Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Ófeigur
Listakona „Ef ég væri yngri væri ég vís með að byrja aftur,“ segir Aðalbjörg Jónsdóttir prjónalistakona.
tókst og var afskaplega skemmtilegt,“
segir hún dreymin á svip.
Þegar þarna er komið sögu var
hún orðin 64 ára og að komast á ellilíf-
eyrisaldur. Á sýningunni, sem fékk lof-
samlega dóma voru um 40 kjólar, allir
frábrugðnir hver öðrum bæði í formi
og litavali. Í heildina voru kjólarnir
sem hún skapaði yfir 100 talsins. „Ef
ég væri yngri væri ég vís með að byrja
aftur en nú er ég orðin svolítið gömul,“
segir hún hress í bragði og viðurkennir
að Elli kerling sé aðeins farin að klípa í
sig. Hún klípur létt í hægri öxl sína til
að leggja áherslu á mál sitt.
„Ég hugsa stundum hvað ég eigi
að gera núna þegar þetta ár er liðið og
ég byrja á nýrri öld. Það verður að
vera eitthvað létt og skemmtilegt. Ætli
ég fái nokkuð einhverja dellu úr
þessu,“ svarar hún sposk spurð hvort
hún sé með eitthvað á prjónunum. Hún
nefnir skírnarkjóla, pils og sjöl svo fátt
eitt sé nefnt sem hún hefur prjónað
síðasta áratuginn. Í miðju spjalli snar-
ar hún sér fram og nær í pils og sjal
sem hún prjónaði fyrir nokkrum árum.
Fjólublátt að lit og að sjálfsögðu fór
hún ekki eftir uppskrift heldur reikn-
aði allt út í huganum. Aðalbjörg er list-
ræn og skapandi. Hún söng lengi í kór
og hefur alla tíð málað töluvert og
haldið myndlistasýningar víða.
Dugnaðarforkur
sem gefst ekki upp
„Á svona löngum tíma kemur
margt fyrir sem er sorglegt og allt það.
Ég sagði við sjálfan mig einn daginn að
ef ég ætlaði að gefast upp gæti ég
hvorki hjálpað sjálfri mér né öðrum.
Það er bara þannig. Ég hef verið dug-
leg. Ég held að það hafi hjálpað mér í
lífinu. Svo er ég líka léttlynd, þú veist
að við sem erum í bogmannsmerkinu
erum það,“ segir hún og brosir eins
og sólin til blaðamanns, sem getur
ekki annað en jánkað því hann er
líka bogmaður.
Aðalbjörg lifir eiginmann sinn og
þrjú börn sín en þau eignuðust sjö
börn og eru fjögur á lífi. Ættboginn er
orðinn stór; 17 barnabörn og yfir 40
langömmubörn og barnabarna-
barnabörnin eru líka orðin nokk-
ur.
„Mér þykir svo vænt um
þessa bók, annars hefðu kjólarnir
mínir aldrei komist á blað,“ segir
hún einlæg að lokum.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um
starfsemi Securitas og viðtali við stjórnendur
3ja dótturfyrirtækja Securitas hf.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 22.00
Heimsókn til Securitas – síðari hluti
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá
Hringbrautar kl. 22.00 í kvöld.
• Servio: Eðalbílaþjónustan
sem þjónar stórstjörnum
sem heimsækja Ísland
Ökuferð í lúxusbifreið af
gerðinni Mercedes Benz
S-350 L
Geymslur hf.: Þjónusta við
fyrirtæki og einstaklinga í
tæp 15 ár
Arctic Track: Flotastjórnun
með háþróuðum ökuritum
semmæla aksturshegðan
„Mér fannst svo sárt að ekkert
hafði verið gert við þessa sögu.
Hún hefði fallið í gleymskunnar
dá ef þetta hefði ekki verið tek-
ið saman. Sagan hennar er of
merkileg til þess en þáttur Að-
albjargar er mikilvægur í menn-
ingar- og tóvinnusögu okkar.
Tilgangurinn með bókinni er
líka að sýna hvernig hún vann úr
ullinni svo aðrir geti fengið hug-
myndir og haldið áfram að
skapa nýtt úr íslensku ullinni,“
segir Kristín Schmidhauser
Jónsdóttir um tilurð bókarinnar.
Leiðir Kristínar og Aðalbjargar
lágu saman um tíma í Íslensk-
um heimilisiðnaði, en Kristín
hefur sjálf haldið sýningar á
handverki sínum.
„Ég dáðist alltaf að
kjólunum hennar,
forminu og snitt-
inu á þeim. Það
var ekki auð-
velt að ná því.“
Einstakt
form og
snitti
DÝRMÆT SAGA
Kristín Schmid-
hauser Jóns-
dóttir
Juan Pablo Mora, prófessor í málvís-
indum við Háskólann í Sevilla á
Spáni, heldur fyrirlestur í Háskóla Ís-
lands á vegum Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungu-
málum.
Fyrirlesturinn fer fram í dag,
þriðjudaginn 20. september, kl. 16-17
í stofu 102 í Gimli í Háskóla Íslands
og ber yfirskriftina „Teaching Intro-
duction to Linguistics using active
learning methodologies: an experi-
ence from the University of Sevilla“.
Juan Pablo Mora er þekktur fyrir
nýstárlega kennslufræði í tungu-
málakennslu þar sem nemendur
sjálfir eru meiri þátttakendur í nám-
inu sínu og leysa fjölbreytt verkefni.
Þessi kennsluaðferð hefur gefið góða
raun og vert er að kynna sér aðferðir
hans í tungumálakennslu. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Reynsla frá Spáni
Morgunblaðið/Kristinn
Nám Tungumálanám er dýrmætt.
Kennslufræði
málvísinda