Morgunblaðið - 20.09.2016, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016
MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 23/9 kl. 20:00 89. sýn Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s.
Lau 24/9 kl. 20:00 90. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s.
Sun 25/9 kl. 20:00 91. sýn Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s.
Fös 30/9 kl. 20:00 92. sýn Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s.
Lau 1/10 kl. 20:00 93. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s.
Sun 2/10 kl. 20:00 94. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 102. s. Sun 30/10 kl. 20:00
Fim 6/10 kl. 20:00 95. sýn Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Fim 3/11 kl. 20:00
Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Fös 4/11 kl. 20:00
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 24/9 kl. 13:00 Frums. Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn
Sun 25/9 kl. 13:00 2. sýn Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Sun 9/10 kl. 13:00
Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn Sun 25/9 kl. 20:00 8. sýn Lau 1/10 kl. 20:00 10.sýn
Lau 24/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 30/9 kl. 20:00 9. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 11.sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 26/10 kl. 20:00
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn
Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
Molla; andleg, líkamleg ogveðurfarsleg molla svíf-ur yfir Stúlkunum,fyrstu bók Emmu Cline.
Það er líka í takt við viðfangsefnið;
unglingsárin sem einkennast oft af
doða og hugsunarleysi leitandi og
meðfærilegra sála sem hægt er að
móta og misnota.
Stúlkurnar ger-
ist að mestu við
endalok sjöunda
áratugarins í
Norður-Karólínu.
Einnig er litið til
nútíðar þegar að-
alpersónan, Evie
Boyd, er orðin
miðaldra kona og
hefur öðlast
ákveðna sýn á atburði unglingsára
sinna. Árið 1969 var Boyd 14 ára og
bjó með móður sinni á miðstétt-
arheimili. Hún er afskipt og leitandi.
Hún heillast af stúlkum sem hún sér í
garðinum einn daginn, þær eru óhefl-
aðar, frjálsar og fallegar og klæða sig
hirðuleysislega. Hún vill verða eins
og þessar stúlkur og leggur sig fram
um að komast í kynni við þær. Ein
þeirra heillar hana sérstaklega, Suz-
anne, sem er foringinn í hópnum.
Suzanne og hinar stúlkurnar eru
hluti af hálfgerðum sértrúarsöfnuði
sem hverfist í kringum mann að nafni
Russel. Söfnuðurinn hefur tekið sér
bólfestu á gömlum bóndabæ og Evie
finnst tilvera þeirra töfrum líkust.
Eins og aðrir heillast hún af Russel,
sem hefur mikið aðdráttarafl en er
langt því frá að vera heill á geði. Evie
dvelur langtímum hjá þeim en heldur
einnig í venjubundið líf sitt, sem hún
notar meðal annars til að útvega hin-
um nýju vinum sínum ýmislegt. Það
sem drífur Evie áfram er þráhyggja
hennar gagnvart Suzanne, sem
magnast dag frá degi. Svo kemur
dagurinn sem Suzanne hafnar henni
algjörlega og bjargar henni um leið.
Dagurinn sem ofbeldið, sem færðist
alltaf nær og nær, á sér stað. Efni
sögunnar er byggt á Manson-
morðunum frá 1969.
Cline nær vel að fanga sálarlíf ung-
lingstúlka þar sem allt snýst um að
vera hluti af hópi og að finna sinn stað
í veröldinni, vera viðurkennd. Það eru
ekki miklar hæðir eða dýfur í sög-
unni, hún mallar áfram í hitanum eins
og hugur Evie sem er svo upptekin af
sjálfri sér og þránni eftir viðurkenn-
ingu að hún tekur ekki eftir veröld-
inni í kringum sig og því kemur henni
það sem gerist á endanum á óvart.
Cline tekst vel til við að skapa sann-
færandi aðstæður, textinn er ferskur
og heillandi og einstakur andi svífur
yfir sögunni.
Heillandi „Textinn er ferskur og
heillandi,“ segir um bók Cline.
Stúlkurnar í
söfnuðinum
Skáldsaga
Stúlkurnar bbbmn
Eftir Emmu Cline.
Ingunn Snædal íslenskaði.
Bjartur 2016, 292 bls.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Við fyrstu sýn láta sýningarBrúðuheima lítið yfir sér,en enginn skyldi látablekkjast. Því þó brúðu-
meistarinn Bernd Ogrodnik mæti
einn á sviðið í upphafi sýningar líður
ekki á löngu þar til fjöldi persóna
hefur slegist í för með honum til að
miðla efniviðnum. Um liðna helgi
frumsýndu Brúðuheimar í samstarfi
við Þjóðleikhúsið Íslenska fílinn sem
er nýtt leikrit eftir Bernd og Hildi M.
