Fréttablaðið - 27.12.2016, Side 2

Fréttablaðið - 27.12.2016, Side 2
Kjötsvitinn lak í World Class Það lak mikið af hangikjöts- og konfektssvita niður á gólf World Class í Laugum í gær þegar Reykvíkingar og nærsveitamenn reyndu að hlaupa af sér jólaátið. Einn tími var á áætlun, Spinning, og var hvert tæki mannað, að sögn kennarans Þóru Margrétar Jónsdóttur. „Það var gríðarlega mikil stemning í tímanum. Allir voru hressir og orkumiklir, tilbúnir að brenna jólamatinn af sér,“ sagði hún. Fréttablaðið/anton Veður Sunnanstormur eða -rok í dag, hvassast um landið norðvestanvert. Talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðaustan til. sjá síðu 26 Netverð á mann frá kr. 59.995 m.v. 2 í herb/stúd/íbúð.Stökktu GRAN CANARIA NJÓTTU ÞÍN Á NÝJU ÁRI Frá kr. 59.995 2. jan. í 9 nætur samfélag Þann 20. desember var búið að selja 552 þúsund lítra af jólabjór í verslunum ÁTVR, 32 þúsund lítrum minna en á sama tíma í fyrra. Alls voru 43 tegundir í boði fyrir bjórþyrsta þessi jól. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR er þó ekki búist við að sala á jólabjór dragist mikið saman milli ára en hún hófst tveimur dögum síðar í ár. Í fyrra var byrjað að selja jólabjór á föstudegi en í ár á þriðjudegi. Býst ÁTVR við því að þegar jólabjórsalan verði gerð upp þá munu tölurnar jafnast. Þó nokkrar jólabjórstegundir seld- ust upp fyrir jól en margar tegundir eru bruggaðar í litlu magni enda þurfa bjórbirgjar sjálfir að farga sínum jóla- bjór sem ekki selst í ÁTVR. Sölutímabil jólabjórs er til þrettándans en ekki er búist við að ÁTVR þurfi að skila mörg- um lítrum til baka. Stutt er í að næsta tímabundna bjórtímabil hefjist. Sala á þorrabjór hefst skömmu eftir að jólabjórinn fer. Borg brugghús tekur þó forskot á sæluna en í dag byrjar sala á bjórnum Vínlandi sem gerður er í samstarfi við bruggmeistara Four Winds frá Kanada. Bjórinn er óður til þess að um eitt þús- und ár eru frá því að Leifur Eiríksson og félagar fundu Ameríku. Bjórinn er meðal annars bruggaður úr íslenskum bláberjum og krækiberjum en um tvö til þrjú hundruð kíló af íslenskum berjum fóru í bruggunina, sem að mestu eru af Norður- og Austurlandi. „Það má segja að haustber okkar Íslendinga séu það næsta sem við komumst náttúrulegum innlendum hráefnum til víngerðar,“ segir Árni Long, bruggmeistari í Borg Brugghúsi. „Það var mikill heiður að fá að brugga með Four Winds sem er mjög virt brugghús í Kanada. Þeir framleiða tæpa milljón lítra af bjór á ári og hann er nær allur seldur innan fylkismarka Bresku Kólumbíu. Við erum ákaflega ánægðir með útkomuna á Vínlandi og hlökkum til að fá viðbrögð íslensks bjóráhugafólks,“ bætir hann við. benediktboas@365.is Yfir 500 þúsund lítrar af jólabjór seldir í ár Sala á jólabjór fór hægar af stað nú en í fyrra. Um 32 þúsund færri lítrar höfðu farið í maga neytenda þann 20. desember. Birgjar farga því sem ekki selst. Jóla- bjórinn hverfur úr verslunum á þrettándanum og sala á þorrabjór hefst fljótt. Frá vinstri: brent Mills frá brugghúsinu Four Winds, ásamt bruggmeisturum á borg, Árna long, Sturlaugi Jóni björnssyni og Valgeiri Valgeirssyni. Mynd/aliSon Page samfélag Færri lögfræðingar luku námskeiði til að hljóta málflutn- ingsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2016 heldur en undanfarin ár. Alls stóðust fimmtíu lögfræðingar prófið á árinu. Í fyrra luku 74 námskeiðinu, 88 árið 2014 og 90 árið 2013. Meðal- talið frá árinu 2000 hefur verið um 58 nýir lögmenn á ári. Sem stendur eru um 1.100 lögmenn í Lögmanna- félagi Íslands og má gera ráð fyrir að sú tala muni ekki hækka á næstunni. Í frétt í Lögmannablaðinu kemur fram að hlutfall kvenna sem lýkur námskeiðinu sé hærra en síðustu ár. Í ár var hlutfallið rúm 76 prósent en hefur verið í kringum 46 prósent árin á undan. – jóe Færri ljúka lögmannsprófi samfélag „Við vorum að vona að við gætum opnað milli jóla og nýárs en vegna þess hve mikinn snjó við misstum úr fjallinu er ég ekkert voðalega bjartsýnn á það,“ segir Magnús Árnason, framkvæmda- stjóri skíðasvæða höfuðborgar- svæðisins. Stefnt var að því að opna skíða- svæðið í Bláfjöllum í gær en vegna mikils roks á aðfangadag varð ekk- ert úr þeim áformum. Magnús segir veðurfar dagsins í dag ráða úrslitum um það hvort hægt verði að opna skíðasvæðin fyrir nýtt ár. Skíðasvæðin í Hlíðarfjalli voru opnuð óvænt í gær og renndu um 350 manns sér niður brekkurnar á skíðum og á snjóbrettum. „Það fór að kyngja niður snjó í fyrradag þannig að við tókum þá skyndi- ákvörðun að opna skíðasvæðið í gær,“ segir Ástmar Reynisson, svæðisstjóri í Hlíðarfjalli. Ástmar segir veðrið hafi mikið verið að stríða þeim fyrir norðan og það muni ráðast af veðurfari dags- ins í dag og á morgun hvort hægt verði að halda skíðasvæðinu opnu. „Starfsfólkið mætir í dag með það að sjónarmiði að opna fjallið en það verður að koma í ljós hvort að það tekst vegna veðurs,“ segir Ást- mar. – þh Ekki útlit fyrir að Bláfjöll verði opnuð í vikunni Vonast er til að hægt verði að opna skíðasvæðin í bláfjöllum í vikunni. Fréttablaðið/anton Eðli og uppruni jólabjórs „Flestir framleiðendur nota meira ristað malt í bjórframleiðsluna fyrir jólahátíðina,“ skrifar Gissur Krist- insson vínráðgjafi um jólabjórinn á vef Vínbúðanna. Hinn hefðbundni jólabjór sé því dekkri á litinn en klassíski lagerbjórinn og líkist Classic bjórum helst. Gissur segir að sögu jólabjórsins megi rekja langt aftur því til séu frásagnir frá víkingatímanum um að norrænir víkingar hafi bruggað sérstaklega bragðmikið og sterkt öl til þess að fagna sólstöðum. „Það er því ekkert nýtt að framleitt sé sér- stakt hátíðaöl að vetri til og eðlilegt er að það sé kraftmikið og gefi ein- hvern hita í kroppinn,“ skrifar Gissur. Hlutfall kvenna sem lýkur námskeiðinu er hærra en fyrri ár. Sölutímabil jólabjórsins er til þrettándans en ekki er búist við að ÁTVR þurfi að skila mörgum lítrum til baka 2 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 Þ r I ð j u d a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð 2 7 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B C 9 -6 1 4 C 1 B C 9 -6 0 1 0 1 B C 9 -5 E D 4 1 B C 9 -5 D 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.