Morgunblaðið - 19.09.2016, Side 11

Morgunblaðið - 19.09.2016, Side 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári Formaður Óttarr Proppé var einn í kjöri til embættis formanns. Eva Einarsdóttir varaborgarfulltrúi var kjörin stjórnarformaður Bjartrar framtíðar í rafrænni kosningu á árs- fundi flokksins, sem haldinn var í Gufunesi sl. laugardag. Hún bar sig- urorð af Björt Ólafsdóttur sem einnig bauð fram krafta sína. Óttarr Proppé var endurkjörinn formaður flokksins. Þá taka 43 nýir stjórnarmenn sæti í 80 manna stjórn flokksins. Aukið lýðræði Nokkrar ályktanir voru sam- þykktar á ársfundinum, meðal annars um lýðræði. Það megi til dæmis efla með reglulegum þjóðfundum. Í ályktun um landbúnaðarmál kemur fram sú skoðun að þau kerfi sem íslenskur landbúnaður býr við séu bændum hamlandi hvað varðar framfærslu, frumkvæði og nýsköpun. Nýgerðir búvörusamningar séu samningar um gamla Ísland, eins og tekið er til orða, í andstöðu við sam- keppni og mikilvæga sátt hags- munaaðila. Eva kjörin nýr stjórn- arformaður FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VANDINN LIGGUR OFT HJÁ OKKUR SJÁLFUM. SAMÞYKKIR ÞÚ KYNFERÐISOFBELDI? Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is HB Grandi hf. hefur sent Faxa- flóahöfnum erindi þess efnis að fyrirtækið verði eigandi og rekstr- araðili veitukerfa fyrir skip á at- hafnasvæði sínu á Norðurgarði á Granda. Hafnarstjórn tók málið fyrir á fundi sínum á föstudag og getur fyrir sitt leyti fallist á að HB Grandi hf. eigi og reki veitulagnir á Norðurgarði að hluta eða öllu leyti, enda markmið fyrirtækisins að auka verulega rafmagnsnotkun og heitt vatn vegna landtengingar skipa. Gísla Gíslasyni hafnarstjóra var heimilað að ganga til viðræðna við fyrirtækið um gerð samnings um verkefnið. Í minnisblaði Jóns Þorvaldsson- ar aðstoðarhafnarstjóra kemur fram að raforkudreifing til skipa yrði um lágspennukerfi. Skipin yrðu hituð með hitaveitu í höfn og þá yrði gerlegt að útvega nægjan- lega raforku til þeirra um lág- spennukerfi. „Fullur vilji og mikill metnaður er fyrir hendi hjá fyr- irtækinu í að koma þessu á og lík- lega yrði verð á raforku og kostn- aður þeirra við þetta lægri en ef raforkusalan yrði á vegum hafnar. Notkun á rafmagni yrði markviss- ari og hvati til staðar til viðhalds og endurbóta á kerfinu,“ segir í minnisblaðinu. Jón segir í minnisblaðinu að fyrir liggi að HB Grandi sé að endurnýja sinn skipastól og hafinn sé undir- búningur og hönnun á nýjum hafn- arbakka við Norðurgarð fyrir ís- fisktogara HB Granda. Útboð eru hafin Útboð á stálþili og stagefni fyrir bakkagerð stendur yfir og miðað er við að útboð á byggingu hafnar- bakkans verði um næstu áramót. Framkvæmdir við bakkagerð, bún- að og ýmsan frágang standa yfir á árinu 2017 og fram á árið 2018. Þessu fylgi að skoða þurfi öll veit- umál fyrir hafnaraðstöðu og hanna ný veitukerfi sem uppfylla þarfir þessara nýju skipa sem nýta munu hafnaraðstöðuna næstu áratugina. Jón bendir á að fyrir liggi ný samantekt um aukna notkun á end- urnýjanlegum orkugjöfum til skipa hjá Faxaflóahöfnum. Þar sé bent á og hvatt til aukinnar notkunar á innlendum orkugjöfum til þjónustu við skip í höfnum og ávinning af því að dregið verði úr útblæstri meng- unarefna sem fylgja brennslu olíu við keyrslu ljósavéla skipa. HB Grandi vill fá heimild til að reka veitukerfi fyrir skip  Endurnýja skipastólinn  Vilja tengja skipin við rafmagn og heitt vatn Morgunblaðið/Styrmir Kári Góð viðbrögð Hafnarstjórn getur fyrir sitt leyti fallist á að HB Grandi hf. eigi og reki veitulagnir á Norðurgarði. „Við höfum ekki tekið upp svona könnunarpróf,“ segir Sigurborg Matthíasdóttir, konrektor Mennta- skólans í Hamrahlíð, en eins og Morgunblaðið sagði frá í síðustu viku er Verslunarskólinn byrjaður að vera með könnunarpróf í ís- lensku og stærðfræði. Stjórnendur skólans byrjuðu á þessu fyrir þremur árum þegar grunnskól- arnir hættu samræmdu prófunum en að mati margra auðvelduðu samræmdu prófin inntöku nem- enda í framhaldsskólana. „Við í Menntaskólanum í Hamrahlíð ákváðum að vera ekki með svona könnunarpróf. Við sjáum svo til þegar nýja nám- skráin verður tekin upp hvort við komum könnunarprófum á,“ segir Sigurborg. Nú hefur verið talað um ein- kunnaverðbólgu eftir að sam- ræmdu prófin voru aflögð, en þið treystið grunnskólunum? „Við höf- um ekki reynt annað en að þessum grunnskólaprófum sé treystandi. Auðvitað getur komið eitthvað misræmi upp. Okkar reynsla er að það er allt- af einhver munur á milli grunn- skóla en við sjáum engin skýr dæmi um að það sé ekki hægt að treysta námsmati grunnskóla. Við höfum gert könnun á þessu og í þeirri könnun virtist vera góð fylgni á milli grunnskólaeinkunnar og einkunnar í fyrsta áfanga hjá okkur.“ Rektor MR vill samræmd próf „Við myndum vilja sjá samræmd próf,“ segir Yngvi Pétursson, rekt- or Menntaskólans í Reykjavík. „Við höfum ekki tekið upp formleg könnunarpróf. En við fylgjumst með nemendum okkar. Höfum ver- ið að bjóða þeim sem gengur illa upp á stoðkennslu,“ segir Yngvi. „Það eru samræmd próf í grunnskólunum, en ekki með þeim hætti sem var, þar sem þetta voru nokkurskonar inntökupróf inn í framhaldsskólana,“ segir Skúli Pétursson, sérfræðingur í prófa- gerð hjá Menntamálastofnun. „Prófin verða með rafrænum hætti og eru hugsuð til notkunar innan grunnskólanna en ekki fyrir fram- haldsskólana. Þeir mega ekki taka tillit til þessara prófa við inntöku nemenda.“ borkur@mbl.is Morgunblaðið/Golli Könnunarpróf MH ætlar ekki að fara að dæmi Verslunarskólans. Samræmdu prófin eru með öðrum hætti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.