Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016 Orka Kraftmikil stúlka hleypur fyrir ofan Álafosskvosina. Björn Þorláksson, bóndi á Varmá, hóf þar rekstur ullarverksmiðju árið 1896 og notaði vatnsorku úr Álafossi til að knýja vélarnar. Eggert Sæmd er hverri þjóð að búa að heil- næmri matvælafram- leiðslu, sem í senn er hægt að horfa til með stolti. Ferðaþjónustan er margslungin og vex hröðum skrefum hér á landi. Ferðamenn kalla eftir því að fá að kynnast viðfangs- efnum þeirra sem búa í dreifðum og þéttum byggðum Ís- lands. Samhliða stórbrotinni nátt- úru. Landbúnaður er ekki aðeins verkefni og lifibrauð þeirra sem hafa af honum daglegan starfa. Landbúnaður skiptir ekki eingöngu miklu máli fyrir einstök byggðarlög þar sem hann er stundaður með blómlegum hætti, svo sem í upp- sveitum Árnessýlu, í Skagafirði og miklu víðar. Þessi atvinnugrein hef- ur mikla þýðingu fyrir alla íbúa landsins. Hvert bú í landinu skapar störf í þéttbýlinu. Hér er ekki ein- göngu átt við framleiðslu á mjólk og kindakjöti. Búgreinarnar garðyrkja, eggjaframleiðsla, loðdýrarækt, framleiðsla á öðru kjöti, svína-, fugla- og nautakjöti, að ógleymdri hrossarækt mynda allar í samein- ingu íslenskan landbúnað. Enn er það svo að langstærstur hluti land- búnaðarafurða kemur frá íslenskum bændum, þó að vissulega hafi inn- flutningur aukist á þeim. Vel má vera að það opinbera lanndbún- aðarkerfi sem er við lýði á íslandi þarfnist uppstokkunar. Það færi betur að almennari sátt væri um það. Ekki verður nánar farið út í þá sálma í þessum pistli. Bændur og aðrir landeigendur eru vörslumenn síns lands og heyrir til undantek- inga ef því hlutverki er ekki sinnt með sóma. Mörg eru dæmin um stóra sigra í land- græðslu fyrir til- stuðlan bændanna sjálfra. Íslenskar sveitir og fólkið sem í þeim býr eru dýrmætir hlekkir í uppbyggingu þeirrar atvinnugrein- ar sem nú vex hraðar en nokkur önnur grein í þessu landi. Er þar átt við ferðaþjónustuna. Má líkja henni við stóriðju. Það er hverjum Íslendingi hollt að minnast þess að hin fagra ásýnd sveitanna í landinu skapast ekki síst af því að búfén- aður er til staðar og grösin hafa hlutverk. Yfirbragð margra vin- sælla ferðamannastaða gæti orðið snautlegt ef grösin væru líflaus sina. Ferðaþjónusta og landbúnaður eru greinar sem styðja hvor við aðra. Matarforði þarf að vera tryggur Ekki þarf að fjölyrða um að land- búnaður vigtar meira nokkuð annað þegar rætt er um matvælafram- leiðslu landsmanna. Nágrannar okkar Svíar leggja áherslu á vernd- un staðbundins landbúnaðar. Þeir kunna að meta heimaframleidd matvæli eins og margir Íslendingar. Auk þess eru þeir meðvitaðir um að fæðuöryggi er nokkuð sem getur verið stefnt í voða ef ekki er hlúð að landbúnaði heima fyrir. Það hefur sýnt sig undanfarin ár, að það er ákveðið öryggi í því að framleiða sem mest af eigin matvælum. Í kjöl- far hrunsins fundum við fyrir því í þessu landi að óvissa var með inn- flutning á ýmsum nauðsynjavörum og vöntun á öðrum. Komi til verk- falla getur innflutningur líka stöðv- ast. Við búum við vá frá náttúrunni, hún getur farið hamförum fyrir- varalaust. Komi til náttúruhamfara eða ófriðar í veröldinni geta skapast þær aðstæður að ekki verði hægt að flytja vörur til landsins. Í ljósi þess er nauðsynlegra en flest sem brýnt er að eiga lág- marksbirgðir af matvælum. Skilyrði til að framleiða íslenskar matvörur þurfa því að vera skýr svo tryggt sé að lágmarksbirgðir séu til staðar hverju sinni. Öllum þjóðum er nauðsynlegt að hafa lágmarksbirgðir af nauðsyn- legustu matvælum og setja sér skýrar reglur hvað það varðar og standa skipulega á bak við innlenda matvælaframleiðslu. Aðstæður og framleiðni í landbúnaði Tækniframfarir hafa verið býsna miklar