Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016 20. september 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 114.95 115.49 115.22 Sterlingspund 150.02 150.74 150.38 Kanadadalur 87.29 87.81 87.55 Dönsk króna 17.211 17.311 17.261 Norsk króna 13.863 13.945 13.904 Sænsk króna 13.401 13.479 13.44 Svissn. franki 117.13 117.79 117.46 Japanskt jen 1.1286 1.1352 1.1319 SDR 160.35 161.31 160.83 Evra 128.24 128.96 128.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 159.3505 Hrávöruverð Gull 1315.05 ($/únsa) Ál 1560.0 ($/tonn) LME Hráolía 46.31 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Íslandsbanki hefur ráðið alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Corestar Partners, ásamt fyrirtækjaráðgjöf bankans, til ráðgjafar í tengslum við mótun fram- tíðarstefnu um eignarhlut bankans í Borgun. Íslandsbanki á 63,5% hlut í Borgun og er félagið flokkað sem dótt- urfélag bankans. Corestar Partners sérhæfir sig í fyr- irtækjaráðgjöf á sviði greiðsluþjónustu og er með starfsstöðvar í Sviss og Þýskalandi. Í tilkynningu frá Íslands- banka segir að möguleg niðurstaða ráðgjafarvinnunnar verði að bankinn selji eignarhlut sinn í félaginu. Færi slík sala þá fram í opnu og gagnsæju sölu- ferli. Hreinar rekstrartekjur Borgunar voru um 4,7 miljarðar króna á síðasta ári og samsvarar það um 10% af rekstr- artekjum Íslandsbanka. Hagnaður Borgunar var um 1,5 milljarðar króna í fyrra sem nemur rúmlega 7% hagnaðar bankans. Íslandsbanki kannar mögulega sölu á Borgun STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nýjustu spár greiningaraðila benda til þess að ferðamönnum muni fjölga gríðarlega á næsta ári og að fjölgunin verði síst minni en í ár. Liggja nýj- ustu spár á bilinu 2,2-2,4 milljónir ferðamanna og gangi þær eftir verða því allt að 650 þúsund fleiri ferða- menn sem leggja leið sína til Íslands á árinu 2017 en í ár. Í nýrri ferðaþjónustuúttekt Arion banka, sem kynnt er í dag, veltir greiningardeild bankans upp sviðs- mynd af því hvaða áhrif hærra verð flugfargjalda mun geta haft á fjölda þeirra ferðamanna sem leggja leið sína til Íslands. Í grunnspá bankans er gert ráð fyrir því að fjöldi erlendra ferðamanna á árinu 2018 muni nema 2,5 milljónum. 250 þúsund færri til 2019 „Í grunnspá okkar tökum við tillit til framvirkra samninga sem gerðir hafa verið með olíu. Olíuverð er einn þeirra þátta sem hafa hvað mest áhrif á flug- fargjöld,“ segir Konráð S. Guðjónsson hjá Arion banka. Í fráviksspá bank- ans, sem birt er hér til hliðar, er skoð- að hvaða áhrif hækkandi fargjöld á ár- unum 2017 til 2019 gætu haft. Þannig gæti 15% hækkun fargjalda á næsta ári, 7,5% á árinu 2018 og 2% hækkun 2019 leitt til þess að tæplega 715 þús- und færri ferðamenn sæktu landið heim en ef fargjaldaverð héldist í takti við grunnspána. Þá hefur gengisþróun einnig áhrif á eftirspurnina til landsins en Konráð segir að hún komi þó meira fram í því hversu mikils ferðamenn neyti meðan á dvöl þeirra stendur. „Flugfargjöldin hafa vissulega áhrif á fólk þegar það tekur ákvörð- un um hvert það ferðast en áhrifin koma þó frekar fram í neyslunni. Þetta kemur til dæmis fram í tölum varðandi norska og rússneska ferða- menn en efnahagsástandið í þeim löndum hefur dregið úr ferðum þeirra hingað og neyslunni meðan á dvöl stendur. Hins vegar hefur neysla ferðamanna almennt staðið í stað í krónum talið síðustu tvö árin, þrátt fyrir sterkara gengi,“ segir Konráð. Konráð bendir á að stóraukið framboð á flugsætum til og frá Ís- landi hafi afgerandi áhrif á þróunina. „Við höfum, líkt og aðrir, vanspáð um fjölgunina á síðustu árum. Fram- boðsaukningin hefur orðið mun meiri en nokkurn grunaði. Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn hefur reyndar bent á að framboðið sé lykiláhrifa- þáttur þegar kemur að þróun á fjölda ferðamanna til lítilla eyríkja, líkt og Íslands.“ Hann segir sömuleiðis að það fæli ekki í sér stórslys þó að hærri far- gjöld myndu hægja nokkuð á straumnum til landsins. „Þetta er mikill fjöldi og það er ekki sjálfgefið að við getum tekið á móti áframhaldandi fjölgun ferða- manna. Við gerum ráð fyrir því að hægja muni á vextinum á næstu ár- um en það væri í sjálfu sér ekki stór- slys þó að þau áhrif kæmu fyrr fram en síðar.“ Olíuverð gæti haft veruleg áhrif á fjölgun ferðamanna Síaukin umsvif » Allt bendir til að ferðamenn verði 1.800 þúsund í ár. » Spár gera ráð fyrir allt að 35% fleiri ferðamönnum á næsta ári. » 14 flugfélög munu bjóða upp á flug til Íslands á komandi vetri. » Árið 2010 voru félögin að- eins þrjú talsins. Umsvif þeirra hafa aukist samfara komu fleiri félaga inn á markaðinn.  Sterkara gengi hefur ekki dregið úr neyslu ferðamanna hérlendis á síðustu árum Möguleg áhrif hærri flugfargjalda á fjölgun ferðamanna 2016 2017 2018 2019 ▼ ▼ ▼ M ill jó ni rf er ða m an na Heimild: Arionbanki 3 2,5 2 1,5 1 0,5 0 210 þ. færri ferðamenn en í grunnspá 255 þ. færri ferðamenn en í grunnspá 250 þ. færri ferðamenn en í grunnspá Miklar sveiflur hafa einkennt árið þegar litið er til íslensks hlutabréfa- markaðar og lækkaði úrvalsvísitalan um 8% á fyrstu átta mánuðum þess. Í nýrri Hagsjá Landsbankans er hins vegar bent á að þrátt fyrir rysjótt ár hafa félögin á aðallista Kauphallar Íslands siglt mjög ólíkan sjó á árinu. Þannig hafi Icelandair lækkað um 23,7% og HB Grandi 22% en á sama tíma hafi bréf í N1 hækkað um 52,2% og bréf Eimskipafélagsins hækkað um 33,2%. Þar á eftir komi fasteignafélagið Eik sem hækkað hafi um 28,8% og Reginn um 21,9%. Aukin velta á markaðnum Á sama tíma og miklar sveiflur hafa einkennt markaðinn hefur velt- an einnig aukist til muna. Þannig hafði veltan í lok ágúst náð svipuðum hæðum og veltan reyndist allt árið í fyrra þegar hún nam 390 milljörðum króna. Er það mikil breyting frá síð- ustu árum. Borið saman við árið 2014 sést það glögglega en á fyrstu átta mánuðum þess árs nam veltan á markaði 180 milljörðum króna og hefur hún því ríflega tvöfaldast frá þeim tíma. Landsbankinn bendir á það í greiningu sinni að hlutabréfavísitöl- ur í nágrannaríkjunum hafa ekki lækkað jafn mikið og hérlendis það sem af er ári. Reyndar hafi árið farið illa af stað víðast hvar, ekki síst vegna ótta við að kínverska hagkerf- ið væri komið í vanda. Það sem af er ári hefur breska FTSE-vísitalan hækkað mest en eft- ir Brexit-atkvæðagreiðsluna styrkt- ist staða útflutningsfyrirtækja þar í landi, í kjölfar þess að breska pundið gaf verulega eftir. Morgunblaðið/Styrmir Kári Viðskipti Ekkert nýtt félag hefur verið skráð í Kauphöllina í ár. Lágt ris á íslenskum hlutabréfamarkaði  Veltan þegar orðin jafn mikil og allt árið í fyrra Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100Mynd: Slökkvistöðin við Skarhólabraut í Mosfellsbæ. Þeir semgerakröfur veljaHéðinshurðir Fáðu tilboð í hurðina Fylltu út helstu upplýsingar á hedinn.is og við sendum þér tilboð um hæl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.