Fréttablaðið - 27.12.2016, Síða 48

Fréttablaðið - 27.12.2016, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóhanns Óla Eiðssonar Bakþankar OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40 Fyrir utan eina litla hefð þá eru jólin frábær. Við vitum öll um hvaða hefð er að ræða. Hefð sem hyglar sumum en leggur aðra nán­ ast í einelti. Brýtur þá niður. Skilur einstaklinga eftir með sárt ennið ár eftir ár. Auðvitað er það bölvaður möndlugrauturinn. Maður hefði haldið að þetta fræ, sem blandað er saman við eftirrétti í sparifötunum, myndi lenda nokkuð jafnt í skálum fjölskyldumeðlima en svo virðist ekki vera. Eftir rúm 23 ár af þessari jarðvist hefur þetta drasl aldrei endað hjá mér. Á sama tíma heyrir maður aðra gorta sig af því að þeir muni keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í möndlugrauts­ áti eftir að hafa fengið möndluna þrjú ár í röð. Absúrd hreint út sagt. Það verður ekkert Tókýó 2020 fyrir mig. Ég veit ég á fleiri en eitt þjáningar­ systkin og líklega fleiri en tvö. Hvert einasta ár er þetta eins. Grauturinn, sem er að vísu búðingur í tilfelli okkar fjölskyldu, er fram borinn og í brjósti manns kviknar barnsleg von um að þetta verði árið sem allt breytist. Fyrstu skálinni eru gerð skil, síðan annarri og til að fullkomna sjálfsfyrirlitninguna sporðrennirðu þeirri þriðju. Með hverri skeiðinni dofnar neistinn. Þú áttar þig smám saman á því að það hlakkar í einhverju skyldmenni þínu sem geymt hefur möndluna í kinninni og fylgst með þér borða þér til óbóta. Gleðileg fokking jól. Vandamálið er auðleyst. Ekki fleiri kramin hjörtu og brostnar vonir á aðfangadag. Björgum jólunum. Bönnum möndlugrautinn fyrir fullt og allt. P.S. Þessu algerlega ótengt og alveg út í bláinn. Ef fjölskyldan þín ákveður að gefa ekki gjafir um jólin þá er hún að reyna leiða þig í gildru. Bölvuð mandlan 2 7 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B C 9 -5 C 5 C 1 B C 9 -5 B 2 0 1 B C 9 -5 9 E 4 1 B C 9 -5 8 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.