Morgunblaðið - 19.09.2016, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9. Félagsvist, útskurður 1 og frjáls
tími í myndlist kl. 13.
Árskógar 4 Botsía með Þóreyju kl. 9.30. Zumba gold leiðbeinandi
Tanya kl. 10.30. Ganga um nágrennið ef veður leyfir kl. 11-11.40,
handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með stjórnanda
kl. 13. Bútasaumur Ljósbrotsins kl. 13-16. Myndlist með Elsu kl. 16.
Boðinn Bingó kl. 13 og myndlist kl. 13þ
Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.30 og prjónaklúbbur kl. 13.
Bústaðakirkja Samvera í safnaðarheimilinu milli kl.13-16 á miðviku-
dögum. Jónas Þórir kemur og spilar fyrir okkur, myndasýning, hug-
leiðing og bæn og kaffið góða hjá Sigubjörgu. Allir hjartanlega vel-
komnir. Hólmfríður djákni.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16. Með-
læti selt með síðdegiskaffinu frá kl. 14-15.45. Vatnsleikfimi kl. 8 og 14.
Kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9, stólaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 10
og kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13. Haustlita- og
sælkeraferð FEBG, farið verður frá Jónshúsi kl. 13 og 10 mínútum
síðar frá Garðatorgi.
Gerðuberg Kl. 9-16 opin handavinnustofa, kl. 9-16 útskurður með
leiðbeinanda, kl. 13-14 línudans, kl. 14.30-16.30 kóræfing (áhugasamir
velkomnir á æfingu).
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 gler og postulíns-
málun, kl. 10.50 jóga, kl. 13 lomber, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl.10, handavinna
og brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa
á staðnum. Allir velkomnir!
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Göngu-
hópur kl. 10.30 þegar veður leyfir. Dóra djákni í heimsókn kl. 10–12.
Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8–16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi. Zumbadans og
erobik kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir
hádegi. Spilað brids kl. 13, mömmuhópur kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, glerlist kl.
9. Myndlist hjá Margréti Zóphoníasd. kl. 12.30, handavinnuhornið kl.
13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðar-
garð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum og
Grafarvogskirkju, línudans kl. 11, skartgripagerð kl. 13 í Borgum.
Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Félagsvist kl. 13 í Borgum, en
Qigong fellur niður í dag en verður næsta miðvikudag 21. september.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl.11, trésmiðja kl. 13–16, bíó á 2. hæð kl.15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi Húsið er opið frá kl. 10–14 en starfsemi verður þó
fram til 16. Upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi, gott að koma í spjall og
kíkja í blöðin. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, félagsvist er kl. 13.15 í
umsjón Sesselju og Erlu. Molasopinn er frammi eftir hádegi og vest-
ursalurinn opinn kl. 14–16. Allir hjartanlega velkomnir. Skráning í leik-
fimi hjá Guðnýju stendur yfir.
Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Leir á Skólabraut kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga, salnum
Skólabraut kl. 11.30. Handavinna , opinn salur Skólabraut kl. 13. Vatns-
leikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. Námskeið í bókbandi hefst
fimmtudaginn 22. september ef næg þáttaka fæst. Skráning í síma
8939800.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba Gold námskeið kl. 10.30. í
Félagsmiðstöðinni Árskógum 4. LeiðbeinandiTanya. Ipad-námskeið
kl. 13.30, leiðbeinandi Baldur Magnússon. Danskennsla samkvæmis-
dansar kl. 17, línudans kl. 18 og samkvæmisdansar framhald kl. 19,
kennari Lizy Steinsdóttir.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðar-lausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Þjónusta
Háþrýstiþvottur,
sandblástur
og veggjaslípun.
Öflug tæki - Gott verð
S.860 2130
Ýmislegt
Vandaðir herraskór úr leðri frá
JOMOS
Teg: 208204 Herraskór úr leðri,
skinnfóðraðir með góðum sóla. Litir:
cognac, mokka og svart.
Stærðir: 40 - 48. Verð 15.500
Teg: 420408 Einstaklega mjúkir og
góðir herraskór úr leðri, skinn-
fóðraðir og með góðum sóla.
Stærðir: 40 - 48. Verð 19.885.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
opið 10–14 laugardaga.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Ríf ryð af þökum
og ryðbletta
Hreinsa þakrennur
fyrir veturinn o.fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Til leigu
Til leigu nýlegt 285 - 1.000 fm
atvinnuhúsnæði í Reykjavík
285 fm bil með allt að 9 m lofthæð,
stórar innkeyrsludyr, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir í s. 661 7000
Magnús Ólafsson
fæddist í Reykja-
vík 12. mars árið
1950. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 11. sept-
ember 2016.
