Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.09.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016 Umræður um lista flokks semskotleyfi er á snýst aðeins um umbúðir. Ekki innihald. Vef- Þjóðviljinn undirstrikar þetta:    Aldrei veltirneinn fyrir sér skoðunum einstakra frambjóðenda. Það er fyrst og fremst þetta með kynið. Enginn veltir fyrir sér hvort frambjóð- endur í efstu sætum séu frekar til hægri eða vinstri í flokkn- um. Enginn veltir fyrir sér hvort fram- bjóðendurnir séu stjórnlyndir eða frjálslyndir, hvort þeir hafi ákveðnar skoðanir á skatta- málum eða sé næstum sama um þau, hvort þeir hafi ákveðnar skoð- anir á einstaklingsfrelsi eða sé næstum sama um það, hvort þeir vilji fækka boðum og bönnum eða hvort þeir vilji auka þau. Ekkert af slíku er talið upp.    En vandlega er sagt frá því að álistanum séu jafn margar kon- ur og karlar, ungir og gamlir. Ætli franskir feministar kjósi Marine Le Pen af því að hún er kona? Eða get- ur verið að þeir taki sér frí frá kynjatalningunni rétt á meðan þeir taka Hollande fram yfir hana? Þegar kjósendur velja fólk til að setja sér og sínum lög og reglur ættu þeir að velta fyrir sér hvað hver og einn frambjóðandi sé lík- legur til að gera, nái hann völdum. Kynferði hans á ekki að skipta þar neinu máli.    Hvers vegna ætti róttæk vinstri-kona að vilja Þórdísi Kol- brúnu Reykfjörð Gylfadóttur frek- ar en Steingrím J. Sigfússon? Hvers vegna ætti frelsisunnandi hægri- kona að vilja Katrínu Jakobsdóttur frekar en Óla Björn Kárason?“ Katrín Jakobsdóttir Aldrei ríður hræsni við einteyming STAKSTEINAR Óli Björn Kárason Veður víða um heim 19.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 7 rigning Akureyri 11 léttskýjað Nuuk 3 heiðskírt Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 11 heiðskírt Lúxemborg 16 skýjað Brussel 17 rigning Dublin 14 heiðskírt Glasgow 15 heiðskírt London 18 alskýjað París 17 rigning Amsterdam 18 skýjað Hamborg 17 heiðskírt Berlín 19 skýjað Vín 17 léttskýjað Moskva 12 rigning Algarve 23 alskýjað Madríd 23 léttskýjað Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 28 heiðskírt Róm 22 rigning Aþena 26 rigning Winnipeg 18 heiðskírt Montreal 25 rigning New York 21 rigning Chicago 26 heiðskírt Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:07 19:36 ÍSAFJÖRÐUR 7:11 19:42 SIGLUFJÖRÐUR 6:54 19:25 DJÚPIVOGUR 6:36 19:06 REKJAVÍK: Krókháls 16 | AKUREYRI: Lónsbakka | sími 568-1500 | www.thor.is Steypuvíbratorar Steypuvíbrator M2000 1,7 kW, 6,4 kg. 17.500 pr/mín Steypuvíbrator M3000 2,3 kW, 8,4 kg. 16.500 pr/mín Fáanlegir hausar 35 mm og 45 mm Fáanlegir barkar 3, 4 og 5 metrar WACKER NEUSON umboðið á Íslandi Birgir Jakobsson landlæknir er vanhæfur til að fjalla opinberlega um barkaígræðsluna á Karólínska sjúkrahúsinu. Þetta segir Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir og pró- fessor, sem sendi frá sér yfirlýs- ingu í gær vegna umfjöllunar um barkaígræðslu- málið svonefnda og greinir frá því að þungbært sé að vera end- urtekið borinn tilhæfulausum ásökunum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur síðastliðið ár staðið yfir rann- sókn á fjórum plastbarkaíg- ræðslum sem læknirinn Paolo Macchiarini framkvæmdi á Karól- ínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Fyrsti sjúklingurinn sem fékk ígræðslu var sendur til meðferðar á Karólínska frá Íslandi, en sá hafði sjaldgæfa tegund krabba- meins sem ekki var hægt að með- höndla frekar á Íslandi. Á Karól- ínska komust læknar að þeirri niðurstöðu að plastbarki væri eini möguleikinn til lækningar, að öðr- um kosti væri líknandi meðferð eina úrræðið. Ákvörðun um ígræðslu hefði verið tekin af sænskum læknum í samráði við sjúklinginn þar sem hann lá á Kar- ólínska. Það segir Tómas hafa ver- ið gert án þess að haft væri sam- band við sig eða aðra lækna hér heima. Forstjóri Karólínska þegar ítalski læknirinn var ráðinn Nýlega var Birgir Jakobsson landlæknir í viðtali við Fréttatím- ann um þetta mál og þar telur Tómas Guðbjartsson réttu máli hallað. Það hafi til dæmis verið krabbameinslæknar á Landspítala, sem fyrst höfðu milligöngu um að sjúklingnum yrði vísað á Karól- ínska þegar þá þraut ráð. Birgir varpi einnig fram þeirri spurningu hvað læknar sjúklingsins, þar með talinn Tómas, hafi vitað um árang- ur þegar haldið var málþing í Há- skóla Íslands ári frá aðgerðinni. Birgir láti jafnframt að því liggja að ákvarðanir um næstu aðgerðir hafi verið teknar vegna framburð- ar lækna um að sjúklingnum hefði liðið vel. Á málþinginu hafi komið skýrt fram að ýmis vandkvæði hefðu fylgt aðgerðinni, svo sem endurteknar sýkingar. Þetta hafi ekki verið neitt leyndarmál. Tómas segir það gera Birgi van- hæfan í þessu máli að hann var forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi þegar læknirinn Macchiarini var ráðinn þangað til starfa og þegar fyrstu barka- ígræðsluaðgerðirnar voru gerðar. Greinir Tómas í yfirlýsingunni frá því að fyrir aðgerðina á manninum sem kom frá Íslandi hafi Birgir beðið sína menn að yfirfara mála- vexti, enda höfðu forsvarsmenn Sjúkratrygginga Íslands þá tjáð Birgi að stofnuninni væri óheimilt að greiða fyrir tilraunameðferð. Því hafi Birgir skrifað undir samning um að Karólínska greiddi fyrir tilraunahlutann. Vangaveltur úr lausu lofti gripnar „Á sama tíma lá sjúklingurinn inni á Karolinska og því hefði ver- ið auðvelt fyrir lækna þar að skoða sjúklinginn og meta alvar- legt ástand hans. Vangaveltur um að við, íslenskir læknar, höfum sagt ósatt um ástand sjúklingsins fyrir aðgerðina, eða eftir hana, eru því algjörlega úr lausu lofti gripn- ar,“ segir Tómas og bendir á að Birgir gangist við því í viðtalinu við Fréttatímann að vera vanhæf- ur til að stýra íslenskri rannsókn- arnefnd í málinu. Á sama tíma fari hann í fjölmiðlum frjálslega með staðreyndir sem flæki rannsókn málsins. Telur landlækni vera vanhæfan  Tómas sendi frá sér yfirlýsingu Tómas Guðbjartsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.