Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016
„Við þurfum bara að klára þetta“
Mikil óánægja ríkir meðaleldri borgara með störfríkisstjórnarinnar og
ágreiningur er um ýmis atriði er
varða drög að frumvarpi um breyt-
ingu á lögum almannatrygginga. Fé-
lag eldri borgara og Grái herinn
héldu í vikunni fund þar sem fulltrú-
ar allra stjórnmálaflokka sátu fyrir
svörum. „Þetta var tímamótafundur
fyrir alla. Ég held að það sé orðið fá-
títt í seinni tíð að stjórnmálafundir af
þessu tagi séu svona vel sóttir,“ segir
Helgi Pétursson, stjórnarmeðlimur
Gráa hersins og fundarstjóri. Frum-
varpið boðar talsverðar breytingar
en Félag eldri borgara vill ekki sam-
þykkja frumvarpið eins og það lítur
út í dag. Meðal annars kveður frum-
varpið á um afnám frítekjumarka,
sem félagið telur hafa letjandi áhrif á
eldra fólk að halda áfram störfum á
vinnumarkaði.
Enginn hvati til vinnu
„Það sem rekur okkur af stað í þetta
er að okkur er gert nánast ókleift að
vinna. Ég er sjálfur 67 ára gamall,
það er ekkert að mér og ég get alveg
unnið. En þegar það er gert með
þeim hætti að ég fæ ekki borgað fyrir
það, að ég fái ekki laun fyrir þá er
enginn hvati til að vinna. Það er allt
rifið af mér í skerðingum. Þetta er
svo mikill dónaskapur að koma svona
fram við fólk. Hvað vill samfélagið að
ég geri? Á ég bara að sitja hérna og
fara í einn hring í strætó á sunnudög-
um? Menn verða að átta sig á því að
það er svo langt framundan. Við,
þessi stóri hópur, getum, viljum og
verðum að taka þátt í atvinnulífinu og
samfélaginu. Þetta verða menn að
leysa. Þetta er ekkert vandamál,
þetta er bara úrlausnarefni. Við þurf-
um bara að klára þetta.“
Félagsskapurinn forvörn
Víða á Norðurlöndum er staðan afar
frábrugðin því kerfi sem hér ríkir að
sögn Helga. Í Noregi er staðan önnur
og þegar Norðmenn byrja að taka úr
lífeyrissjóði þá hafa þeir svigrúm til
þess að vinna án þess að það skerði
greiðslur.
„Við erum núna að þrýsta á stjórn-
völd að fá að vinna lengur. Það vantar
5.000 manns í vinnu á Íslandi og við
erum miklu frískari en við vorum hér
á árum áður, heilsa fólks er betri. Við
erum ekki að segja öllum að fara út
að vinna, að sjálfsögðu erum við ekki
öll eins. Sumir hlakka til efri áranna
og vilja fara heim og sinna barna-
börnunum eða einhverju allt öðru,
laga til í dótinu sínu sem fólk hefur
ekki sinnt í mörg ár eða bara gert
það sem það vill. En aðrir þurfa á
þessum félagsskap að halda. Þetta er
ákveðin forvörn, bæði gagnvart sjúk-
dómum, geði og öðru,“ segir Þórunn
Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags
eldri borgara. „Við finnum með þess-
um bakhjarli sem var á þessum fundi
að þörfin fyrir að ræða þessi mál er
komin og við erum að opna á um-
ræðuna. Við erum komin með kyn-
slóð sem þorir að segja eitthvað, þor-
ir að láta í sér heyra. Við erum
galvösk í þessari baráttu,“ segir Þór-
unn.
Staðan hrika-
lega þung
Bjarni Benedikts-
son fjármála-
ráðherra var á
meðal þeirra sem
sátu fyrir svörum
á fundinum.
„Það er stað-
reynd að staða líf-
eyrisþega var hrikalega þung þegar
þessi ríkisstjórn tók við. Bætur höfðu
verið skertar og frystar. Við höfum
lagt mikið á okkur til að leiðrétta það.
Við afnámum skerðingar á grunnlíf-
eyri, hækkuðum frítekjumörk og
bætur hafa hækkað umtalsvert. Síð-
ast en ekki síst fórum við í heildar-
endurskoðun á kerfinu í samstarfi við
hagsmunaaðila og nú liggur fyrir
frumvarp til breytinga á Alþingi.“
Bætt hafi verið tugum milljarða í
bótakerfi almannatrygginga á þessu
kjörtímabili en betur má ef duga
skal. „Eftir situr að það þarf að gera
betur. Ég tel nauðsynlegt að vera
áfram með frítekjumörk þannig að
fólk haldi eftir sanngjörnum hlut af
lífeyristekjum sínum, áður en sá
sparnaður fari að hafa áhrif á rétt til
greiðslna frá almannatryggingum.
