Fréttablaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 4
VELDU GÆÐI! PREN TU N .IS ................................................ mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 • Dalbraut 1 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS 3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM Samfélag Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð tekur þátt í tilraunaverk- efni um nýtt og breytt fyrirkomu- lag á greiðsluþátttöku íbúa. Íbúum Sunnuhlíðar verður ekki úthlutað vasapeningum. Með afnámi svo- kallaðs vasapeningakerfis er stefnt að auknu sjálfræði aldraðra. Í Sunnuhlíð verða teknar upp sér- tækar greiðslur fyrir húsaleigu og annan kostnað sem fylgir heimilis- haldi og íbúar ráða eigin fé. Starfshópi sem Eygló Harðar- dóttir, húsnæðis- og félagsmála- ráðherra, skipaði 3. maí á þessu ári var falið að útfæra og koma til- raunaverkefninu á. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum frá Lands- sambandi eldri borgara, Sam- tökum fyrir tækja í velferðarþjón- ustu, Sjúkratryggingum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Trygginga- stofnun og velferðarráðuneytinu. Annað hjúkrunarheimili á höfuð- borgarsvæðinu er með mögulega þátttöku til skoðunar. Tilraunaverkefnið fékk lagastoð þegar Alþingi samþykkti þann 13. október síðastliðinn breytingu á lögum um málefni aldraðra. Þar er kveðið á um tilraunaverk- efnið og hjúkrunar- og dvalarheim- ilum sem rekin eru af opinberum aðilum og taka þátt í verkefninu gert kleift að innheimta þau gjöld sem nýtt fyrirkomulag greiðsluþátt- töku kallar á. Eygló sagði í viðtali við Frétta- blaðið á árinu að hún teldi vasa- peningakerfið úrelt. „Ég vil fá nor- ræna kerfið þar sem þú færð bara peninginn í hendurnar og þá hefur viðkomandi oft meira valfrelsi um það hvernig peningunum er ráð- stafað. Þetta verður að vera svolítið einstaklingsmiðað,“ sagði Eygló. – kbg Íbúar í Sunnuhlíð ekki á vasapeningum Íbúar í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi, fá að njóta þess að taka þátt í tilraunaverkefni um afnám vasapeninga. Fréttablaðið/antonbrinK Samgöngur Alls fóru 472.672 ferða- menn um Keflavíkurflugvöll árið 2008. Þá voru virk leigubílaleyfi í landinu 537 talsins. Árið 2015 fóru 1.261.938 ferðamenn um Kefla- víkurflugvöll en virk leigubílaleyfi voru 547. Á meðan fjöldi ferða- manna næstum þrefaldaðist fjölgaði virkum leigubílaleyfum um tíu. Þetta kemur fram í svari Sam- göngustofu við fyrirspurn Frétta- blaðsins. Eru þar gefnar tölur um fjölda virkra leigubílaleyfa undan- farin ár. „[H]eildartalan hverju sinni er alltaf hærri þar sem leyfishafi má leggja leyfið inn tímabundið í allt að fjögur ár á tíu ára tímabili og taka þarf tillit til þeirra leyfa,“ segir í svarinu. Eins og er er takmörkun á útgefnum leigubílaleyfum. Þannig er heimild á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum fyrir samtals 560 leigubíla, að teknu tilliti til þeirra leyfa sem eru lögð inn tímabundið. Þá er einnig heimild fyrir 21 leigubíl á Akureyri og átta í Árborg. Þessi takmörkun er sömuleiðis það sem stendur bandaríska leigu- bílafyrirtækinu Uber fyrir þrifum. Greint var frá því fyrir rétt rúmum tveimur árum að nógu margar undirskriftir hefðu safnast til þess að Uber gæti hafið starfsemi í Reykjavík. Ekkert hefur hins vegar heyrst af þeim áformum síðan þá og er Reykjavík enn eina höfuðborg Norðurlanda þar sem þjónusta Uber er ekki aðgengileg. „Uber fellur því eins og staðan er í dag ekki undir þau lög og reglur sem gilda um leigubifreiðar. Til að Uber gæti starfað hér á landi þyrfti því að koma til breyting á regluverk- inu. Eitt það helsta er að gefa þyrfti starfsemina frjálsa,“ segir í svarinu frá Samgöngustofu. Fréttablaðið sendi fyrirspurn bæði á Samgöngustofu og innan- ríkisráðuneytið um hvort Uber hefði haft samband síðastliðin tvö ár varðandi hugsanlega komu til Íslands. Samkvæmt svörum við þeim fyrirspurnum hefur það ekki gerst. Enn er því óljóst hvort Uber hyggist bjóða upp á þjónustu sína á Íslandi þrátt fyrir að margt hafi bent til þess árið 2014. thorgnyr@frettabladid.is Ekkert útlit fyrir Uber á Íslandi 541 leigubílaleyfi er virkt í ár en þau voru 537 árið 2008. Leyfum hefur því ekki fjölgað