Morgunblaðið - 19.09.2016, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
Elísabet Eyþórsdóttir er á síðasta ári í Tónlistarskóla FÍH ídjasssöngnámi og verður með burtfarartóneika í vor, en áðurhafði hún útskrifast úr kennaradeild skólans.
„Á síðasta árinu er fókusinn á að koma upp sínu eigin bandi, vinna
efni, útsetja það og skrifa fyrir bandið og vera svo með flotta tónleika
um vorið. Ég er að vinna með ótrúlega mörgu frábæru fólki og það er
gott að hafa svona gulrót svo maður fari að vinna hlutina en sitji ekki
heima og bíði eftir að hlutirnir gerist fyrir mann. Ég er að læra á for-
ritið Logic. Svo er pabbi minn að kenna mér á píanó,“ en faðir
Elísabetar, eða Betu eins og hún er kölluð, er Eyþór Gunnarsson og
móðir hennar er Ellen Kristjánsdóttir svo að Beta á ekki langt að
sækja tónlistarhæfileikana.
Beta á tvær systur sem eru líka tónlistarkonur og starfrækja þær
þrjár hljómsveitina Sísý Ey ásamt raftónlistarmanninum Oculus.
Hljómsveitin var að gera plötusamning við breskt útgáfufyrirtæki og
fer út að spila í London í nóvember til að kynna efnið. „Það verða gef-
in út þrjú lög til að byrja með en svo erum við systurnar líka að taka
upp akústískt efni.“
Beta var ekki búin að ákveða hvað hún ætlaði að gera í tilefni dags-
ins þegar blaðamaður spjallaði við hana fyrir helgi. „Það er ekki al-
veg ákveðið hvað ég geri en ég geri eitthvað skemmtilegt með yndis-
legu fjölskyldunni minni og vinum.
Ég var að flytja í frábæra íbúð í miðbænum með konunni minni,
Önnu Margréti Jónasdóttur, og átta ára syni mínum, Jóhannesi. Það
er nóg að gera og lífið er dásamlegt!“
Tónlistarkonan Beta er ásamt systrum sínum og Oculus í hljómsveit-
inni Sísý Ey sem var að gera plötusamning við breskt útgáfufyrirtæki.
Á fullu í tónlistinni
Elísabet Eyþórsdóttir er þrítug í dag
S
Sigurður Pálsson fæddist
í Reykjavík 19.9. 1936
og ólst þar upp. Hann
lauk kennaraprófi frá
KÍ 1957, söngkenn-
araprófi frá KÍ 1957, BA-prófi í
kristnum fræðum og uppeldisfræði
ásamt kennsluréttindum á fram-
haldsskólastigi frá HÍ 1978, emb-
ættisprófi í guðfræði frá HÍ 1986
og doktorsprófi í menntunarfræði
frá KHÍ 2008. Ritgerðin, Kirkja
og skóli, var um stöðu og þróun
kennslu í kristnum fræðum og
trúarbragðafræðum á Íslandi á 20.
öld í samanburði við Danmörku,
Noreg og Svíþjóð.
Sigurður var kennari við Breiða-
gerðisskóla í Reykjavík 1957-69,
lögregluþjónn í Reykjavík sumrin
1961-68, skrifstofustjóri hjá Ríkis-
útgáfu námsbóka 1969-77, stunda-
kennari við MR 1979-82, við KHÍ
1979-2010 og við guðfræðideild HÍ
1994-2010, námstjóri í kristnum
fræðum og fíknivörnum við skóla-
rannsóknadeild menntamálaráðu-
neytisins 1977-84, deildarstjóri
námsefnisgerðar hjá Námsgagna-
stofnun 1984-86, forstöðumaður
námsefnissviðs hjá Námsgagna-
stofnun 1987-90, vígðist prestur
1988, var settur sóknarprestur í
Hallgrímssókn í tæpt ár og aftur
um skeið 1993, framkvæmdastjóri
Hins íslenska biblíufélags 1990-97
og sóknarpestur í Hallgrímskirkju
1997-2006.
Sigurður hafði umsjón með
endurmenntunarnámskeiðum í
kristnum fræðum á vegum KHÍ
1980, 1983 og 1995 og hefur setið í
nefndum á vegum menntamála-
ráðuneytisins við gerð námskrár í
kristnum fræðum og trúarbragða-
fræðum og um opinberar aðgerðir
gegn ávana- og fíknilyfjum. Hann
sat í stjórn Listvinafélags Hall-
grímskirkju 1992-97, í stjórn Hins
íslenska Biblíufélags 1998-2012 og
átti sæti í þýðingarnefnd Gamla
testamentisins 1990-2007. Sigurður
var kjörinn heiðursfélagi í Hinu ís-
lenska biblíufélagi í tilefni af 200
ára afmæli þess 2015. Hann sat í
stjórn KFUM í Reykjavík 1974-86
og var formaður 1978-84 og 1985-
86, í samstarfsnefnd kristinna trú-
félaga sem fulltrúi þjóðkirkjunnar
1979-84, í stjórn Kristilegu skóla-
hreyfingarinnar 1979-82, fulltrúi
KFUM, KFUK og Kristilegs stúd-
entafélags í stjórn Kristilegra
skólasamtaka 1964-78, stjórnandi
Æskulýðskórs KFUM og KFUK
1972-78, safnaðarfulltrúi í Nessókn
í Reykjavík 1972-77, virkur þátt-
takandi í barna- og unglingastarfi
KFUM í Reykjavík 1951-72, for-
Sigurður Pálsson, fyrrv. sóknarprestur í Hallgrímskirkju – 80 ára
Sinnti kirkju og skóla
Stórfjölskyldan Sigurður og Jóhanna með börnum, barnabörnum, barnabarnabörnum og tengdabörnum sínum.
Akranes Ylfa Orradóttir fæddist 4.
janúar 2016 kl. 14.21. Hún vó 3.410 g
og var 51 cm löng. Foreldrar hennar
eru Telma B. Helgadóttir og Orri
Jónsson.
Nýir borgarar
Sigrún Björk Björnsdóttir og María Sigurðardóttir héldu tombólu á Selfossi.
Þær gáfu Rauða krossinum á Íslandi andvirðið, alls 30.154 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Ný sending af
Kolibri penslum
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
Vorum aðtaka innfullan gám afSara&Almastrigum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195