Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður
Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is
Fjölbreytt vöruúrval
Tunnur
Fötur
Strekki-
filmur
Plast- og
vacuumpokar
Sorppokar
Einnota vörur
í miklu úrvali
Salt
Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Kristilegir demókratar, eða CDU,
flokkur Angelu Merkel kanslara,
misstu mikið fylgi í kosningum í
Berlín, höfuðborg Þýskalands, en
þar búa 3,5 milljónir manna.
Flokkurinn fékk aðeins 17,6% at-
kvæða sem er minnsta fylgi sem
hann hefur fengið í Berlín.
Þetta er annað höggið sem flokk-
urinn hefur fengið í kosningum í
mánuðinum en nýlega lenti hann í
þriðja sæti í Mecklenburg-Vor-
pommern, og það var einnig versta
útkoma flokksins í sögunni í því
sambandslandi, en það er í austur-
hluta Þýskalands.
AfD í mikilli sókn
AfD, eða Alternative für Deutsch-
land (Annar kostur fyrir Þýskaland)
fékk 14% atkvæða og er talinn vera
sá flokkur sem hafi tekið mest fylgi
frá CDU. Stjórnmálaskýrendur eru
flestir á því að ástæða þess að AfD
hafi náð svona góðri kosningu sé
innflytjendastefna Merkel sem hef-
ur verið mjög umdeild í Þýskalandi.
Í fyrra kom rúm milljón flótta-
manna til Þýskalands eftir að Ang-
ela Merkel opnaði landið fyrir
flóttafólki frá Sýrlandi.
Þýskir sósíaldemókratar fengu
flest atkvæði í Berlín, um 22%, en
þeir töpuðu fylgi frá síðustu kosn-
ingum þegar þeir fengu 29%. Menn
óttast því stjórnarkreppu í Berlín,
en þar hafa sósíaldemókratar starf-
að með CDU. Þýskir fjölmiðlar hafa
talað um sigur sósíaldemókrata sem
einhvern slakasta sigur í langan
tíma.
Í kosningabaráttunni réðst AfD
harkalega á innflytjendastefnu
CDU með góðum árangri. AfD-
flokkurinn er nú kominn með fót-
festu í 10 af 16 sambandslöndum í
Þýskalandi og er talinn líklegur til
að ná fótfestu á þýska þinginu í
kosningum á næsta ári. Fulltrúar
AfD tala sjálfir um að þeir séu orðn-
ir þriðja stærsta aflið í þýskum
stjórnmálum núna og ætla sér sigur
í þingkosningunum.
Fjármálaráðherra Bæjaralands,
Markus Söder, sem er úr systur-
flokki CDU, CSU, sagði niðurstöðu
kosninganna enn eina viðvörun til
kristilegra demókrata.
Ólíklegt að Merkel verði felld
Lítið hefur verið gert úr þeim
baráttuanda sem Angela Merkel
reyndi að blása þjóð sinni í brjóst
þegar ákvörðun var tekin um að
taka á móti yfir milljón flóttamönn-
um í fyrra. Hún notaði orðin „Wir
schaffen das,“ sem þýðir „okkur
mun takast þetta“. Núna segist hún
ekki vilja nota þessi orð um verk-
efnið, því að þetta sé svo mikil ein-
földun á flóknu en mikilvægu verk-
efni.
Hún segist sjá eftir ýmsum hlut-
um varðandi innflytjendamálin og
talar um að ef hún gæti farið aftur í
tímann myndi hún vilja undirbúa
Þýskaland miklu betur fyrir þennan
innflytjendavanda.