þrátt fyrir aukinn ferðamannastraum. Gefa þyrfti starfsemina frjálsa ef leyfum ætti að fjölga. Það myndi opna á komu Uber. Uber hefur hvorki átt samskipti við Samgöngu- stofu né innanríkisráðu- neytið. leigubílstjórar víða um heim eru ósáttir við Uber og hafa mótmælt starfsemi fyrirtækisins harðlega. Þessir tveir krefjast þess að fyrirtækið stöðvi og líkja því við mafíu. nordicphotoS/aFp S TJ Ó r n SÝS l a U m b o ð s m a ð u r Alþingis hefur beint þeim tilmælum til innanríkisráðuneytisins að gerð verði úttekt á stöðu upplýsinga- gjafar til erlendra fanga í fangelsum landsins. Þetta kemur fram í nýju áliti hans. Málið má rekja til kvörtunar fanga af erlendum uppruna sem var færður úr opnu fangelsi yfir í lokað vegna agabrota. Við komuna í lok- aða fangelsið voru henni kynntar reglur þess munnlega á ensku og að auki fékk hún bækling á íslensku með reglunum. Í lögum um fullnustu refsinga kemur fram að skylt sé, við upphaf afplánunar, að afhenda fanga upp- lýsingar um réttindi hans og reglur á tungumáli sem hann skilur. – jóe Geri úttekt á upplýsingagjöf til fanga VIÐSKIPTI Megind ehf. þarf að greiða 250 þúsund krónur í sekt eftir að fyrirtækið gerði Fjármálaeftirlitinu ekki viðvart um að eignarhlutur félagsins í rekstrarfélaginu Summu fór yfir 50 prósent. Sátt náðist um sektina. Í mars keypti Megind ehf. 26 pró- senta hlut í Summu en átti fyrir 49 prósenta hlut í félaginu. Með því fór félagið yfir 50 prósenta þröskuldinn og bar því að tilkynna Fjármála- eftirlitinu um kaupin fyrir fram. Það var ekki gert. Með hliðsjón af umfangi brotsins, atvikum máls að öðru leyti og í ljósi þess að málinu var lokið með sátt við upphaf athugunar þótti sektin hæfilega ákveðin 250 þúsund. Summa hefur verið í eigu Meg- indar og Íslandsbanka. – jóe Sektað sökum gleymsku STJÓrnSÝSla Skipað hefur verið í eftirlitsnefnd með störfum lögreglu í samræmi við breytingar á lögreglu- lögum sem Alþingi samþykkti síðast- liðið vor. Eftirlitsnefndinni, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, er meðal annars ætlað að taka við erindum frá borgurum og greina hvort um sé að ræða kæru um refsiverða hátt- semi eða kvörtun er lúti að starfsað- ferðum lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðherra. Aðdragandi málsins er sá að innanríkisráðherra skipaði nefnd í byrjun árs 2015 sem fjallaði um með- ferð kvartana og kærumála á hendur lögreglu. Var nefndin skipuð í kjöl- far ábendinga frá umboðsmanni Alþingis og ríkissaksóknara um að úrbóta væri þörf. Engin bein fyrirmæli um innra eftirlit með starfsháttum lögregl- unnar var að finna í lögreglulögum og ekkert slíkt innra eftirlit var starf- rækt með formlegum hætti. Á tíma- bilinu 2005 til 2014 var fjöldi kæra á hendur lögreglu á bilinu 17 til 36 á ári og leiddi lítill hluti málanna til ákæru, eða á bilinu ekkert til þrjú ákærumál á ári. Flestar kærurnar vörðuðu handtökur og aðrar þving- unarráðstafanir lögreglu. „Hvað varðar fjölda kvartana vegna starfa lögreglu á tímabilinu þá gáfu þær upplýsingar sem bárust frá lögreglustjórum tilefni til þess að ætla að nokkuð skorti á að haldið hafi verið utan um mál vegna kvart- ana með viðeigandi hætti,“ segir í greinargerð frumvarpsins að breyt- ingum á lögreglulögum.  Nefnd innanríkisráðherra gerði tillögur að breyttu verklagi og laga- breytingum sem Alþingi samþykkti með breytingum á lögreglulögum síðastliðið vor. Formaður eftirlitsnefndarinnar er Trausti Fannar Valsson, dósent við Háskóla Íslands, sem skipaður er án tilnefningar, og aðrir nefndarmenn eru Þorbjörg Inga Jónsdóttir hæsta- réttarlögmaður, tilnefnd af Mann- réttindaskrifstofu Íslands og Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður, til- nefnd af Lögmannafélagi Íslands. Eftirlitsnefndin er skipuð til fjögurra ára. – þh Skipað hefur verið í eftirlitsnefnd með störfum lögreglunnar lögreglan við störf í miðborg reykjavíkur. Fréttablaðið/danÍel 2 7 . d e S e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J u d a g u r4 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a Ð I Ð 2 7 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B C 9 -7 5 0 C 1 B C 9 -7 3 D 0 1 B C 9 -7 2 9 4 1 B C 9 -7 1 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.