Fréttablaðið - 27.12.2016, Síða 8

Fréttablaðið - 27.12.2016, Síða 8
Óskað er eftir tilnefningum til verðlauna úr Verðlaunasjóði Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar Verðlaunin nema kr. 5.000.000 Verðlaunin veitast vísindamönnum sem náð hafa framúrskarandi árangri í vísindarannsóknum í læknisfræði, lífvísindum og skyldum greinum. Tilnefningar þurfa að hafa borist stjórn sjóðsins fyrir 31. janúar 2017. Tilkynnt verður um verðlaunahafa í tengslum við ársfund Landspítala og Vísindi á vordögum vorið 2017. Stjórn Verðlaunasjóðs Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar, Hellulandi 10, Reykjavík 108. TILNEFNING TIL VERÐLAUNA skipulagsmál Fulltrúar meirihlutans auk framsóknarmanna í borgarstjórn synjuðu eigendum gamalla húsa á samliggjandi lóðum við Vegahúsastíg 1 og Klapparstíg 19 um deiliskipu- lagsbreytingu sem falið hefði í sér sex nýjar íbúðir á lóðunum. Í umsögn skipulagsfulltrúa borgar- innar kemur fram að lóðareigendurnir hefðu að ósk borgarinnar lagt fram nýja tillögu um skipulag lóðanna eftir fund í lok nóvember. Þar var gert ráð fyrir að halda bæði í steinbæ á Klapparstígslóðinni og timburhús frá 1889 á Veghúsastíg 1 en færa það ofar í lóðina. Þá átti að auka magn nýbygginga um 300 fermetra, úr 810 fermetrum í 1.115. Nýbygging yrði reist fjær lóðarmörkum en áður hafi verið gert ráð fyrir. „Sá hluti nýbygginga, sem gert var ráð fyrir að byggja við lóðar- mörk Klapparstígs 17, var færður að lóðarmörkunum, en það hefði, ásamt hækkun bygginganna, í för með sér talsverða aukningu á skuggavarpi á lóðina Klapparstíg 17. Tillaga þessi tekur ekki nægilegt mið af gömlu húsunum sem gert er ráð fyrir að varðveita og er byggingarmagn sam- kvæmt breytingartillögu of mikið fyrir þessa lóð,“ segir í umsögn skipulags- fulltrúans. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn því að ósk lóðareigendanna um nýtt skipulag yrði hafnað. „Húsið við Veghúsastíg 1 var metið ónýtt árið 2011. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mat húsið óíbúðarhæft í byrjun árs 2012 og Minjastofnun affriðaði húsið á árinu 2014 vegna bágs ástands þess,“ bentu sjálfstæðis- menn á í bókun og minntu á að Minja- stofnun gerði ekki athugasemdir við að gamla timburhúsið yrði rifið. Eðli- legt væri að fallast á deiliskipulags- breytinguna. „Gamla timburhúsið við Veghúsa- stíg 1 hefur ótvírætt varðveislugildi,“ bókaði hins vegar meirihlutinn í borgarstjórn ásamt fulltrúum Fram- sóknarflokks. Ekki mætti  „rífa það eða fjarlægja“. Málið á sér allnokkra sögu sem hófst árið 2008 þegar lóðirnar tvær voru sameinaðar í eina. Samkvæmt deili- skipulagi frá 2004 mátti rífa steinbæ- inn á Klapparstíg 19 sem er sá síðasti sinnar tegundar í Skuggahverfinu. „Árið 2009 var lögð fram fyrirspurn um nýbyggingu með sjö íbúðum og með þeirri tillögu var gert ráð fyrir að rífa bæði steinbæinn og timburhúsið,“ segir í upprifjun skipulagstjóra. Þessu hafnaði borgin á sínum tíma. Eins og fyrr segir eru lóðareigend- urnir nú tilbúnir að varðveita gamla húsið en færa það austar á lóðina. „Þó að timburhúsið sé illa farið, væri æski- legt að gera við það eða eftir atvikum endurbyggja það á núverandi stað, helst á upphaflegum undirstöðum,“ segir hins vegar í umsögn skipulags- stjóra. gar@frettabladid.is Borgin bannar eigendum að færa hús í Skuggahverfinu Eigendur lóðar á horni Vegahúsastígs og Klapparstígs fá ekki leyfi hjá borginni til að færa til 117 ára gamalt timburhús sem heilbrigðiseftirlitið telur óíbúðarhæft og Minjastofnun aflétti friðun á 2014 og segir enga ástæðu til að varðveita. