaki á sandinum.
Maðurinn gekk út á veginn þar sem
bíll kom úr austurátt og varð fyrir
honum. Slysið og aðrir málavextir
eru í rannsókn hjá lögreglunni á
Suðurlandi. Sendiráð Kína á Íslandi
annast samskipti við aðstandendur
hins láta í heimalandinu.
Kínverskur maður
lést í umferðarslysi
á Sólheimasandi
Að Kárhóli
verða gerðar
langtíma-
mælingar á
áhrifum sól-
ar á háloftin.
„Hver lota í
sólvirkninni,
þar sem sól-
blettafjöldi
og gos á yf-
irborði sólar
eru mismikil, varir í ellefu ár.
Vísindamennirnir kínversku
vilja ná nokkrum svona lotum
svo stöðin fyrir norðan verður
þá starfrækt í kannski 30-50
ár,“ segir Gunnlaugur Björns-
son, vísindamaður hjá HÍ.
Norðurljósabeltið svonefnda
liggur þvert yfir Ísland og því
hafa stjarnvísindamenn mikinn
áhuga á að gera rannsóknir sín-
ar hér á landi.
11 ára lotur
BELTIÐ YFIR ÍSLANDI
Gunnlaugur
Björnsson
Íslendingur, maður um fertugt, lést
þegar bíll valt við bæinn Hamra-
enda í Breiðuvík á utanverðu Snæ-
fellsnesi aðfaranótt sunnudags. Til-
kynning barst lögreglunni fljótlega
eftir miðnætti og fóru lögregla og
sjúkralið þá þegar á vettvang. Þá
var þyrla frá Landhelgisgæslunni
kölluð til og flutti hún konu sem var
í sama bíl alvarlega slasaða á gjör-
gæsludeild á Landspítalanum í
Reykjavík. Lögreglan á Vestur-
landi er með málið í rannsókn.
Eftir slys helgarinnar, það er í
Mýrdal og á Snæfellsnesi, hafa nú
tólf látist í umferðinni á þessu ári. Í
fyrra létust 16.
Lést í bílslysi í
Breiðuvík