Fréttablaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 36
Við erum óttumst
ekkert að þetta
gangi of nærri fólki, en ég
mæli ekkert með þVí að fólk
sem er ViðkVæmt fyrir
háum hljóðum sé að koma.
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
M
ER
KI
Ð
M
IT
T
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
Flestir Íslendingar þekkja söguna Ferðin að miðju jarðar, eftir franska snill-inginn Jules Verne, en þó fáir vart jafnvel og fólkið á Snæfellsnesi.
Það kemur því ekki á óvart að Kári
Viðarsson, forsvarsmaður leikhúss-
ins í Rifi, skuli hafa ákveðið að ráðast
til atlögu við þetta merka verk enda
Kári stórhuga leikhúsmaður sem
hefur gert magnaða hluti í Frysti-
klefanum í Rifi á síðustu árum.
Sýningin Journey to the Center
of the Earth er eftir Kára Viðarsson,
sem einnig leikur í verkinu, verður
frumsýnd í Frystiklefanum í Rifi
næstkomandi föstudag. Leikstjóri er
Árni Kristjánsson en aðrir sem koma
fram eru þau Smári Gunnarsson,
Stephanie Lewis og Dóra Unnars-
dóttir ásamt 17 krökkum af svæðinu.
Hönnun leikmyndar og búninga er
í höndum Francescu Lombardi frá
Ítalíu, Ragnar Ingi Hrafnkelsson sér
um tónlist og hljóðmynd og dans-
höfundur sýningarinnar er hin
ástralska Jordine Cornish. Hér er því
svo sannarlega á ferðinni fjölþjóðleg
stórsýning og Kári segir að það sé
vissulega gaman að takast á við þetta
verk á þessum stað. „Við erum með
leikhúsið nánast við innganginn að
miðju jarðar. Við gætum eiginlega
ekki verið mikið nær enda leikhúsið
næsti nágranni jökulsins. Það hefur
líka blundað í mér að takast á við
þetta allt frá því að ég stofnaði þetta
leikhús.“
Rússibanareið
Kári segist vera frá Hellissandi, leik-
húsið að Rifi og að þetta séu nánast
einn og sami staðurinn. „Ég held að
við sem búum á þessu svæði þekkj-
um öll þessa sögu og við erum svona
pínu stolt af því að þessi bók hafi
eiginlega verið fyrsta alþjóðlega aug-
lýsingin fyrir þetta svæði. Þessi bók
hefur líka haft gríðarlega mikil áhrif
á allt mannlíf og alla ferðamennsku á
svæðinu. Þetta er saga sem leikhúsið
mitt á að segja og er sérstaklega
gaman fyrir okkur að takast á við.“
En hvaða leið er þá farin með
svona kunnuglegt verk á þessum
slóðum. „Hvað á ég að segja? Hún er
áhættusöm út af því að mér fannst,
þegar ég var að takast á við sögu sem
þessa, að þá þyrfti að taka áhættu.
Einfaldlega vegna þess að sagan
fjallar um að taka áhættu. Jules
Verne, með sinn vísindaskáldskap,
var mikill frumkvöðull í bókmennt-
um. Hann var að búa til og finna upp
hluti í sínum sögum sem urðu svo
að veruleika einhverjum hundrað
árum síðar. Þannig að þegar ég fór
að pæla í þessu þá vildi ég vera þessu
trúr og skapa leikhús á ystu nöf þó
svo við hefðum ekki mikla peninga
umleikis. En við erum að taka áhættu
og prófa að búa til einhvers konar
leikhúsbræðing, einhvers konar
rússí banareið af alls konar leikhúsi.“
Óður til leikhússins
Sýningin markar ákveðinn enda-
punkt fyrir það ferli sem hann hefur
unnið hörðum höndum að síðustu
ár með Frystiklefanum. „Þetta er
níunda sýningin sem ég er að gera
og þessi verður sú síðasta hjá mér
sem ég ætla að gera, alla vega í mjög
langan tíma, hér fyrir vestan. Ástæð-
an er einfaldlega sú að mig langar til
þess að gera eitthvað annað. Ég hafði
ákveðna sýn á það sem ég vildi gera
og hvaða sögur ég vildi segja og ég lít
á þetta sem ákveðinn endapunkt. En
þó ég sé að hætta að gera nýjar sýn-
Krefjandi ákvarðanir gera sýninguna skemmtilega
kári Viðarsson hefur á undanförnum árum sett upp fjölda leiksýninga í frystiklefanum í rifi. næsta
föstudag verður frumsýnd þar stærsta sýningin til þessa og reyndar einnig sú síðasta á vegum kára.
