Morgunblaðið - 19.09.2016, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Trúir þú á álfasögur? Ef svo er þá eru
þeir að stríða þér þessa dagana. Máttarvöld
heimsins, til dæmis foreldrar, sjá ekki sólina
fyrir þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Af einhverri ástæðu langar þig að gera
eitthvað öðruvísi í dag, eitthvað sem er frá-
brugðið þínum hversdagslegu venjum. Við er-
um öll mannleg.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er kjörið tækifæri til þess að
kynna nána vini þína hvorn fyrir öðrum. Farðu
vel með það og mundu að hugsa áður en þú
talar. Kinkaðu kolli fullur áhuga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hugsun krabbans er að sumu leyti
snilldarleg, en ofhugsun leiðir hins vegar til
sljóleika. Láttu það eftir þér að njóta hring-
iðunnar á þessum tímamótum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að taka meira tillit til annarra
því þú græðir ekkert á því að gera hlutina upp
á þitt eindæmi. Líttu á þetta sem hrós og
þakklætisvott en haltu þínu striki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað veldur þér áhyggjum í dag og
óróleiki gerir vart við sig. Sýndu því öðrum
það sama og taktu þátt í þeirra hamingju.
Sláðu hvergi af kröfum þínum því þinn tími
mun koma.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að sýna vilja til að vera hluti af
einhverju. Hugsaðu líka vel um þína eigin vel-
ferð. Er hún rétt núna? Hún er tækifæri til að
láta dýrmætustu draumana rætast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sumu fólki finnst mjög gaman
að vera á skjön við aðra, en ekki þér. Leitaðu
leiða til að bæta aðstæður fjölskyldu þinnar
með einhverjum hætti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver þér náinn virðist á suðu-
punkti. Njóttu vinnu þinnar. Ef þú ert hreinn
og beinn þarftu ekki að fara á milli staða með
kólgubakka yfir höfðinu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú býrð yfir óvenjumiklum styrk
þessa dagana. Varastu að láta tilfinningarnar
hlaupa með þig í gönur. Allir sem þú talar við
munu taka vel í hugmyndir þínar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sjálfsmynd þín flækist í það sem
ástvinirnir eru að fást við. Láttu daginn þinn
ganga fyrir öllu öðru. Taktu þinn tíma í skipu-
lagningu hans og þér verður alls staðar vel
tekið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að gefa þér tíma til einveru í
dag. Leggðu þig fram í þínu litla horni verald-
arinnar, fyrr en varir verður þér þakkað fyrir
að setja allan heiminn saman.
Inn á milli birtast góð ljóð ogskemmtileg á Leirnum. – Sig-
urlín Hermannsdóttir skrifaði, eftir
að sumri var verulega tekið að
halla, að hugur sinn væri væri allur
hjá fíflunum núna, einhverra hluta
vegna. „Af ljóðafífli,“ kallar hún
ljóð sitt:
Hugsanir mínar
hörfa frá mér
inn í kolli
ekki tolla
fjúka burtu
og flögra stjórnlaust
sem blásin væri
biðukolla.
Jarðveg sumar
jafnvel finna
svolgrar fræin
svörðurinn brúni
rætur þau festa
og renna svo upp
sem sólgulur fífill
á flötu túni.
Samt er eins og
sumum finnist
að ljóðafífli
lítill þarfi
þótt bjartur sé
og brosi við sólu
er skömmin litlu
skárri en arfi.
Á fimmtudaginn heyrði Hjörleif-
ur Hjartarson af bráðaöldrunar-
lækningadeild Landspítalans í tíu-
fréttunum:
Eldra fólki fjölgar allt of geyst
menn furða sig – það stappar nærri
göldrum
En núna virðist gátan loksins leyst:
Um landið geisar stjórnlaus bráðaöldrun
„Haustlimra með útundansér-
hlaupnu innihaldi“ skrifar Páll Ims-
land á Leirinn upp úr miðnættinu.
„Fjandi yrkið þið flott um haustið.
Hér er antiklímax í því samhengi“:
Á greinum er laufið allt laust
og loptvindar hefja upp raust,
hvína og emja
á eikunum lemja.
Sveimérþá sé ekki haust.
Pétur Stefánsson ber sig vel:
Þó mig kvelji stundum stress,
stríð og allur fjárinn,
brölti ég lífið býsna hress
og brosi gegnum tárin.
