Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFSLÁTTUR
25%
KOMDU NÚNA!
TEMPUR-DAGAR
TEMPUR® HYBRID HEILSUDÝNAN
Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa!
QUICKREFRESH™ ÁKLÆÐI
Rennilás gerir það afar einfalt er að taka
QuickRefresh áklæðið af dýnunni og þvo.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ef það hefur verið óheilnæmt
neysluvatn hér í hálfan mánuð höfum
við áhyggjur af því. Maður veit ekki
hvaða áhrif það hefur, sérstaklega á
gamalt fólk og veikt,“ segir Ívar
Kristjánsson, formaður hverfisráðs
Flateyrar.
Sýni sem tekið var 31. ágúst
reyndist innihalda bæði E.coli- og
kólígerla. Íbúarnir voru ekki látnir
vita og ekki gripið til annarra ráð-
stafana sem skylt er samkvæmt
reglugerð. Annað sýni sem tekið var
12. september sýndi að vatnið hafði
mengast enn meira af E.coli- og kólí-
gerlum. Bærinn lét íbúana ekki held-
ur vita um þá niðurstöðu og hefur
enn ekki gert.
Í kjölfarið var hins vegar farið í að
laga mengunarvarnabúnaðinn og
geisla vatnið.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar, segir sam-
skiptaörðugleika hafa valdið því að
ekki var brugðist við menguninni
með réttum hætti. „En ég myndi alla
vega segja að heppnin hafi verið með
okkur þar sem mengunin var eftir
allt saman lítil og við getum virkilega
dregið lærdóm af þessu og komið
hlutunum í lag í framhaldinu,“ segir
Gísli.
Vilja betri upplýsingar
Fulltrúar íbúa á Flateyri birtu op-
ið bréf til bæjarstjóra og Heilbrigð-
iseftirlits Vestfjarða á bb.is í gær.
Þar er meðal annars óskað eftir upp-
lýsingum um hvernig sýnatöku er
háttað og hversu oft hún fer fram.
Einnig hvert ferlið er þegar sýni
reynast ekki vera í lagi. Jafnframt er
vakin athygli á því að Ísafjarðarbær
sem á og rekur vatnsveituna hafi
ekki upplýst íbúana um niðurstöðu
sýnatökunnar.
„Okkur finnst eðlilegt að bæjarbú-
ar hafi aðgang að upplýsingum um
niðurstöðu sýnatöku, bæði þegar
vatnið er í lagi og þegar það er ekki í
lagi. Það virðist ganga illa að upplýsa
fólk um þetta,“ segir Ívar.
Hann segir að sumir íbúar treysti
ekki vatninu eftir að þetta kom upp
og sjóði neysluvatn, sérstklega aldr-
að fólk og veikt. Hann segir að ein-
hver magapest hafi verið í þorpinu í
mánuðinum en segir ekki hægt að
fullyrða að það tengist litlum vatns-
gæðum. Nýtt sýni hafi verið tekið í
fyrradag og niðurstöður úr því séu
væntanlegar í dag. Vonast Ívar til að
þær staðfesti að vatnið sé komið í lag.
Ekki látin vita um mengun
Ísafjarðarbær upplýsti íbúa ekki um saurgerlamengun sem var í neysluvatni á
Flateyri í tvær vikur Byrjað að geisla vatnið og vonast er til að það sé komið í lag
Morgunblaðið/Ómar
Flateyri Neysluvatn hefur að mestu
verið í lagi í þorpinu frá árinu 2009.
Að bílaumboð verði í suðurhluta
Mjóddar fer ekki saman við aðra
starfsemi sem þar er fyrir, svo sem
íþróttaaðstöðu og þjónustu fyrir
aldraða, segir Jóhanna Dýrunn
Jónsdóttir, formaður íbúasamtak-
anna Betra Breiðholt. Íbúar í hverf-
inu funduðu í gærkvöldi í Selja-
kirkju vegna þeirra áforma
borgaryfirvalda að úthluta bílaum-
boðinu Heklu 24 þúsund fermetra
lóð í Mjódd fyrir starfsemi sína, en
lóðinni myndi fylgja réttur til bygg-
ingar stórhýsis.
„Mér finnst þetta út úr kortinu
miðað við núverandi skipulag
Mjóddar. Mér þætti nær að efla
íþróttastarfsemi á svæðinu, til
dæmis að fleiri íþróttafélög en ÍR
fengju þarna aðstöðu fyrir starf-
semi sína. Eins og málið lítur nú út
smella tannhjólin ekki saman,“ seg-
ir Jóhanna Dýrunn.