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vildu samþykkja ósk lóðareigendanna. Búist er við sunnanstormi eða roki með talsverðri rigningu og asahláku í dag. Í tilkynningu sem Veður stofan sendi frá sér í gær segir að það muni hvessa í fyrramálið og spáð sé sunnan 18 til 25 metrum á sekúndu um hádegisbil á morgun en 20 til 28 metrum á sekúndu um landið norðvestanvert. Einnig má búast við mjög hvössum vindstrengjum við fjöll, einkum norðvestan til. Þá verður talsverð rigning um landið sunnan- og vestanvert en úrkomu- lítið norðaustanlands. Þá hlýnar ört og er spáð 5 til 12 stiga hita síðdegis. Því má búast við asahláku í flestum landshlutum og er fólk því hvatt til að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Einnig má búast við talsverðum vatnavöxtum í ám sunnan og vestan til á landinu. - skh, jhh Búist við asahláku í dag stjórnmál Engin ákvörðun hefur verið tekin um formlegar eða óformlegar viðræður milli Bjartrar framtíðar, Sjálfstæðisflokks og Við- reisnar. Þetta sagði Benedikt Jóhannes- son, formaður Viðreisnar, í samtali við fréttastofu 365 í gær og bætti við að ekkert hefði gerst í viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar síðustu daga, að minnsta kosti hvað Við- reisn varðaði. Aðspurður hvort von væri á tíð- indum fyrir áramót sagði Benedikt að ómögulegt væri að segja til um það. Í ljósi þess hvernig viðræður síðustu vikna hefðu gengið hefði hann lært að halda væntingum í lágmarki. Þó væri ljóst að eitthvað þyrfti að fara að gerast. – skh Heldur væntingum um nýja stjórn í lágmarki Húsið sem styrinn stendur um er núna að Vegamótastíg 1. það verður ekki flutt. Fréttablaðið/GVa tillaga arkitekta arkís um nýbyggingar á horni Veghúsastígs og Klapparstígs. Mynd/arKís Minjastofnun affriðaði húsið á árinu 2014 vegna bágs ástands þess og gerði ekki athugasemdir við niðurrif þess.“ Úr umsögn skipulagsstjóra Reykjavíkur benedikt Jóhannesson segir Viðreisn ekki eiga neina aðild að stjórnarmyndunar- viðræðum. Fréttablaðið/anton 12 stig gæti hitinn farið upp í á landinu í dag. Á fmmtudag eru veir mánuðir eru liðnir frá því að Íslendingar gengu að kjör- kössunum og kusu nýtt Alþingi ErlEnt Bresk söfnun vörubílsstjóra fyrir fjölskyldu Pólverjans Lukasz Urban, sem barðist við hryðjuverka- manninn Anis Amri skömmu áður en hann ók inn á jólamarkað í Berl- ín, er kominn upp í rúm 165 þúsund pund. Breskir vörubílstjórar hafa sameinast um að gefa fjölskyldunni peninginn. „Þú þekkir okkur ekki og við vitum að peningar koma ekki til með að færa þér Urban aftur. Saga hans hreyfði við öllum og því vona ég að vörubílsstjórar sameinist, ekki bara í Bretlandi heldur um allan heim,“ segir í færslu söfnunarinnar sem Dave Duncan leiðir.  Þá hafa um 18 þúsund manns skrifað undir áskorun á netinu þar sem þýsk stjórnvöld eru hvött til að veita Urban orðu fyrir hugrekki sitt. Slagsmál hans við hryðjuverka- manninn eru sögð hafa orðið til þess að tala látinna varð ekki enn hærri, en þrettán eru látnir. -bb Bílstjórar safna fyrir Urban 2 7 . d E s E m b E r 2 0 1 6 Þ r i Ð j u d a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 2 7 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B C 9 -8 3 D C 1 B C 9 -8 2 A 0 1 B C 9 -8 1 6 4 1 B C 9 -8 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.