Fréttablaðið - 27.12.2016, Page 46

Fréttablaðið - 27.12.2016, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Það er náttúrulega dásamlegt að fylgjast með henni og hlýða henni yfir texta sem ég fór sjálf með. Ég hef ekkert séð af sýning- unni en hún nýtur þess að vera í leikhúsinu. Það er auðvitað öryggi í því að þekkja þetta umhverfi og vita af henni í góðum höndum,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, spurð að því hvernig henni finnst að fylgjast með dóttir sinni leika í Sölku Völku sem frumsýnd verður 30. desember í Borgarleikhúsinu. Fyrir tíu árum fór Ilmur með hlut- verk Sölku í sýningunni, og var þá ólétt af Auði. „Ég man að ég komst að því að ég var ólétt sama dag og Bessi Bjarna- son var jarðaður. Við vorum til- tölulega nýbyrjuð að æfa og ég sagði ekki frá óléttunni fyrr en eftir frumsýningu. Þá hafði komið í ljós að Halldóra Geirharðs sem lék mömmu mína var líka ólétt. Við lékum þetta þangað til ég var komin fimm mánuði á leið og sá þá töluvert á mér. Edda Heiðrún leik- stýrði sýningunni og hún vildi eigna sér þessa frjósemi og hún mátti það alveg,“ segir Ilmur. Ilmur hefur aðstoðað Auði með hlutverkið og hefur getað frætt dóttur sína um Sölku, enda þekkir hún vel þessa miklu og sterku per- sónu sem hún er. „Það er mjög skemmtilega til- hugsun, að mamma hafi verið með mig í maganum þegar hún lék Sölku Völku. Þá  get ég svona eiginlega ímyndað mér að ég hafi leikið þetta áður. Þó svo að ég hafi ekki gert það þá var ég einhvern veginn á staðn- um. Mamma hefur líka hjálpað mér mikið með hlutverkið, sagt mér hvernig Salka Valka er og svoleiðis,“ segir Auður Aradóttir. Salka Valka er hetjusaga ungrar stúlku sem brýst úr fátækt og fáfræði og nær að verða mikils metinn þjóðfélagsþegn af eigin rammleik með seiglu og ein- beittum vilja. „Salka er ákveðin, sterk og hug- rökk. Hún býr með mömmu sinni og svolítið skrítnum og erfiðum manni og þess vegna er hún mjög hugrökk. Hún lítur ekki upp til hans því að hann er oft mikið fullur,“ segir Auður. Æfingar standa sem hæst hjá leik- hópnum þessa dagana og er því nóg um að vera hjá Auði í leikhúsinu. „Mér finnst æfingarnar ganga bara nokkuð vel og ég er orðin mjög spennt fyrir frumsýningunni. Ég og Júlía, stelpan sem leikur hlutverkið á móti mér, bíðum mikið á æfingum því að við erum ekki á sviðinu allan tímann. En það er mjög gaman því að við Júlía erum góðar vinkonur og finnum okkur alltaf eitthvað skemmtilegt að gera,“ útskýrir Auður. En er ekkert erfitt fyrir tíu ára stelpu að æfa svona mikið og lengi? „Þetta er eiginlega bara gaman, þó það sé stundum erfitt að hafa svona mikið að gera. Svo finnst mér líka mjög áhugavert að leika svona fátæka stelpu sem þarf mikið að hjálpa mömmu sinni með alls konar,“ segir Auður. Auður hefur þó nokkra reynslu í leiklistarbransanum en hún hefur komið fram í þáttunum Stelpurnar okkar frá því hún var lítil stelpa, og auk þess lék hún stórt hlutverk í kvikmyndinni Eiðnum, sem sló rækilega í gegn á árinu. „Það er allt öðruvísi að leika í bíó- mynd en að leika á sviði, ef maður ruglast í bíómynd þá er það bara tekið aftur. En ef maður ruglast í leikhúsinu þarf maður bara að bjarga sér. Mér finnst líka aðeins skemmtilegra að fá að leika fyrir framan fólk og sjá fólkið sem ég er að leika fyrir,“ segir hún spennt. Ætlar þú að verða leikkona þegar þú verður stór? „Já, ég ætla að vera leikkona þegar ég verð stór, af því að mér finnst mjög gaman að leika,“ segir Auður. gudrunjona@frettabladid.is Ímynda mér að ég hafi leikið þetta áður Auður Aradóttir dóttir Ilmar Kristjánsdóttir leikkonu, stígur sín fyrstu skref á fjölum leikhússins þar sem hún leikur Sölku Völku þegar hún er barn í sýningunni Salka Valka. Þess má geta að Ilmur var ólétt af Auði þegar hún sjálf fór með hlutverk Sölku fyrir tíu árum. Auður Aradóttir, fer með hlutverk Sölku Völku þegar hún er lítil. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR Leikhúsmæðgurnar Ilmur og Auður. MyND/ILMUR. Afgreiðslutími sjá www.dorma.is Holtagörðum, 512 6800 Smáratorgi, 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafjörður SMÁRATORG HOLTAGARÐAR AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR DORMA VERÐ Stærð cm. Shape og C&J silver 2x80x200 349.900 2x90x200 369.900 2x90x210 389.900 2x100x200 389.900 120x200 199.900 140x200 224.900 C&J stillanleg rúm: • Inndraganlegur botn • 2x450 kg lyftimótorar • Mótor þarfnast ekki viðhalds • Tvíhert stál í burðargrind • Hliðar- og enda stopparar • Val um lappir með hjólum eða töppum • Hljóðlátur mótor STILLANLEGT HEILSURÚM með Shape heilsudýnu SHAPE B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G FRÁBÆRT Dormaverð 2 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U d A G U r38 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð 2 7 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B C 9 -7 0 1 C 1 B C 9 -6 E E 0 1 B C 9 -6 D A 4 1 B C 9 -6 C 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.