Hreinn Þorkelsson gerði þessa
athugasemd:
Nýkomið haustið mér neitar um frið
svo nenn’ ekk’ í kojunni dorma,
brosandi legg ég því lag mitt enn við
lystuga votviðrisstorma
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af ljóðafífli og stjórnlausri
bráðaöldrun
Í klípu
ÚTFÖR Í KVIKMYNDAGEIRANUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÁTTU BORÐ FYRIR TVO
NÁLÆGT ÚTGANGINUM?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera óumdeild
drottning hjarta hans.
ÉG GLEYMI ÞVÍ ALDREI ÞEGAR
ÉG RAK HAUSINN UTAN Í.
ÉG GLEYMI ÞVÍ ALDREI ÞEGAR
ÉG RAK HAUSINN UTAN Í.
ÉG GLEYMI ÞVÍ ALDREI ÞEGAR
ÉG RAK HAUSINN UTAN Í.
REYNDU!
HELGA, ÞETTA
NÝJA RÚMTEPPI ER
KUNNUGLEGT...
ÞETTA ER
BORÐDÚKURINN!
...OG AÐ SÍLÍKONI
SKALTU AFTUR VERÐA.
Að fara í barnaafmæli var þaðskemmtilegasta sem Víkverji
gerði nú um helgina. Lítill frændi
varð níu ára og bauð sínum bestu vin-
um og frændfólki í heimsókn.
Mamma hans hafði bakað og á borð-
um var kakó, kók og kaffi. Hressir
peyjar fullir af ómótstæðilegum lífs-
krafti léku á als oddi og gáfu sér lít-
inn tíma til að vera meðal annarra
gesta. Sporðrenndu í sig afmæliskök-
unni og hlupu síðan út í fótbolta.
Dásamlegt. Svona eiga krakkar að
vera!
x x x
Vinur Víkverja er í 10. bekk grunn-skóla þar sem norræn goðafræði
er þema í íslenskunámi vetrarins.
Áhugi hans á þessu efni var sann-
arlega ekki mikill en svo kviknaði ljós
hjá forvitnum strák sem hefur eðlis-
lægan áhuga á umhverfi sínu og fer
víða um. Honum var bent á að götur á
Skólavörðuholti í Reykjavík væru
nefndar eftir goðunum; svo sem
Fjölnisvegur, Lokastígur, Bald-
ursgata og svo framvegis. Nöfn á
öðrum götum ekki þarna langt frá
væru dregin af sögupersónum Njálu
og að í Norðurmýri hefðu stígar og
stræti skírskotun til Laxdælu, sem
strákurinn las í 9. bekk. Og viti menn;
nú eru goðafræði og fornsögurnar
orðnar skemmtilegar að mati
stráksa.
x x x
Fyrir nokkrum dögum, seint umkvöld, barst Víkverja, sem var
kominn á koddann, kveðja í gegnum
símann á Facebook frá góðum félaga
og var skipst á skoðunum og spjallað
um daginn og veginn. Þetta varði
ekki lengi og svo kom að vinurinn
vildi fella talið því nú væri flugfreyjan
að koma með bakkana og reykinn af
réttunum slægi fyrir vit. Víkverji
hváði en var til útskýringar svarað
því til að línurnar væru skrifaðar í 33
þúsund fetum um borð í þotu Ice-
landair á leið til Íslands frá Lund-
únum. Þvílíkir tímar og tæki, sagði
Víkverji sem lagði frá sér símann og
slökkti ljósið á náttborðinu. Lét sig
svo svífa inn í draumalandið, en í
þeirri vídd tilverunnar hefur hann þó
aldrei upplifað eða kynnst tækni eða
möguleikum líkum þessum. Einna
helst minnir þetta á vísindaskáldsögu
en auðvitað toppar veruleikinn alla
fantasíu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á
vegum mínum. (Sl. 119.105)
HÁGÆÐA FAGVÖRUR
Í FÍNA ELDHÚSIÐ ÞITT
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Verið velkomin í verslun okkar og skoðið úrvalið af áhöldum
sem fagmenn, jafnt sem áhugamenn geta ekki án verið í góðu eldhúsi.
Í nýrri vefverslun fastus.is er m.a. mikið úrval
af alls kyns eldhúsvörum, sem unun er að vinna með!
YAXELL HNÍFAR FYRIR KRÖFUHARÐA KOKKA
MAUVIEL POTTAR OG PÖNNUR
BALLARINI GRANIT POTTAR OG PÖNNUR