Morgunblaðið - 20.09.2016, Side 4

Morgunblaðið - 20.09.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016 Agnes Bragadóttir Skúli Halldórsson Kjördæmisþing framsóknarfélag- anna í Suðurkjördæmi verður hald- ið á Selfossi næsta laugardag, 24. september. Þar verður framboðs- listi Framsóknarflokksins í Suður- kjördæmi kynntur og væntanlega samþykktur. Björn Harðarson, bóndi í Holti I, er formaður kjörnefndar framsókn- arfélaganna í Suðurkjördæmi. „Við munum kynna lista kjör- nefndar á kjördæmisþinginu sem haldið verður á laugardag og þingið gengur svo frá listanum,“ sagði Björn í samtali við Morgunblaðið í gær. „Sigurður Ingi Jóhannsson, vara- formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, sækist áfram eft- ir því að leiða listann og skipa efsta sæti hans. Silja Dögg Gunnars- dóttir alþingismaður býður sig ein fram í 2. sætið og svo bjóða þrír sig fram í þriðja sæti listans. Svo still- um við í kjörnefndinni upp fram- boðslista fyrir neðan fimmta sætið,“ sagði Björn. Um sex hundruð eiga seturétt Björn segir að hátt í sex hundruð framsóknarmenn í Suðurkjördæmi eigi seturétt á kjördæmisþinginu, sem verður tvöfalt, rétt eins og var í Norðausturkjördæmi sl. laugardag. Hann átti þó ekki von á að svo margir fulltrúar myndu mæta til þingsins. Sigurður Ingi Jóhannsson for- sætisráðherra segist meta mikils þær áskoranir sem hann hefur feng- ið til formannsframboðs í Fram- sóknarflokknum, gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins. Í samtali við mbl.is í gær vildi Sigurður Ingi ekki svara því hvort hann myndi verða við áskorununum. „Um þessi mál mun ég lítið tjá mig þessa vikuna, við erum að fara inn í kjördæmis- þing í mínu kjördæmi á laugardag- inn og ég vil frekar tala fyrst við fólkið í flokknum áður en ég ræði við fjölmiðla,“ sagði Sigurður Ingi. Sigurður Ingi sækist eftir fyrsta sæti Morgunblaðið/Eggert Varaformaður Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknar- flokksins og forsætisráðherra, tjáir sig ekki um formannsframboð.  Listi Framsóknar í Suðurkjördæmi ákveðinn á kjördæmisþingi á laugardag  Vill fyrst tala við fólkið á kjördæmisþingi um formannsframboð Atkvæðagreiðsla um tillögu um ótímabundið verkfall sjómanna hófst í gær. Hún er rafræn. Verði tillagan samþykkt mun verkfall sjó- manna hefjast að kvöldi 10. nóv- ember nk., hafi ekki nást samn- ingar fyrir þann tíma. Atkvæðagreiðslan fer fram í tólf aðildarfélögum Sjómanna- sambands Íslands. Sjómannasambandið gerði kjara- samning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi í sumar. Var hann undirritaður 24. júní. Samning- urinn var hins vegar felldur með miklum mun í almennri atkvæða- greiðslu sjómanna. Sjómenn greiða at- kvæði um verkfall Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessar tvær stúlkur stunda nám við Mennta- skólann við Hamrahlíð þar sem í gær voru fyrstu atburðirnir í fjölbreyttri vikulangri dagskrá í til- efni af 50 ára afmæli skólans sem verður 24. september. Meðal þess sem gert verður til fróð- leiks og skemmtunar er fyrirlestraröð þar sem fyrrverandi nemendur skólans deila þekkingu sinni. Meðal þeirra sem í dag tala eru hæsta- réttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Ax- elsson og Halldóra Jónsdóttir geðlæknir. Þá verða ýmsir listviðburðir og hátíðardagskrá verður næstkomandi laugardag. Menntaskólinn við Hamrahlíð er fimmtíu ára og fjölbreytt dagskrá verður í vikunni Morgunblaðið/Eggert Listviðburðir, skemmtun og fyrirlestrar Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sérfræðingar Orku náttúrunnar (ON) og Orkuveitu Reykjavíkur (OR) voru í gær ásamt vísindamönn- um við Veðurstofu Íslands og fleiri að fara yfir skjálftavirkni sem varð um nýliðna helgi við Húsmúla á Hengilssvæðinu. Tilgangurinn var að kanna hvort skjálftarnir tengdust niðurdælingu