Félagarnir Þorvaldur Sigurbjörn
Helgason og Ástvaldur Axel Þóris-
son vinna þessa dagana að undir-
búningi á all sérstæðum listviðburði
í Mengi næstkomandi fimmtudag.
Ástvaldur er raftónlistarmaður og
rekur einnig útgáfufyrirtæki oqko
í Berlín þar sem hann er búsettur
um þessar mundir líkt og svo margir
íslenskir listamenn. Bakgrunnur
Þorvalds er hins vegar í sviðslist-
unum en hann er útskrifaðist sem
sviðshöfundur frá Listaháskóla
Íslands.
Þorvaldur segir að verkið sem
þeir ætli að flytja kallist Vald og
sé í raun blanda af hljóð- og sviðs-
verki. „Við köllum þetta leikrænt
hljóðverk. Unnið í framhaldi af því
að við vorum að kynna okkur áhrif
hljóða og ljósa á mannslíkamann. Í
framhaldinu skoðuðum við hvern-
ig hljóð og ljós hafa verið notuð í
hernaðarlegum tilgangi og þá ekki
síst hvernig herir, öryggislögregla
og leyniþjónustur nýta sér slíkt við
yfirheyrslur og þá aðallega í Banda-
ríkjunum.“
Þorvaldur segir að Vald sé samið
út frá þessari rannsókn og það sé
sett upp með þeim hætti að áhorf-
andinn gengur inn í yfirheyrslu þar
sem það er aðeins einn áhorfandi
í einu. „Þetta er svona eins og þú
sért að fara inn í yfirheyrslu en svo
eru eingöngu hljóð og ljós notuð í
verkinu því það er engir eiginlegir
flytjendur.
Þetta er óneitanlega soldið inten-
síft verk, það eru notaðar raddir
sem yfirheyra áhorfandann en við
gætum þess þó að þetta verði ekki
of óþægileg upplifun. Við erum
auðvitað ekkert að fara að pynta
áhorfandann en hugmyndin er að
þetta gefi fólk samt ákveðna innsýn
í þennan heim og hvernig þessum
áhrifum er beitt á manneskjur víða
um veröld til þess að afla upplýsinga
eða ná brjóta fólk undir vilja stjórn-
valda.“
Hver og einn flutningur tekur
um fimmtán mínútur og Þorvaldur
segir að með því að hafa aðeins einn
áhorfanda í einu þá náist fram þessu
tilfinning fyrir viðkomandi að hann
sé inni í verkinu.
„Áhorfandinn verður þannig
órjúfanlegur hluti af því sem við
erum gera. Við óttumst ekkert að
þetta gangi of nærri fólki, en ég
mæli ekkert með því að fólk sem
er viðkvæmt fyrir háum hljóðum
sé að koma. En ég hef persónulega
mjög gaman af því að fara á verk
Við erum ekkert að fara að pynta áhorfandann
Kári Viðarsson í Frystiklefanum í Rifi þar sem hann hefur byggt upp öflugt leikhús-
og menningarlíf á síðustu árum.
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason og Ástvaldur Axel Þórisson verða í Mengi á fimmtudaginn með verk sitt Vald. FRéttAblAðið/Anton bRinK
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U d A G U r28 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
menning
2
7
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
C
9
-6
6
3
C
1
B
C
9
-6
5
0
0
1
B
C
9
-6
3
C
4
1
B
C
9
-6
2
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K