Morgunblaðið - 20.09.2016, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016
Ekki taka óþarfa
áhættu, fáðu
fagmenn í verkið
Sérþjálfaðir starfsmenn
og búnaður fyrir
erfiðustu aðstæður
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Trjáfellingar
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Mundu að öll sambönd byggjast á
því að báðir aðilar leggi sitt af mörkum.
Láttu flugeldasýningar annarra sem vind um
eyru þjóta því þeir eru síst betri menn en þú.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér kann að berast óvænt tilboð upp í
hendurnar og ef þú heldur rétt á spilunum
getur það orðið þér til gagns. Ein leið til
þess að tryggja að hugmynd sé góð er að fá
margar í einu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Taktu einn hlut fyrir í einu því ef þú
ert með of mörg járn í eldinum fer allt úr
böndunum. Fáðu útrás fyrir þá í dagbókinni.
Láttu fara lítið fyrir þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru stundum margar hliðar á
málum og ekki gott að ráða í hvað rétt er.
Hentu fáeinum hlutum sem þú hefur ekki
lengur þörf fyrir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki minniháttar persónuleg
vandamál byrgja þér sýn. Reyndu að ein-
beita þér að því sem þú átt að gera, því ann-
ars gengur ekkert upp hjá þér í tæka tíð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú vilt koma hlutunum í verk í dag og
gera þá almennilega. Deildu einhverju per-
sónulegu. Einhver gæti tekið upp á því að
notfæra sér það til góðs.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er mikið að gerast hjá þér í útgáfu-
málum, ferðalögum, æðri menntun eða
starfsþjálfun. Farðu varlega að öðrum og
sýndu þeim og skoðunum þeirra tillitssemi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Forðist rifrildi við aðra. Aðeins
með því að gera hreint í eigin ranni getur þú
haldið áfram. Gakktu bara glaður til verks-
ins.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þig langar til að taka rækileg til í
óreiðukenndu sambandi, umhverfi eða
vandamáli. Reyndu að hugsa þig tvisvar um
áður en þú segir nokkuð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekki hvatvísina ráða ferð-
inni, því þá ert þú viss með að sitja uppi
með óþægilega hluti. Nú ættu hlutirnir hins
vegar að fara að komast á skrið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Líf þitt er eins og langþráð frí.
Tékkaðu af staðreyndir málsins áður en þú
lætur til skarar skríða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að tala tæpitungulaust
svo enginn þurfi að fara í grafgötur um hvað
það er sem þú vilt. Farðu varlega í að sam-
þykkja nokkuð.
Framsóknarmenn á Norð-
Austurlandi héldu kjördæmisþing
og eru „sjálfum sér samkvæmir“
segir Ármann Þorgrímsson:
Í fyrsta sætið settu mann
sem þó hæfði neðsta þrepið
þeir kepptust við að kjósa hann
en kúluskítinn hafa drepið.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson sagði
að kunningi sinn, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, hefði stungið að
sér þessari vísu. – „Ég tek annars
enga ábyrgð á svona kveðskap“:
Umhverfið skal ekki trega,
á þau spjöll ég sáttur lít.
Framsókn hefur farsællega
fengið nýjan kúluskít.
Baldur Garðarsson spyr hvort
menn kannist við meðfylgjandi hús-
gang og hvað hátturinn heiti:
-naldo svekktur nú er Ró-
-nalegur þá verður dó-
-hnappa saman herpir þjó-
hann er -ískur ekki stó-.
Þetta er lipurlega og skemmti-
lega kveðið undir slitruhætti.Frá
því er sagt að Valdimar Briem hafi
borist í hendur vísa um Alexander
mikla til að skopast að þessu fyr-
irbæri:
Arkipela- yfir -gus
öðling sigla náði
fjöllum Káka- frammi í -sus
fólkorustu háði.
Valdimar fannst vísan ekki nógu
dýrt kveðin og orðin ekki nægilega
sundurslitin. Hann gerði því þessa
bragarbót:
Arki- sjáinn yfir -pela-
öðling frá ég sigla -gus.
Hann við Gága- harða mela
hosti- máir líf af -bus.