Jónsdóttur í leikstjórn Ágústu
Skúladóttur.
Íslenski fíllinn fjallar um Ayodele,
munaðarlausan fílsunga sem leggur
upp í hættulegt ferðalag frá Afríku
til Íslands í leit að vatni sem er for-
senda lífs. Ayodele á í raun ekki ann-
arra kosta völ en að ferðast um hálf-
an hnöttinn því þurrkar ógna tilveru
hennar heimafyrir og önnur dýr
heimalandsins sýna því lítinn áhuga
að leggja henni lið og deila með henni
mat og drykkjarhæfu vatni. Með að-
stoð steypireyðar kemst Ayodele yfir
vatnið sem ekki er hægt að drekka og
endar á landinu græna sem kría
nokkur sagði henni frá í Afríku.
Sumir íbúar nýja landsins taka
Ayodele vel og eru forvitnir um þessa
áður óséðu skepnu á Íslandi, sem hef-
ur svo langan rana og stór eyru. En
önnur dýr hæðast að útliti hennar og
saka hana um að vilja ræna frá þeim
vatninu og grasinu. Það er auðvelt að
missa móðinn og fyllast heimþrá þeg-
ar manni er mætt með óvild, en
draumar Ayodele leiða hana áfram í
leit að svörum. Eftir æsispennandi
leiðangur upp í fjöllin finnur Ayodele
loks hamingjuna.
Auðvelt er að sjá Íslenska fílinn
sem sögu þeirra mörgu flóttamanna
sem leggja þurfa land undir fót í leit
að lífvænlegum samastað. Boðskapur
sögunnar um mikilvægi þess að
hjálpast að og sýna samkennd er
bæði fallegur og brýnn. Sýningin fell-
ur aldrei í þá gryfju að vera predik-
andi, heldur leyfir áhorfendum að
draga sínar eigin ályktanir. For-
dómum er ekki mætt af hörku heldur
með háði og hlátri, sem er í reynd
beittasta vopnið.
Eins og við er að búast eru brúð-
urnar úr smiðju Bernds mikil lista-
smíð þar sem nostrað hefur verið við
hvert smáatriði. Sem dæmi er rani
Ayodele ávallt á hreyfingu og ref-
urinn sem heimsækir drauma hennar
birtist ýmist sem heill refur eða bara
sem andlit, allt eftir því hvernig brúð-
unni er snúið. Leikmyndin er hug-
vitssamlega útfærð og getur lumað á
heilum kindakór íklæddum íslensk-
um lopapeysum. Fallega er unnið
með litina í sýningunni þar sem gul,
rauð og svört litapalletta sem ein-
kennir víðáttumiklar sléttur Afríku
víkur fyrir grænum, bláum og hvítum
lit eyjunnar í norðri.
Líkt og í Aladdín, sem Brúðu-
heimar frumsýndu í Þjóðleikhúsinu
fyrir þremur árum, er sögunni að
stærstum hluta miðlað með röddum
leikara sem spilaðar voru af bandi.
Vigdís Hrefna Pálsdóttir túlkaði
Ayodele af góðri innlifun, en hljóð-
blanda hefði þurft upptökuna betur,
því röddin virkaði á köflum of hvell í
hjóðkerfinu. Karl Ágúst Úlfsson var
dásamlegur í hlutverki gíraffans sem
var undir sterkum áhrifum frá rasta-
menningunni. Láru Jóhönnu Jóns-
dóttur tókst ótrúlega vel að herma
eftir hljóðum kríunnar í tali sínu.
Ólafur Egill Egilsson gerði sér mat
úr hlutverki hrafnsins sem talar nær
einvörðungu í spakmælum og orða-
leikjum. Snorri Engilbertsson og
Oddur Júlíusson voru frábærir í hlut-
verkum músanna Fannars og Finns
sem slást í för með Ayodele í leit að
refnum sem Ingvar E. Sigurðsson
túlkaði af viðeigandi rósemd.