Foreldrar
Magnúsar voru
Ólafur Magnússon
frá Mosfelli, f. 1.
janúar 1910, d. 25.
febrúar 1991, og
Rósa Sigurborg Jakobsdóttir,
f. á Bessastöðum 22. október
1911, d. 18. mars 2001. Systk-
ini Magnúsar eru Skúli Þór
Kjartansson, sammæðra, f.
1933, d. 2006, Valgerður
Ólafsdóttir, f. 1944, og Einar
Ólafsson f. 1945.
Magnús kvæntist Þórunni
Sigurðardóttur, f. 18. ágúst
1955, árið 1979. Börn þeirra
eru: 1. Sigurður Jarl, f. 1982,
kerfisstjóri hjá Reiknistofnun
Háskólans. 2. Lóa Bára, f.
1984, vörumerkjastjóri hjá
Cloetta Norge, maki Freyr
Pálsson, f. 1984. Börn þeirra
eru: a) Magnús Egill, f. 2012,
og b) Hildur Sól-
ey, f. 2013. 3.
Katrín Þyri, f.
1988, sérfræð-
ingur hjá Zenter
rannsóknum, sam-
býlismaður Dennis
Lindkvist Ped-
ersen, f. 1988. 4.
Vala Sif, f. 1992,
viðskipta-
fræðinemi í BI
Norwegian Bus-
iness School.
Magnús fæddist á fæðing-
arheimilinu við Eiríksgötu í
Reykjavík. Lengst af bjó hann
við Tjarnargötu í Reykjavík
ásamt eiginkonu og börnum.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1971 og útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur frá Há-
skóla Íslands árið 1977. Hann
sinnti lengst af versl-
unarrekstri og rak ásamt eig-
inkonu sinni barnavöruversl-
unina Fífu í 21 ár.
Minningarathöfn um Magn-
ús fer fram í Iðnó í dag, 19.
september 2016, klukkan 15.
Elsku pabbi er látinn. Ég
gæti skrifað bók um þennan
einstaka mann en verð hér að
láta nægja litla grein. Pabbi var
enginn venjulegur maður, hann
lifði hratt, hann lifði stórt og
hafði alltaf mörg járn í eld-
inum. Það gerði hann líka undir
lokin þegar hann fékk þetta
miskunnarlausa krabbamein
sem át hann upp á örfáum mán-
uðum. Samt hélt hann áfram að
dytta að húsinu enda sérlega
ósérhlífinn og gat ekki verið
þekktur fyrir lélegt viðhald
húsa. Hann stóð sig eins og
hetja og sýndi einstakt æðru-
leysi í veikindunum og virðing-
arverða jákvæðni sem mun
seint gleymast.
Pabbi var einstaklega hjálp-
samur maður og hafði tak-
markalausa umhyggju að gefa.
Hann mátti ekki frétta af nein-
um sem vantaði aðstoð við
hvers konar verkefni, þá var
hann mættur. Í hvert sinn sem
við hjónin höfum flutt, heims-
horna á milli, hefur pabbi verið
snöggur að mæta á staðinn og
gera allt spikk og span fyrir
okkur. Þessa miklu hjálpsemi
var stundum hægt að túlka sem
afskiptasemi, en þarna bjó
sannarlega undir hrein um-
hyggja og velvilji.
Hann þjáðist af miklum próf-
kvíða á námsferlinum sem við
systkinin nutum góðs af, því
hann dekraði okkur ótakmark-
að þegar við vorum í prófum.
Hann bar í okkur allar þær
veitingar sem við gátum hugsað
okkur og snerist í kringum okk-
ur þannig að ég hlakkaði alltaf
til prófatarnarinnar.
Allt þetta gerði hann á með-
an hann ól upp fjögur börn og
rak umfangsmikið fyrirtæki.
Við pabbi unnum lengi saman í
Fífu. Þar ól hann upp sölukonu
og prentaði í mig viðskiptavit
frá blautu barnsbeini. Foreldr-
ar mínir gáfu mér fljótt ábyrgð
og krefjandi verkefni sem hafa
mótað mig bæði í lífi og starfi.
Við áttum margar góðar stund-
ir saman í Fífu, mönuðum hvort
annað í að panta sterkustu rétt-
ina á Núðluhúsinu og það var
alltaf stutt í grínið. Enda var
hann pabbi minn ótrúlega
skemmtilegur maður með ein-
staka kímnigáfu. Í mennta-
skólapartíunum á Tjarnargötu í
gamla daga linntu vinir mínir
ekki látunum fyrr en búið að
var að sækja mömmu og pabba
í partíið, hróka alls fagnaðar.