Engu að síður er talið ólíklegt að
uppreisn verði gerð gegn Angelu
Merkel í flokknum enda hefur hún
verið óumdeildur leiðtogi og sigur-
vegari þangað til í fyrra þegar hún
tók þessa ákvörðun í innflytjenda-
málum. En í raun hefur enginn
komið fram innan flokksins sem
leiðtogaefni sem ógnar henni. Eins
og dagblaðið Süddeutsche Zeitung
skrifar: „Enginn veit hvernig CDU
verður án Angelu Merkel.“
Mikill ósigur Merkel í Berlín
AfD orðið stórt afl í þýskum stjórnmálum Kristilegir demókratar aldrei fengið jafn fá atkvæði í
kosningum í Berlín SPD fékk flest atkvæði en tapaði samt sjö prósentustigum frá síðustu kosningum
AFP
Umdeild Eftir annan kosningaósigurinn í röð eru kristilegir demókratar í Þýskalandi orðnir uggandi.
Ahmad Khan Rahami, sem er grun-
aður um sprengjuárásirnar í New
York um helgina, var handtekinn
eftir skotbardaga við lögreglu í gær.
Var hann handtekinn í bænum Lind-
en í New Jersey.
Að sögn BBC er maðurinn 28 ára
Bandaríkjamaður sem fæddist í Afg-
anistan.
Linden er skammt suðvestan við
bæinn Elizabeth í New Jersey,
heimabæ Rahami, þar sem fulltrúar
alríkislögreglunnar FBI fundu og
gerðu óvirkan fjölda sprengja sem
komið hafði verið fyrir á lestarstöð.
Lýst var eftir Rahami vegna
gruns um aðild að sprengingunum í
Chelsea-hverfinu í New York þar
sem 29 manns særðust og rör-
sprengjuárás við Jersey-ströndina
sem olli ekki mannskaða.
Var Rahami handtekinn aðeins
fjórum klukkustundum eftir að FBI
hafði gefið út mynd af honum þar
sem hann var sagður vopnaður og
hættulegur.
Hryðjuverkamaðurinn
handtekinn í New York
Bandaríkjamaður af afgönskum uppruna grunaður
AFP
Skotbardagi Lögreglumaður á ferð í Linden rétt eftir handtökuna.
Tveimur Ítölum var rænt í Líbíu í
gær að sögn ítalska utanríkis-
ráðuneytisins.
Fjölmiðlar á Ítalíu höfðu þetta
eftir embættismönnum í ráðuneyt-
inu í gær. Hermt er að mennirnir
hafi verið á ferð í suðurhluta
borgarinnar Ghat ásamt kan-
adískum manni. Allir þrír voru í
vinnu hjá fyrirtæki sem sér um við-
hald á flugvelli borgarinnar, að því
er haft var eftir heimildarmönnum í
Líbíu. Nokkur ítölsk fyrirtæki
starfa í Líbíu sem er fyrrverandi
nýlenda Ítalíu. Glundroði hefur ver-
ið í Líbíu frá því að Mummar Gad-
dafi einræðisherra var steypt af
stóli eftir innrás NATO árið 2011.
Tveimur Ítölum rænt
í suðurhluta Líbíu
LÍBÍA
Tölvunarfræðingur frá Cambridge-
háskólanum í Bretlandi hefur náð
að brjóta sér leið inn í iPhone. Hann
fann leið til að geta reynt endalaust
við leyniorðaleit inn í gemsann.
Stjórnendur Apple eru mjög
harðir á því að leyfa ekki stjórn-
völdum að komast inn í gemsa sem
þeir hafa framleitt og gáfu ekki
einu sinni leyfi þegar FBI vildi
komast inn í gemsa Farook-
hjónanna sem frömdu fjöldamorð í
fyrra í Kaliforníu.
FBI keypti á endanum þjónustu
frá hökkurum fyrir eina milljón
dollara til að komast inn í síma
fjöldamorðingjanna.
Að sögn tölvunarfræðingsins frá
Cambridge, sem er doktor og heitir
Sergei Skorobogatov, þá þarf hann
um það bil 40 klukkustundir til að
komast inn í iPhone með fjögurra
stafa leyniorði en hann gæti þurft
hundruð klukkustunda til að kom-
ast inn í gemsa með sex stafa leyni-
orði.
BANDARÍKIN
Tölvunarfræðingi tókst að
brjóta sér leið inn í iPhone-síma
Blóð Farook-hjónin myrtu fjölda manns.