Fundurinn í gærkvöldi var hald-
inn að frumkvæði Sveins Hjartar
Guðfinnssonar, sem er fulltrúi
Framsóknar og flugvallarvina í
hverfisráði Breiðholts. „Við vildum
að fólk í hverfinu ræddi þetta mál
en við erum mjög ósátt. ÍR-ingum
var samkvæmt okkar upplýsingum
nánast stillt upp við vegg, svo mikil-
vægt þótti að Hekla fengi lóðina.
Þetta mál er ekki fullrætt og við
viljum frekari skýringar frá þeim
sem stjórna málum hjá Reykjavík-
urborg. Heklureiturinn ætti að
vera grænt svæði,“ segir Sveinn
Hjörtur.
Lóðaúthlutun til Heklu var til
umfjöllunar á fundi borgarráðs sl.
fimmtudag. Viljayfirlýsing liggur
fyrir en afgreiðslu málsins var
frestað. Við þetta tilefni lögðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins svo
fram þá tillögu að áður en málið
yrði til lykta leitt yrði leitað um-
sagnar þeirra sem hagsmuna eiga
að gæta í hverfinu, svo sem íþrótta-
félaga, íbúasamtaka, fulltrúa
hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar
og annarra. sbs@mbl.is
Mótmæla Heklu í Mjódd
Fundur Breiðholtsbúar á fundi um
Mjóddarmál í gærkvöldi.
Fundur í Breið-
holti Íbúar eru
ósáttir með áformin
Heitar umræður
fóru fram á Al-
þingi í gær um
skýrslu meiri-
hluta fjárlaga-
nefndar um
endurreisn
bankakerfisins.
Umræðurnar
byrjuðu með því
að Einar K. Guð-
finnsson, forseti
Alþingis, ávarpaði þingheim við upp-
haf þingfundar og sagði það álit sitt
að skýrslan teldist ekki skýrsla í
skilningi þingskapa.
Vísaði Einar þar til þess að skýrsl-
an hefði ekki verið tekin til hefð-
bundinnar umfjöllunar í fjárlaga-
nefnd. Sagðist hann því líta svo á að
málið væri enn til umfjöllunar í
nefndinni.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu afgreiðslu Einars harð-
lega undir liðnum fundarstjórn for-
seta og sögðu hana ódýra. Skýrslan
hefði verið kynnt sérstaklega á
blaðamannafundi sem skýrsla á veg-
um fjárlaganefndar. Nefndin og
þingið hefðu þannig verið misnotuð.
Ólína Þorvarðardóttir, Samfylk-
ingu, kallaði á frekari viðbrögð for-
seta Alþingis. Katrín Júlíusdóttir,
samflokksmaður hennar, sagðist
ekki geta skilið Einar öðruvísi en svo
að hann væri sammála gagnrýni
stjórnarandstöðunnar. Bjarkey Ol-
sen Gunnarsdóttir, þingmaður
Vinstri grænna, fór fram á að skýrsl-
an yrði dregin til baka.
Skýrslan
ekki talin
skýrsla
Einar K.
Guðfinnsson
Sala bankanna enn
til umfjöllunar á þingi
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í
gær sjö ökumenn sem voru á yfir
120 km hraða. Sá þeirra sem hrað-
ast ók var á 141 km hraða. Að sögn
lögreglunnar var sá ökumaður er-
lendur ferðamaður og fékk hann 90
þúsund króna sekt fyrir hraðakst-
urinn. Þá var einn ökumaður með
aftanívagn stöðvaður á 123 km
hraða og fékk sá væna sekt fyrir, en
hámarkshraði fyrir bíla með aftaní-
vagn er 80 km.
Á höfuðborgarsvæðinu urðu
nokkrar umferðartafir síðdegis í
gær þegar ökumaður missti stjórn á
bíl sínum í Ártúnsbrekkunni.
Sjö yfir 120
km hraða
„Krafturinn í merinni var alveg ótrúlegur,“ seg-
ir myndasmiðurinn Haraldur Hjálmarsson í
Grindavík. Hann var í Skrapatungurétt í Austur-
Húnavatnssýslu um helgina þegar bændur í Lax-
árdal réttuðu stóð sitt. Meri ein hafði verið dreg-
in úr almenningi í dilk en leiddist þar. Spyrnti
því fótum og stökk yfir vegg og komst þannig til
annarra hrossa. Þessi tilþrif myndaði Haraldur
sem var á réttum tíma, stað og stund. Merin náð-
ist fljótt aftur svo að þetta brambolt var til lítils.
Að öðru leyti gengu réttarstörf vel, veður var
gott og fólkið kátt og glatt.
Merin spyrnti fótum og stökk yfir vegg
Kraftur þegar hrossið var rekið í Skrapatungurétt
Ljósmyndir/Haraldur Hjálmarsson