Ég mun ávallt vera þakklát
fyrir að hafa fengið þennan frá-
bæra pabba, hann hefur verið
stoð mín og stytta í blíðu og
stríðu, fyrirmynd og góður fé-
lagi. Það var ekki spurning að
sonur minn skyldi fá nafn þessa
merka manns og það er harm-
leikur að börnin fái ekki að
kynnast afa sínum betur. Nú
tekur við líf án pabbaknúsa og
tásunuddsins sem gat læknað
öll mein. Ósk pabba var að við
skyldum njóta lífsins og halda
áfram og það munum við gera
með trega. Ég tek með mér all-
an lærdóminn sem pabbi hefur
gefið mér og geymi minninguna
um pabbalíus í hjarta mér.
Deyr fé
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldrei deyr:
dómur um dauðan hvern.
(Úr Hávamálum)
Lóa Bára Magnúsdóttir.
Við vorum ung og lífið lék við
okkur, allt var svo skemmtilegt
og spennandi. Við Guðni vorum
nýbyrjuð að búa og vorum að
halda eitt af okkar fyrstu mat-
arboðum. Þórunn systir hafði
boðið einhverjum strák með og
hún ljómaði af gleði. Við hin
vorum spennt að sjá gæjann.
Svo birtist hann þegar aðeins
var liðið á borðhaldið, fíngerð-
ur, með ljóst hrokkið hár og
ótrúlega fallegt bros. Hann lék
á als oddi, hnyttinn og orðhepp-
inn og ekki fór á milli mála að
þarna var kominn maðurinn í
lífi Þórunnar systur. Þetta voru
okkar fyrstu kynni af Magnúsi
Ólafssyni sem síðar varð ekki
bara mágur okkar og svili held-
ur líka okkar besti vinur.
Maggi og Þórunn bjuggu sér
fallegt heimili að Tjarnargötu
30 í Reykjavík þar sem þau
bjuggu lengst af sinn búskap og
þar ólu þau upp börnin sín fjög-
ur. Mikill samgangur var á milli
okkar, við Guðni líka með fjög-
ur börn öll á sama aldri og því
oft kátt í höllinni. Eftir að við
Guðni fluttum til Húsavíkur
þurftum við oft að koma í bæ-
inn og þá stóð ekki á þeim
hjónum að bjóða okkur gistingu
eða passa fyrir okkar börnin
þegar því var að skipta.
Ógleymanlegar eru allar sólar-
landaferðirnar sem við fórum
saman með öll börnin og úr
þeim ferðum eigum við ynd-
islegar minningar. Síðar keyptu
þau hjónin sér hús í Þýskalandi
og dvöldu þar hluta af árinu.
Þangað voru allir velkomnir og
þau hjón einstaklega góðir
gestgjafar. Maggi lá ekki á liði
sínu við að keyra okkur um
héraðið og sýna okkur fallega
staði og segja okkur sögur.
Hann hafði mikla næmni fyrir
tungumáli og menningu og naut
þess að kynnast nýjum siðum.
Maggi var mikill hjólagarpur
og þau hjón hjóluðu víða um
Þýskaland. Við Guðni nutum
þess að fá að fara með þeim í
slíkar ferðir og auðvitað voru
það Maggi og Þórunn sem
skipulögðu ferðirnar.
Magnús var ekki hár maður
vexti en hann var hamhleypa til
allra verka. Hann var laghentur
og hafði mikið verkvit. Hann sá
vel um heimilið og lá ekki á liði
sínu við að hjálpa vinum og
vandamönnum ef þess þurfti
með. Hann hafði yndi af tónlist
og hafði fallega söngrödd.
Einnig var hann listakokkur og
mikill smekkmaður á mat og
vín. Maggi var einstaklega
skemmtilegur maður og það
var gaman að vera í návist
hans. Hann átti það til að
henda gaman að samferða-
mönnum sínum en mest gerði
hann þó grín að sjálfum sér.
Svo var hann algjör bíladellu-
karl, vissi allt um bíla og þá
sérstaklega sjaldgæfa gamla
bíla enda átti hann nokkra slíka
og ekki er hægt að hafa tölu á
hversu mörg og skrítin mót-
orhjól hann átti um ævina.
Maggi var mikill fjölskyldu-
maður og hugsaði vel um hag
fjölskyldunnar. Hann var ein-
staklega góður og umhyggju-
samur faðir og góður vinur vina
sinna.
Eftir óvenju bjart og fagurt
sumar tekur að hausta og
sunnudagsmorguninn 11. sept-
ember kvaddi Magnús þetta líf
eftir harða baráttu við illvígan
sjúkdóm. Að þessu sinni varð
Maggi að lúta í lægra haldi fyr-
ir ofjarli sínum. Eftir sitja Þór-
unn og börnin og missir þeirra
er mikill og sendum við þeim
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Við söknum góðs vinar.
Þyri og Guðni.
Magnús Ólafsson