Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.12.2016, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 27.12.2016, Qupperneq 32
Ástkær faðir okkar, sonur, stjúpsonur, bróðir og vinur, Hjalti Bergmann Hjaltason lést á heimili sínu í Hafnarfirði sunnudaginn 18. desember. Jarðarförin fer fram í Vídalínskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 11. Gunnar Breki Hjaltason Írena Kristín Hjaltadóttir Ísak Karl Hjaltason Hjalti Bergmann Ólafur Stefánsson og systkini. Ástkær eiginkona mín, Guðbjörg E. Hrafnsdóttir Austurbergi 36, lést að heimili sínu 17. desember. Útför hennar verður frá Fossvogs- kapellu 27. desember kl. 13.00. Kærar þakkir til englanna hjá Karítas fyrir alla hjálpina. Valdimar Eiríksson og aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hrafnhildur Kjartansdóttir Thors hjúkrunarheimilinu Mörk, Suðurlandsbraut 66, Reykjavík, lést að heimili sínu þann 18. desember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir eða hjúkrunarheimilið Mörk. Hrefna Sigurgeirsdóttir Guðjón Jónsson Kjartan Sigurgeirsson Þórdís G. Bjarnadóttir Jón Sigurgeirsson Sigríður Harðardóttir Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir Friðrik Hafberg barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Sigurkarlsson lyfjafræðingur og fyrrverandi apótekari, lést 17. desember á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin fer fram í Digraneskirkju, miðvikudaginn 28. desember kl. 13.00. Anna Guðleifsdóttir Sigurkarl Stefánsson Olga Lísa Garðarsdóttir Sigurborg Stefánsdóttir Mekkinó Björnsson Anna Kristín Stefánsdóttir Sigurður Erlingsson barnabörn og barnabarnabarn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Bjarni Felixson, fyrrverandi íþrótta- fréttamaður og landsliðsmaður í knatt- spyrnu, fagnar í dag áttatíu ára afmæli sínu. Deginum mun Bjarni verja í faðmi fjölskyldunnar. Dagurinn í dag er ekki aðeins afmælis- dagur íþróttalýsandans ástsæla því í dag eru 55 ár síðan Bjarni og Álfheiður Gísla- dóttir, eiginkona hans, opinberuðu trú- lofun sína. Þau gengu í það heilaga 3. júní ári síðar. Sjálfur er Bjarni lítið afmælisbarn og segir það hafi í gegnum tíðina verið afar þægilegt að eiga afmæli 27. desember. Líkt og alþjóð veit fylgir sá dagur svo að segja alltaf öðrum í jólum og því hefur veisluhald oft farið fyrir ofan garð og neðan. „Ég hef sjaldan haldið upp á afmælið mitt. Það hafa verið veisluhöld dagana á undan og það er of mikið að hafa veislu fjórða daginn í röð,“ segir Bjarni. Sú regla er þó háð undantekningum. Bjarni hélt upp á fimmtugsafmælið sitt og bauð í heilmikla veislu þar sem fjöl- skylda hans og vinir drógu hann sundur og saman í háði. „Sú veisla yljar manni enn. Æran var gjörsamlega tætt af manni,“ segir Bjarni og hlær. Fór Ellert Schram, fyrrverandi þingmaður og samherji Bjarna í KR, þar fremstur í flokki að sögn afmælisbarns- ins. Þetta er hins vegar í eina skiptið sem blásið var til stórrar veislu. Lýsing íþróttaviðburða var talsvert algengri heldur en afmælisveislur. „Það voru mjög oft handboltaleikir á afmælisdaginn sem ég lýsti. Það gerðist til dæmis reglulega að það var leikur milli Íslendinga og Dana,“ segir Bjarni. Hann segir það hafi ekki verið svo að menn kæmu þungir í leikina sökum veisluhaldsins dagana á undan. „Það var þá allavega jafnt á komið hjá Íslending- um og Dönum í þeim efnum.“ „Ég er afskaplega ríkur maður,“ segir Bjarni en þau Álfheiður eiga fjögur börn, níu barnabörn og eitt barnabarnabarn. „Börnin ætla að halda veislu í tilefni dagsins. Það verður matarboð fyrir mig og mína nánustu af þeim sökum. Ég fékk engu um það ráðið.“ johannoli@frettabladid.is Bjarni Felixson fagnaði afmælinu oft í vinnunni Bjarni Felixson er áttræður í dag en hann er lítið afmælisbarn að eigin sögn. Það hentaði vel að eiga afmæli strax á eftir jólum því þá var auðvelt að komast hjá frekara veisluhaldi. Í dag fær hann þó engu um það ráðið. Matarboð verður haldið honum til heiðurs. Börn Bjarna Felixsonar halda veislu honum til heiðurs FréttaBlaðið/SteFán „Það voru mjög oft handboltaleikir á afmælisdaginn sem ég lýsti. Það gerðist til dæmis reglulega að það var leikur milli Íslendinga og Dana Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðný Helga Árnadóttir kennari lést á Landspítala 18. desember síðastliðinn. Útför fer fram í Keavíkurkirkju 29. desember kl. 13. Höskuldur Goði Karlsson barnabörn og barnabarnabörn. Þorbjörg Ágústa Höskuldsdóttir Guðmundur R. Guðmundsson Ásdís Þrá Höskuldsdóttir Ásmundur Magnússon Hallveig Björk Höskuldsdóttir Halldís Hörn Höskuldsdóttir Lars Andersen 1831 Charles Darwin leggur úr höfn á skipi sínu Beagle. Á siglingu sinni vinnur hann að þróunarkenningunni. 1845 Eter er notaður sem deyfilyf við fæðingu í fyrsta sinn. 1845 Bandaríski blaðamaðurinn John L. O'Sullivan notar frasann „Manifest Destiny“ í fyrsta sinn. Frasinn er notaður til þess að rétt- læta útþenslu Bandaríkjanna í átt að Kyrrahafi. 1936 Ungmennafélagið Valur er stofnað á Reyðarfirði 1945 Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eru stofnaðir. 1956 Lögbann er sett á hnefaleika á Íslandi. 1988 Fyrsta fasta bílnúmerið í nýju númerakerfi er sett á bíl Hall- dórs Ásgrímssonar, HP741. Merkisatburðir 2 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U d A G U r24 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tÍmamót 2 7 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B C 9 -8 D B C 1 B C 9 -8 C 8 0 1 B C 9 -8 B 4 4 1 B C 9 -8 A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.