Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 220. tölublað 104. árgangur
HANNAÐI SAM-
KVÆMISKJÓLA
ÚR ULLINNI
TÖFRAR
Á HEIMS-
MÆLIKVARÐA
MARKMIÐIÐ AÐ
HREYFA VIÐ
ÁHORFENDUM
ÍSLENSK I FÍLLINN bbbbm31 AGNES THORSTEINS 30AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR 12
Ljósmynd/Kristinn Haukur Skarphéðinsson
Haförn Færri hafarnarungar komust á
legg í sumar en dæmi eru um frá 2006.
Viðkoma íslenska hafarnar-
stofnsins í sumar var sú slakasta frá
árinu 2006 og komust aðeins 27 ung-
ar á legg. Í fyrra komust upp 36
ungar úr 28 hreiðrum. Meðal-
ungafjöldi í hreiðri nú var með
minnsta móti eða 1,08 ungar á hreið-
ur sem er það minnsta frá árinu
1993. Að meðaltali hafa komist upp
1,3 ungar úr hreiðri. Talið er að
rúmlega 220-250 hafernir séu á Ís-
landi. Þeir hefja varp 5-8 ára gamlir.
Fimm ungar komust upp úr þrem-
ur hreiðrum við Húnaflóa.
Hafarnarstofninn þar hefur styrkst
verulega á undanförnum árum. »6
Viðkoma hafarnar-
stofnsins var heldur
slök í sumar
Samningur
» Lífeyrisréttindi verða sam-
ræmd og jöfnuð.
» Heildarframlag ríkis og
sveitarfélaga er talið nema allt
að 130 milljörðum króna.
Ómar Friðriksson
Helgi Bjarnason
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formað-
ur BHM, segir mikilvægum áfanga
náð með samkomulagi um samræmt
lífeyriskerfi. Í pistli á heimasíðu
BHM segir hún að það kalli á gjör-
breytta launastefnu ríkis og sveitar-
félaga. Við blasi að með jöfnun líf-
eyriskjara þurfi að bæta opinberum
starfsmönnum muninn í launum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir að unnið verði í átt að því
að eyða launamun þannig að ekki
verði til staðar óréttlætanlegur og
óútskýranlegur kjaramunur.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
fagnar samkomulaginu og bendir á
að ASÍ hafi barist fyrir jöfnun lífeyr-
isréttinda í 70 ár. Hann gerir ráð fyr-
ir því að BHM og KÍ gangi nú inn í
rammasamkomulag um þróun launa
og tryggi með því sínu fólki hlutdeild
í hugsanlegu launaskriði.
Ræða þurfi markmið um jöfnun
launa á milli markaða í sambandi við
nýtt samningalíkan. ASÍ telji að
meiri jöfnuður eigi að ríkja, en kröf-
ur séu m.a. um hækkun lægstu launa
og jöfnun á launum kynjanna.
Fylgja eftir launajöfnun
Samkomulag um jöfnun lífeyrisréttinda á vinnumarkaðnum undirritað
Einnig stefnt að jöfnun launa opinberra og almennra starfsmanna á 6-10 árum
MGríðarleg tíðindi og tímamót »10
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn Það þarf að útbúa út-
skot og stoppistaði við vegi fyrir þá.
Háar sektir eru víða erlendis við
því að stoppa bíl úti í vegkanti,
sérstaklega á hraðbrautum. Jónas
Guðmundsson, verkefnastjóri
slysavarna ferðamanna hjá Lands-
björg, segir þjóðveginn vera okkar
hraðbraut um landið og mikil þörf
sé á umferðarstýringu sem væri
fylgt eftir með löggæslu.
„Lögreglan þarf að fá fjármagn
til að geta haft bíla á ferðinni til að
hjálpa fólki við að fara eftir þeim
reglum sem eru í gildi,“ segir Jón-
as. Þá vanti meiri slagkraft í að
vinna verkefnin. „Við verðum að
hugsa að á næsta ári verða hér 2,2
milljónir ferðamanna og hvernig
við getum útbúið innviðina þannig
að við getum tekið á móti þeim á
öruggan og ánægjulegan hátt.“
Jónas er á þeirri skoðun að við
séum hrædd við að stýra ferða-
mönnum, hvort sem það er með
stígum, leiðbeiningum eða fjölda-
takmörkunum. „Það má ekki
gleyma því að stýring er ekki boð
og bönn, heldur til að hjálpa fólki
að ferðast á öruggan hátt og upp-
lifa og njóta. Hvort sem það er
með pöllum, útsýnisstöðum, tak-
mörkuðum hraða eða reglugerð-
um.“ »6
Þörf á umferðarstýringu
Þurfum að geta tekið á móti ferðamönnum á öruggan hátt
Ef olíuverð
hækkar á kom-
andi árum um-
fram það sem
markaðir gera
nú ráð fyrir gæti
dregið verulega
úr þeirri fjölgun
ferðamanna sem
fyrirséð er að
verði hér á landi
á komandi árum.
Í nýju spálíkani Arion banka kemur
fram að ef flugfargjöld hækka um
15% á næsta ári, 7,5% árið 2018 og
2% árið 2019 munu ferðamenn á
tímabilinu verða 715 þúsund færri
en ef ekki kemur til þessara hækk-
ana. »16
Hærri flugfargjöld
draga úr fjölgun
Vöxtur Ferða-
mönnum fjölgar.
Jarðskjálfta-
hrina á Heng-
ilssvæðinu á
Hellisheiði hélt
áfram í gær-
kvöldi þegar
kippur upp á 3
stig mældist um
klukkan sjö. Eft-
ir fylgdu nokkrir
smærri skjálftar
á svipuðum slóðum. Í gærkvöldi
höfðu mælst hátt í 300 skjálftar á
svæðinu síðustu tvo sólarhringa.
Sérfræðingar kanna nú nánar
hvort skjálftarnir að undanförnu
tengist niðurdælingu vatns hjá
Orkuveitu Reykjavíkur og Orku
náttúrunnar. »4
Hengillinn heldur
áfram að skjálfa
Hellisheiðarvirkjun.
FH-ingar urðu í gær Íslands-
meistarar karla í knattspyrnu
annað árið í röð og í áttunda
skiptið á 13 árum þegar Breiða-
blik náði ekki að leggja Eyja-
menn að velli. Ekkert lið getur
þar með náð FH-ingum þegar
tveimur umferðum er ólokið af
Íslandsmótinu.
Heimir Guðjónsson, þjálfari
FH, hefur komið að öllum átta
meistaratitlum félagsins, rétt eins
og framherjinn reyndi, Atli Viðar
Björnsson. Heimir vann fyrstu
titlana sem leikmaður liðsins, síð-
an sem aðstoðarþjálfari og nú
hefur hann fimm sinnum fagnað
meistaratitlinum sem aðalþjálfari
FH-liðsins.
FH-ingar komu saman í Kapla-
krika í gærkvöldi til að fagna
sigrinum saman og þar var Heim-
ir að sjálfsögðu tolleraður af leik-
mönnum liðsins. Þeir taka síðan
við Íslandsbikarnum á heimavelli
eftir lokaleik sinn í deildinni
gegn ÍBV laugardaginn 1. októ-
ber næstkomandi. » Íþróttir
FH-ingar fögnuðu ákaft Íslandsmeistaratitli í knattspyrnu karla í gærkvöldi án þess að eiga leik
Morgunblaðið/Golli
Áttundi
titill FH
og Heimis