Svo þarf að finna leiðir til að halda
áfram að hækka bótagrunninn,“ seg-
ir Bjarni.
Vandamálið ekki nýtt
af nálinni
Hann skilur óánægju meðal eldri
borgara og segir vandamálið ekki ný-
tilkomið heldur sé um að ræða vanda
sem hefur verið að safnast upp í ára-
tugi. „Vandamálið er tilkomið vegna
þess að okkur mistókst að tryggja því
fólki sem nú er að komast á eftir-
launaaldur góð lífskjör með eigin líf-
eyrissparnaði. Þetta er fólkið sem
horfði upp á lífeyrissparnað sinn
brenna upp í verðbólguárunum á sín-
um tíma,“ segir Bjarni.
„Það má segja að vandinn hafi ver-
ið skapaður fyrir áratugum en hann
er að brjótast fram í dag.“
„Við, þessi stóri hópur, get-
um, viljum og verðum að
taka þátt í atvinnulífinu og
samfélaginu. Þetta verða
menn að leysa,“ segir Helgi.
Getty Images/iStockphoto
Formaður Félags eldri borgara segir að baráttan um betri lífskjör sé rétt að byrja. Eldri borgarar hafi setið á hakanum lengi en nú
sé komið að þeim. Fjármálaráðherra segir vandamálið hafa orðið til fyrir áratugum en sé að brjótast fram í dag.
Helgi og Þórunn segja það ólíð-
andi hvað lífskjör margra eldri
borgara séu slæm. „Þetta er
hópur sem er vanur að þurfa að
kyngja. Kurteis eldri kynslóð
sem grætur í hljóði,“ segir Þór-
unn. „Við heyrum iðulega sög-
ur frá fólki sem hefur það alls
ekki gott. Gamall maður sem
átti að borga um 3.000 krónur í
Bónus fékk ekki kortið sitt til að
virka og hafði ekki nóg í seðlum
til að greiða fyrir vörurnar sín-
ar. Vinur minn sem var á eftir
honum í röðinni býðst til að
borga en gamli maðurinn neit-
ar og gengur út. Aðspurt svar-
aði starfsfólkið að þetta væri al-
gengt að sjá, helst hjá eldra
fólki. Þetta er eitt dæmi af
mörgum.“
Fólk leggi hart að sér alla sína
ævi, ali upp börn og vinni vel.
Svo þegar tímabilið komi þar
sem léttir og gleði eigi að taka
við tekur eitthvað allt annað á
móti. Það sé sorgleg staðreynd
og því verði að breyta.
Sorgleg staðreynd
Helgi segir það þreytandi
þegar eldri borgarar og ör-
yrkjar séu settir undir
sama hatt og þannig sé
reynt að villa um í um-
ræðunni. „Ég á ekkert
sameiginlegt með ör-
yrkjum, ég skal hins vegar
berjast fyrir málefnum ör-
yrkja af öllum krafti en
þetta er ekki sami hópur-
inn. Það er alltaf talað um
aldraða og öryrkja saman
eins og sé verið að reyna
að búa til samviskubit og
manni líður eins og að ef
aldraðir fá eitthvað þá sé
tekið af öryrkjum. Öðru-
vísi geti þetta ekki geng-
ið,“ segir Helgi sem ítrek-
ar að eftirlaun séu ekki
bætur. „Ég er búinn að
borga þetta allt saman. Ég
er búinn að vinna í 40, 45
ár. Ég er búinn að borga
skatta sem áttu að sjá mér
fyrir lágmarksframfærslu
og svo er ég búinn að safna
í lífeyrissjóð líka.“
Villandi
umræða
Okkur hefur vissulega tekist í Gráa hernum sem slíkum að hafa
þetta svolítið með bros á vör og ekki vera á hnefanum og bryðja
jaxla. En þetta er samt grafalvarlegt.
Helgi Pétursson.
INNLENT
GUNNÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR
gunnthorunn@mbl.is
Þórunn
Sveinbjörnsdóttir
Bjarni
Benediktsson
Helgi
Pétursson