Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Blaðsíða 45
Crest fyrir neinum en ein ágætis
sápuópera frá miðjum 9. áratugnum,
Hotel, hefur svolítið fallið í
gleymskunnar dá. Þættirnir gerast á
glæsihótelinu St. Gregory í San
Francisco og segja frá lífi starfsfólks
og gesta hótelsins þar sem James
Brolin leikur hótelstjórann.
Þroskasaga Kevin Arnold sem
birtist í þáttunum The Wonder
Years á árunum 1988-1993 fékk 22
verðlaun á þeim árum sem hún var
sýnd og 55 tilnefningar. Kevin Arn-
old og vinir hans alast upp í búsæld
7. og 8. áratugarins í Bandaríkj-
unum og er fylgst með lífi þeirra á
þeim tíma þegar samfélagið er að
breytast mikið vestanhafs og hvern-
ig það er að vera krakki og ungling-
ur á árunum 1968-1973 í því um-
hverfi.
Það sem kom Cybill Shepherd og
Bruce Willis almennilega á kortið
voru sjónvarpsþættir sem sýndur
voru á árunum 1985-1989 við miklar
vinsældir; Moonlighting. Þættirnir
eru góð blanda af spennu, drama og
gamani og þóttu brautryðjandasjón-
varpsefni á því sviði; þar sem slík
blanda hafði lítið verið reynd áður.
Cheers eða Staupasteinn eins og
hann var nefndur á íslensku á sér-
stakan stað í hjarta margra enda
fylgdust íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur í mörg ár með gleði og sorg-
um bareigandans Sam Malone og
fastakúnna hans. Framleiddar voru
hvorki meira né minna en 11 þátta-
raðir en sú fyrsta fór í loftið 1982 og
þær fyrstu eru þær allra bestu.
Lögregluþættirnir Hill Street
Blues, eða Verðir laganna, hófu
göngu sína í íslensku sjónvarpi árið
1984 en þættirnir hafa hvað eftir
annað komist á blað yfir bestu sjón-
varpsþætti sem gerðir hafa verið
fyrr og síðar og hlutu 98 tilnefningar
til Emmy-verðlaunanna á þeim sex
árum sem þeir voru sýndir og aðeins
West Wing hefur fengið fleiri verð-
laun. Þættirnir segja frá lífi og störf-
um lögreglumanna í Hill Street-
lögreglustöðinni þar sem yfirmað-
urinn Frank Furillo bar hitann og
þungann af þeim.
Þeir sem náðu Kanasjónvarpinu á
8. áratugnum voru lukkunnar pamfíl-
ar að ná um leið CBS-þáttunum The
Mary Tyler Moore Show sem hafa
elst frábærlega og eru sannkölluð
seventís-veisla fyrir augað. Gaman-
þættirnir segja sögu framakonunnar
Mary Richard en annar handritshöf-
undanna, James L. Brooks, átti síðar
eftir að verða frægur fyrir fjöldann
allan af Óskarsverðlaunamyndum
sem og Simpsons-þættina.
Það eru að verða 17 ár síðan síðasti
þátturinn um þýska rannsóknar-
lögreglumanninn með stáltaugarnar,
Stephan Derrick, og aðstoðarmann
hans, Harry Klein, var sýndur í
Ríkissjónvarpinu. Höfðu þeir þá ver-
ið fjölskylduvinir þriðjudagskvölda
frá árinu 1982. Fyrir utan að vera
spennandi eru Derrick þeim kostum
gæddir að vera hvorki ofbeldisfullir
eða blóðugir fyrir glæpaþætti að
vera, gerast í fallegu umhverfi
München og eru ágætis þýsku-
kennsla fyrir til dæmis mennta-
skólanema.
Gamanþættirnir Já, ráðherra eða
Yes, Minister eru eitt vinsælasta
sjónvarpsefni sem Bretar hafa gert
og urðu geysivinsælir hérlendis þeg-
ar þeir voru fyrst sýndir í íslensku
sjónvarpi árið 1983. Þættirnir fjalla
um nýjan ráðherra í ríkisstjórn sem
kemst að því að í raun er hann sjálf-
ur valdalaus og ráðuneytisstjórinn
ræður öllu. Klassískt, breskt grín.