í landbúnaði á síðustu ára- tugum. Ef litið er til kúabænda má vera ljóst að þar jaðrar við bylt- ingu. Sífellt fleiri nýta sér mjalta- þjóna og gjafakerfi sem létta vinn- una til muna. Auk þess hefur heyskapartækni fleygt mjög fram. Að sama skapi eru gæði heyjanna tryggari og hefur það ásamt aukn- um kynbótum aukið afurðir búanna. Meðalbúið í landinu framleiðir um 200.000 lítra um þessar mundir. Það nær jafnvel ein manneskja að sinna því og þaðan af meiru stóran hluta úr árinu þar sem aðstæður eru hag- stæðar. Framundir síðustu aldamót voru á mörgum búum tvær mann- eskjur gengnar upp að hnjám fyrir aldur fram við að framleiða 60-70 þúsund lítra mjólkur. Ætla má að sama skapi að fjárbinding og skuld- setning búanna sé heilt yfir umtals- vert meiri nú en áður. Ekki er þró- un óáþekk í garðyrkju. Þar eru framleiðslueiningarnar stærri en áður gerðist. Raflýsing er víðast hvar notuð við ræktun allt árið um kring. Það eitt og sér hefur aukið framleiðslumagn á fermetra mjög mikið. Í kjötframleiðslu og loð- dýrarækt hefur tæknin einnig gert störfin léttari. Hér er á engan hátt verið að dást að verksmiðjubúskap. Engu að síður þurfa rekstrarein- ingar að ná lágmarksstærð til að hægt sé að horfa til framtíðar í bú- rekstri hér á landi. Vel rekin fjöl- skyldubú hafa í gegnum árin verið farsælt form búrekstrar. Nútímabændur eru almennt vel í stakk búnir til að takast á við aukna framleiðslu. Sumir kunna að sakna gamla tímans þar sem fjöldi fólks var á hverjum bæ og flest unnið með handaflinu. En sá tími heyrir fortíðinni til, þótt viss menning- arverðmæti geti falist í að varðveita þau vinnubrögð sem áður tíðkuðust. Geta þau verðmæti gagnast ferða- þjónustu eins og dæmin sýna. Horft fram á veginn Stór hluti Íslendinga á rætur í dreifbýli landsins. Það er mislangt í þær. Landbúnaður stendur nálægt okkar hjarta sem höfum lifað og hrærst í landbúnaði um lengri eða skemmri tíma. Almennt hygg ég að þjóðin sé hlynnt bændum og öðrum dreifbýlisbúum. Ég vona að sú gjá sem stundum hefur borið á milli þéttbýlis og deifbýlisfólks sé á und- anhaldi. Sá sem þetta ritar upplifði fyrir aldarfjórðungi eða svo að mun stærri orð féllu í garð bænda af vörum dómharðra einstaklinga en nú tíðkast. Átti það ekki síst við um fjölmiðla. Á hinn bóginn mátti einn- ig finna dæmi um dómhörku dreif- býlisfólks í garð borgarbúa. En það hygg ég vera fáheyrðara nú til dags, en svo bregður engu að síður við að maður heyri menn vera stór- yrta í þessum efnum, ekki held að samt að sá kór sé fjölmennur. Ekki er að mínu mati ástæða til að gera mikið úr því að gjá sé til staðar milli þéttbýlis- og dreif- býlisbúa. Þéttbýlisbúinn er ber að baki ef ekki væri líf í dreifbýlinu. Að sama skapi er dreifbýlisbúinn illa staddur án lífs í þéttbýli. Eftir Kristófer Tómasson »Rekstrareiningar þurfa að ná lág- marksstærð til að hægt sé að horfa til framtíðar í búrekstri hér á landi. Vel rekin fjölskyldubú hafa í gegnum árin verið far- sælt form búrekstrar. Höfundur er sveitarstjóri. Landbúnaður allra landsmanna Kristófer Tómasson Á fréttavefnum „Vísir.is“ birtist hinn 17. september sl. frétt þess efnis að nefnd um dómarastörf, sem starf- að hefur eftir lögum um dómstóla nr. 15/1998, hafi vorið 2014 skilað tillögum til innanrík- isráðherra um að sér- stök heimild yrði sett í dómstólalög um að haldin yrði opinber skrá um eignarhluti dómara í fé- lögum og atvinnufyrirtækjum. Er sagt að í svari ráðuneytisins, þar sem þessu var hafnað, hafi verið sagt að þegar tekin sé afstaða til þess hvaða upplýsingar um eignarhluti séu birtar í skrá vegist á sjónarmið um friðhelgi einkalífs og almannahagsmuni. Síðan er tekið orðrétt úr svari ráðuneyt- isins: „Hins vegar þótti ekki rétt, að undangengnu sama hagsmunamati, að opinberlega yrðu birtar upplýs- ingar um eignarhald á hlut dómara í félagi eða atvinnufyrirtæki. Er þá sérstaklega litið til þess að starfsemi slíkra fé- laga og fyrirtækja er af- ar mismunandi og kann að vera þess eðlis að litl- ar eða engar líkur eru á að til hagsmuna- árekstra stofnist. Þá getur eignarhlutur dómara að sami skapi verið mjög óverulegur.