vinnsluvatns frá Hellisheiðarvirkjun. Í tilkynningu frá ON segir að vitað sé að breyt- ingar á tilhögun niðurdælingar, sem staðið hefur yfir við Húsmúla frá árinu 2011, geti orsakað svonefnda gikkskjálfta. Engar breytingar hafa verið gerðar nýverið á niðurdæling- unni og því kallaði jarðskjálftahrinan á ítarlega greiningu allra gagna. Marta Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður auðlinda hjá ON, sagði að Húsmúli stæði á virku jarðskjálfta- belti en Gráuhnúkasvæðið sé ekki virkt jarðskjálftasvæði með sama hætti og Húsmúlasvæðið. Haft var samráð við jarðskjálftasérfræðinga hjá Veðurstofu Íslands og í fræða- samfélaginu í gær. Beðið var eftir frekari greiningum frá þeim um hvort tengsl séu á milli jarðskjálfta- hrinunnar og niðurdælingarinnar á Húsmúlasvæðinu. ON getur ekki tjáð sig um niðurstöður fyrr en form- leg niðurstaða fæst frá sérfræðing- unum. Vinnsluvatni frá Hellisheiðar- virkjun hefur verið dælt niður í jarð- hitageyminn undir Hellisheiði allt frá því að Hellisheiðarvirkjun var tekin í notkun árið 2006. Nú er 700- 800 lítrum af vinnsluvatni dælt niður á sekúndu við Gráuhnúka og við Húsmúla. Niðurdælingin við Hús- múla hefur valdið skjálftavirkni en ekki við Gráuhnúka. Svo er að sjá sem vatnið sem dælt var niður við Húsmúla hafi virkað eins og smurn- ing og losað um spennu sem var í jarðlögunum. Því var tekið upp verk- lag þar sem forðast var að gera snöggar breytingar á tilhögun niður- dælingar. Einnig að láta almenning og yfirvöld vita fyrirfram þegar gera þyrfti breytingar á niðurdælingunni. Þessu verklagi hefur verið fylgt síð- an. Almennt er gerð sú krafa í nýjum jarðgufuvirkjunum að vinnsluvatn- ingu sé skilað aftur niður í jarðhita- geyminn. Niðurdælingin hefur tví- þættan tilgang. Annars vegur dregur hún úr umhverfisáhrifum á yfirborði og hins vegar eflir niður- dælingin sjálfbærni nýtingar jarð- hitaauðlindarinnar með því að skila vinnsluvatninu aftur niður í jarðlög- in þar sem það hitnar á ný. Þetta spornar einnig við lækkun á vatns- þrýstingi í jarðhitageyminum. Þrír snarpir jarðskjálftar urðu á Hengilssvæðinu á sunnudaginn var. Jarðskjálfti að stærð 3,1 stig varð um áttaleytið um morguninn og fannst hann í Hveragerði. Jarð- skjálfti að stærð 3,6 stig varð svo klukkan 22.29 um kvöldið. Tilkynn- ingar bárust um að hann hefði fund- ist í Hveragerði, Mosfellsbæ og Kópavogi. Skömmu síðar kom skjálfti sem var 3 stig og fylgdu nokkrir smærri skjálftar í kjölfarið. Kanna hvað veldur jarðskjálftum  Orsök nýlegrar jarðskjálftahrinu á Hellisheiði rannsökuð  Skjálftar vegna niðurdælingar við Húsmúla en ekki við Gráuhnúka  Engar breytingar hafa verið gerðar á niðurdælingu upp á síðkastið Morgunblaðið/Árni Sæberg Hellisheiðarvirkjun Jarðhitavökvi úr iðrum jarðar knýr virkjunina. „Ég er að hætta búskap. Ætla ekki að nota örorkubæturnar til þess að borga með því sem ætti að skila mér tekjum,“ segir Ástþór Skúlason, bóndi á Melanesi á Rauðasandi. Hann setur um 200 lömb í slátr- un í næsta mán- uði, en 150 kind- ur sem verið hafa á vetrarfóðrum verða seldar ef einhver vill. Annars fara þær í slátrun. Eins og fram hefur komið lækka sláturhúsin skilaverð til bænda fyrir lambakjöt um að jafnaði 10% frá fyrra ári eða í 538 kr. kílóið. Fyrir fullorðið fé verða greiddar 115 kr. „Þetta eru engar tekjur og svo fæst ekki leng- ur fólk í smalamennsku. Ég verð að hætta og býst við að fleiri bændur hér vestra geri hið sama á næst- unni. Það gæti orðið fjárlaust á Rauðasandi,“ segir Ástþór, sem vakið hefur athygli fyrir búskap sinn, en hann er lamaður neðan mittis eftir bílslys fyrir mörgum ár- um. Segist þó ótrauður geta haldið búskap sínum áfram, ef afkoman öll væri ekki brostin. sbs@mbl.is Ástþór mun bregða búi  Afkoman brostin Ástþór Skúlason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.