Aðrir þættir sem þeir sem náðu
Keflavíkursjónvarpinu muna eflaust
eftir eru The Dick Van Dyke Show,
en þeir voru einir vinsælustu sjón-
varpsþættir 7. áratugarins, marg-
verðlaunaðir og þykja hafa elst
einkar vel. Í þeim léku Dick Van
Dyke og Mary Tyler Moore aðal-
hlutverkin. Þættirnir segja á
gamansaman hátt frá daglegu lífi
handritshöfundar nokkurs sem
starfar í sjónvarpi en Van Dyke er
auk þáttanna þekktastur fyrir hlut-
verk sín í Mary Poppins og Chitty
Chitty Bang Bang.
2.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
KVIKMYNDIR Fjórfaldi mexíkóski óskarsverð-
launahafinn Alejandro Gonzelez Inarritu, leikstjóri
Birdman, Revenant, Babel og fleiri stórmynda, er að
gera nýstárlega stuttmynd um hitamál í heimalandi
sínu og nýtir sér sýndarveruleika við gerð myndar-
innar.
Myndin á að sýna ferð ólöglegra innflytjenda og
flóttamanna yfir landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna.
Upplýsingar eru enn nokkuð á huldu um gerð mynd-
arinnar og leikara en það er sýndarveruleikateymið
hjá Lucasfilm sem kemur að tæknilegri vinnu mynd-
arinnar sem á að færa áhorfendur nær þeim sársauka-
fulla veruleika sem á sér stað við þessi ein umtöluðustu
landamæri heims.
Færir reynsluna nær Landamæri Mexíkó eru til um-
fjöllunar í nýjustu mynd Inarritu.
AFP
TÓNLIST Sherlock Holmes-stjarnan, Bene-
dict Cumberbatch, átti óvænta innkomu sem
rokkstjarna á tónleikum David Gilmour í
Royal Albert Hall í vikunni. Gilmour flutti
þar meðal annars lög gömlu hljómsveitar-
innar sinnar, Pink Floyd, og leikarinn tók
undir með honum í söng þegar kom að laginu
Comfortably Numb af plötu sveitarinnar The
Wall frá 1979. Lagið var upphaflega sungið
af Roger Waters sem hætti í hljómsveitinni
1985 en Gilmour hefur flutt lagið sjálfur á
tónleikum eftir að hann hætti og á það til að
bjóða gestasöngvurum að syngja með sér,
meðal þeirra er David Bowie.
Sherlock Holmes söng Pink Floyd
Benedict Cumberbatch á margar hliðar.
TÓNLIST Ný plata Metallica, sú
fyrsta í átta ár, leit dagsins ljós í
vikunni en hún ber heitið
Hardwired ... to Self-Destruct.
Platan inniheldur 12 lög eða 80
mínútur af efni en þeir félagar
segja í viðtali við BBC að það sé
ekkert óeðlilegt við það að það
hafi tekið 8 ár að gera plötuna.
„Allt sem er ómaksins virði
tekur tíma. Hjónaband er nógu
erfitt eitt og sér en að vera giftur
þremur karlmönnum í hljómsveit
í 30 ár? Við erum strákar og við
höfum allir okkar hugmyndir og
við getum verið tortryggnir í garð
fyrirætlana hver annars,“ segir
James Hetfield, söngvari sveit-
arinnar, í viðtalinu og bætir við að
þeir eigi stundum í ástar-
haturssambandi. Stundum sé það
auðvelt, stundum erfitt, en það sé
alltaf þess virði að standa í því.
Hlómsveitin Metallica á tónleikum í
New York í vikunni.
AFP
ÁSTAR-HATURSSAMBAND
Fyrsta platan í átta ár
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Lágmarksending 3 ár
• 2ja ára ábyrgð
Grænt heimili - engin eiturefni
Fyrir baðherbergið
Fyrir gólfin
Fyrir eldhúsið Fyrir þvottinnFyrir gluggana
Fyrir
heimiliðHeimili
spakkinn
Verðtilboð
90.800 kr.
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?