Magnús Halldórsson yrkir í
gamalkunnum limrustíl:
Eyjólfur bara’ ef að bjór sá,
brjálaðist þannig að stórsá,
á honum og
oft sótt í trog.
vatn sem að var ekki úr Þjórsá.
Stefán Skafti Steinólfsson yrkir
um Fagradal á Skarðsströnd:
Leikur áin ljúft um dalinn,
legg við stráin vanga minn
lifnar þráin líður smalinn
létt um háa fjallakinn.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
yrkir um annan dal:
Oft í fýlu andlegri
opnast dýrðar sjóður.
Fossdalurinn fallegi,
friðsæll mjög og góður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kúluskítur, slitruháttur
og vatn úr Þjórsá
Í klípu
HRÓÐGEIR REYNIR AÐ
GRÍPA SÉR BLUND.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SKIPTU ÞÉR EKKI AF!
ÉG VIL HAFA ÞETTA SVONA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að róta upp laufum
saman.
OG ÞÁ SAGÐI MAMMA: „VERTU
AÐEINS LENGUR OG FÁÐU ÞÉR
KAFFI, JÓN.“ OG ÉG SAGÐI: „NEI
TAKK, ÉG VERÐ AÐ FARA HEIM OG
LÁTA KETTINUM LEIÐAST.“ HAHA!
GRETTIR?
ÉG ER
FARINN TIL
BARDAGA!
EF ÉG SNÝ
EKKI AFTUR... ...HEIÐRIÐ
MINNINGU
MÍNA!
ÉG GERI
ÞAÐ...
...OG ÞAÐ GERA
INNISKÓRNIR
ÞÍNIR LÍKA!
Oft er sagt að ekkert breytisthraðar en íslenska veðrið. Vík-
verji er farinn að hallast að því að
þetta sé ekki rétt. Hvað breytist þá
hraðar? kannt þú að spyrja, lesandi
góður. Jú, álit manna á enskum fót-
boltaliðum. Svei mér ef það sveiflast
ekki hraðar en íslenska veðrið.
Tökum Manchester United sem
dæmi. Eftir sigur í fyrstu þremur
leikjunum á nýhafinni leiktíð voru
menn á einu máli um að þetta rót-
gróna stórveldi væri enn og aftur
orðið ósigrandi – eftir nokkur mögur
ár og titlaþurrð. Mourinho var aftur
orðinn „sá einstaki“, Rooney varð
vart við menn mældur, Zlatan var
goðum líkur og Pogba án nokkurs
vafa kaup ársins enda þótt hér um
bil hefði verið hreinsað út af banka-
reikningum til að tryggja krafta
hans.
x x x
Síðan tapaði Manchester Unitednæstu þremur leikjum – og það
á aðeins rúmri viku. Og þá var
skyndilega allt annað hljóð komið í
strokkinn. Nú er Mourinho allt í
einu búinn að missa’ða, leggja á
Rooney eins og hverju öðru vél-
arvana rúgbrauði, Zlatan er gamall
og úr sér genginn og Pogba kött-
urinn í sekknum.
Já, það er ýmist í ökkla eða eyra!
Ætli nokkrir íþróttamenn, eða menn
yfirhöfuð, séu dæmdir jafn ákveðið
út frá núverandi formi? Nánast
dagsformi.
Svo vinnur Manchester United
tvo eða þrjá leiki í röð og allir fara
aftur á sinn stall. Og verður svo
kippt niður af honum aftur. Og reist-
ir við aftur. Og …
x x x
Djöfull er enska knattspyrnansamt alltaf skemmtileg. Spann-
ar allt róf mannlegra tilfinninga. Ef-
laust fáum við aldrei aftur ösku-
buskuævintýri eins og Leicester
City bauð okkur upp á síðasta vetur
en það er sama. Alltaf kemur eitt-
hvert lið á óvart. Nú fer Everton til
dæmis með himinskautum í byrjun
móts. Hver sá það fyrir? Meðan
spútniklið fyrra árs eins og West
Ham og Southampton eiga á bratt-
ann að sækja. Í þessu er sjarminn
fólginn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Hann breytti storminum í blíðan blæ
og öldur hafsins lægði.
(Sálm. 107:29)