“ Í fréttinni kemur óbeint fram að dómarar hafi beitt sér gegn því að ákvæði með þessu efni yrði sett í lögin. Ekki er samt gerð grein fyrir hvaða dómarar hafi þar átt hlut að máli. Þetta mál er allt hið undarlegasta. Allir sjá hversu sjálfsagt það er að fyrir liggi upplýsingar opinberlega um hagsmunatengsl dómara við félög og atvinnufyrirtæki. Þetta eru þeir handhafar opinbers valds í landinu sem sífellt taka ákvarðanir í málum sem skipta einstaklinga og aðra aðila dómsmálanna meira máli en önnur mál þar sem ríkisvaldi er beitt. Það er auðvitað alveg sjálfsagt að aðilar dómsmálanna eigi á hverjum tíma að- gang að upplýsingum sem varða hagsmunatengsl handhafa þessa að- gangsfreka valds, svo þeir eigi þess kost að krefjast þess að einstakir dómarar víki sæti í málum þeirra. Ofangreint svar ráðuneytisins, þar sem þessu var hafnað, er einfaldlega út í hött. Það er einna líkast því að verið sé að vernda eitthvað sem ekki þolir dagsljósið. Í nýjum lögum nr. 50/2016 um dómstóla er að finna nýmæli þar sem mælt er fyrir um að birta skuli op- inberlega skrá um aukastörf dómara, sjá 2. mgr. 10. gr. Svo er að sjá sem þessi skylda til birtingar sé bundin við aukastörf dómaranna en eigi ekki við um eignarhluti þeirra í félögum eða atvinnufyrirtækjum, sem samt er gert ráð fyrir að reglur verði settar um, sjá 1. mgr. sömu lagagreinar. Þetta er frekar skrítið svo ekki sé meira sagt. Auðvitað er ekki síður nauðsynlegt að birta upplýsingar um eignarhald dómara í félögum en um aukastörf þeirra. Raunar má telja að aðilar dómsmálanna eigi beinlínis kröfu um að fá upplýsingar um allt sem viðkemur hagsmunatengslum dómara við félög og fólk, hvort sem þetta er sérstaklega heimilað í settum lögum eða ekki. Menn verða að fá að gæta sjálfir hagsmuna sinna af því að ekki sitji í málum þeirra dómarar sem eru vanhæfir vegna tengsla sinna við sakarefni eða gagnaðila. Þeir hags- munir taka leyndarhagsmunum dóm- ara fram svo um munar. Á undanförnum árum hafa verið kveðnir upp fjölmargir dómar, þar sem fyrirsvarsmenn fyrirtækja hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stjórntök sín á bönkum og öðrum fyr- irtækjum með dreifðri eignaraðild áð- ur en efnahagsáföllin dundu yfir 2008. Í mörgum þessara dóma hafa birst úrlausnir sem telja verður afar hæpn- ar svo sem fram hefur komið með rökstuddum hætti á opinberum vett- vangi. Þar er margt metið sakborn- ingum í óhag, án þess að viðhlítandi röksemdir hafi fylgt. Mér finnst eðli- legt að þeir menn sem hafa orðið að sæta þessari meðferð dómstóla und- anfarin ár eigi kröfu til þess að fá vitneskju um hvers kyns hugsanleg hagsmunatengsl dómara í málum þeirra við sakarefni málanna. Hvort dómararnir hafi ef til vill sjálfir orðið fyrir fjárhagsskaða sem rekja megi til ætlaðra mistaka við stjórn banka. Fyrrgreind frétt gefur tilefni til tor- tryggni um að hér hafi ekki allt verið með felldu og ættu þeir sem hags- muni kunna að hafa að gera nú kröfur um slíkar upplýsingar. Vonandi geta dómararnir sýnt fram á að þeir hafi haft hreinan skjöld þegar þeir kváðu upp dóma sína. Hreinn skjöldur Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson » Fyrrgreind frétt gefur tilefni til tortryggni um að hér hafi ekki allt verið með felldu. Höfundur er fyrrverandi hæsta- réttardómari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.