Fremstur í flokki er hins vegar
snillingurinn Bernd sem stjórnaði
ekki aðeins fríðum flokki brúða af öll-
um stærðum og gerðum heldur heil-
um kindakór líkt og væri hann
kirkjuorganisti. Bernd býr yfir ótrú-
legum sviðssjarma og nær ætíð góð-
um tengslum við áhorfendur. Miðað
við mikinn fjölda brúða og hversu
tæknilega flóknar sýningar hans
augljóslega eru er aðeins hægt að
ímynda sér hversu mikið gengur á
bak við tjöldin og hversu hröð hand-
tök Bernds þurfa að vera, en yfir-
bragð hans er ávallt yfirvegað og ró-
semd hans hefur dáleiðandi áhrif á
áhorfendur á öllum aldri sem sitja
hugfangnir yfir sýningum hans sem
bæði kitla hláturtaugar og verma
hjartarætur.
Sjálfur er Bernd í raun besta sönn-
un þess hversu jákvæð og auðgandi
áhrif nýbúar geta haft á íslenskt
samfélag. Íslenskir leikhúsáhorf-
endur búa við þann munað að geta
notið leikhústöfra á heimsmæli-
kvarða á Brúðuloftinu í Þjóðleikhús-
inu og eiga stjórnendur leikhússins
þakkir skildar fyrir gjöfult samstarf
sitt við Bernd og Brúðuheima.
Morgunblaðið/Eggert
Munaður „Íslenskir leikhúsáhorfendur búa við þann munað að geta notið leikhústöfra á heimsmælikvarða á Brúðu-
loftinu í Þjóðleikhúsinu,“ segir í rýni um Íslenska fílinn úr smiðju Bernds Ogrodnik og Brúðuheima.
Hamingjan heima
Þjóðleikhúsið
Íslenski fíllinn bbbbm
Eftir Bernd Ogrodnik. Handrit: Bernd
Ogrodnik og Hildur M. Jónsdóttir. Leik-
stjórn: Ágústa Skúladóttir. Hönnun leik-
brúða og leikmyndar og brúðustjórnun:
Bernd Ogrodnik. Búningar: Ólöf Har-
aldsdóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stef-
ánsson. Tónlist: Bernd Ogrodnik. Þýðing
á söngtexta: Karl Ágúst Úlfsson. Út-
setning kórlags: Gunnar Ben. Hljóð-
mynd og upptökustjórn: Maggi Magg.
Raddir: Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Ólafur
Egill Egilsson, Snorri Engilbertsson,
Oddur Júlíusson, Ingvar E. Sigurðsson,
Lára Jóhanna Jónsdóttir, Karl Ágúst
Úlfsson, Þröstur Leó Gunnarsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Tinna Lind
Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefáns-
son, Edda Arnljótsdóttir og fleiri. Upp-
færsla Brúðuheima og Þjóðleikhússins.
Frumsýning á Brúðuloftinu í aðalbygg-
ingu Þjóðleikhússins laugardaginn 17.
september 2016 kl. 15.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Gunnar Kvaran tónlistarmaður tekur á móti gest-
um í Hannesarholti í kvöld klukkan 20. Gunnar
leikur sex saraböndur eftir Bach með jafnmörgum
hugleiðingum sem hann les á milli verka. Í fram-
haldi lýsir hann bernskunni í Þingholtunum og les
frumsamda skemmtisögu úr tónlistarheiminum.
Kvöldstund með Gunnari
Kvaran sellóleikara
Miðlun Gunnar Kvaran leikur og les í Hannesarholti í kvöld.
Tónlistarkonan Una Stef og gítar-
leikarinn Daníel Helgason halda tón-
leika á Café Rosenberg í kvöld. Nýjar
og smærri útsetningar á lögum Unu
verða í fyrirrúmi ásamt nokkrum vel
völdum ábreiðum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og kostar
1.500 krónur inn. Tónlistarkonan Una Stef.
Una Stef og Daníel
á Rosenberg
Kvartett banda-
ríska saxófónleik-
arans Mitch
Frohman kemur
fram á djass-
kvöldi Kex
hostels í kvöld.
Frohman lék
um 25 ára skeið
með hljómsveit
slagverksstjörn-
unnar Tito Pu-
ente og hefur
einnig starfað
með Mongo San-
tamaria, Matchito og Celiu Cruz. Hann hefur jafnframt
leikið með listamönnum úr poppgeiranum eins og Paul
Simon, Cyndi Lauper og Talking Heads. Tónlistin fer í
gang klukkan 20.30 og er aðgangur ókeypis.
Saxófónleikarinn Mitch Frohman.
Frohman á Kex hosteli